« Eyrnamergjað | Main | Nýtt »

Elli & Jacno

Fyrir einhverju síðan var ég að gramsa til á Netflix og leita að myndum með Tcheky Karyo, geðþekka tyrkneska frönskumælandi leikaranum (sem var frábær í Dobermann). Þar rakst ég á myndina "Full Moon in Paris" eftir hinn franska Eric Rohmer. Fannst myndin ekkert virka neitt gríðarlega spennandi, en þegar ég sá hvað hún hét á frummálinu, "Les Nuits de la Pleine Lune", minnti mig að hafa séð kover á plötu með því nafni einhverntímann. Kannski á eBay, kannski á einni plötubúð hér í New York. Ég mundi það afþví að á fyrsta lagið á fyrstu þremur Nightmares on Wax plötunum var alltaf það sama, nema í aðeins breyttri útsetningu. Það lag (þau lög) heitir einmit Les Nuits, og hefur alltaf veriðí miklu uppáhaldi hjá mér.

Enníveis. Ég gúglaði "Les Nuits de la Pleine Lune" og fann á endanum franska teknópoppsíðu einhvers japana, sem hefur ekki uppfært í 5 ár. En, þrátt fyrir tungumálaörðuglega og ansi skræpótta litapallettu fann ég loks plötuna sem ég varað leita að! Já!!!

Platan "Les Nuits de la Pleine Lune" er semsagt soundtrakkið úr þessari kvikmynd, og er eftir franska parið Elli & Jacno (Elli et Jacno, fyrir þjóðernissinna). Eftir að hafa fiktað í paunki sem Stinky Toys, gerðust þau par og fóru að gera tekknóparapopp. Mjög skemmtilegt teknóparapopp. Parastuðið lifði í ca fjögur ár, frá 1980 til 1984 (þegar ofangreint soundtrakk kom út), en þá splittuðu þau og fóru hvort sína leið, þó þau héldu að vísu bæði áfram í poppinu. Elli átti ágætis feril í frönskum kvikmyndum (enda pínu krútt), og ætlar víst að gefa út plötu núna í haust. Jacno (sem var áður búinn að vera smá sóló) fór aftur að gefa út sólóplötur með misjöfnum árangri og misjöfnum plötuumslögum, en mér finnst fátt af sólóefninu jafnast á við það sem þau gerðu saman.

Árið 1994 kom út safnplatan "Symphonies de Poche" með Elli & Jachno. Á þeirri plötu eru tvö lög af "Les Nuits de la Pleine Lune" sem eru einmitt tvö af uppáhaldslögunum mínum með þeim.

Elli & Jacno - Les Nuits de la Pleine Lune
Listen / Buy the DVD from Amazon
Elli & Jacno - Chica Chica Bongo
Listen / Buy from GEMM

Bæði af "Les Nuits de la Pleine Lune" frá 1984.

Allt, allt of sniðugt og flott.

Comments(2)


Kristleifur:

Mjög flott. Var að enda við að spóla í gegn um tónlistarblogg eftir tónlistarblogg af krúttuvægð og stoppaði fyrst á þessu.

Btw: http://en.wikipedia.org/wiki/Ampersand
Vissirðu? Gaman!

Takk!

Og Takk fyrir að kommenta.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)