« Rokk og ról fyrir börnin | Main | Breitt dagsljós Gabríels »

Christmas Remixed 1 og 2!

(Endurunnin undanrenna - segðu það 5 sinnum hratt!)

Þegar ég og Njörður fórum í antík/retró-dótabúð í SoHo að skoða kreistanlega ýlandi Tinna og Kafteina Kolbeina, Twiggy kúlupenna og risaeðlur, allt í upprunalegum umbúðum og á hinu fínasta verði, þá heyrðum við undarlega en skemmtilega tóna.

Það er ekki laust við að ég og Njörður hefðum dillað bossunum lítið eitt við tónana, sem hreyfðu bæði við hinum gallhörðu tjútturum og hinum ljúfu fjölskylduknúsurum sem við erum. "Eitthvað fyrir alla," hugsaði ég og elti hljómana beint að peningakassanum.

Maðurinn bakvið borðið sagðist vera að spila safndisk sem héti Christmas Remixed, og væri akkúrat það: jólin endurhljóðblönduð!

christmas_remixed_vol1 christmas_remixed_vol2

Umslagið sagði að þarna væru rímix eftir Dan the Automator, Mocean Worker og svo MNO, sem hljómaði einsog eitthvað sem væri kúl að namedroppa í röðinni á Sirkús og Ömmu Lú. Ég krotaði niður nafn og strikamerki og ákvað að þarna væri nýjasta nýttið í hipp&kúl jólaheiminum, eitthvað sem væri alveg á brúninni við að verða mest móðins, eitthvað sem myndi heyrast í verslunum, skírnum og eftirpartýium frá Harlem til Hafnarfjarðar.

Ég stóðst ekki mátið og pantaði voljúm 1 og 2 um leið og ég komst í tölvu, og stóðst svo mátið enn minna og sótti öryggisafrit gegnum sömu tölvu, bara ef ske kynni að pöntunin mín hyrfi á leiðinni.

Þetta konseft á auðvitað ekkert að virka: að fá einhverja rafpoppara til að rímixa jólalög með Bing Crosby, Louis Armstrong og Patti Page hljómar einfaldlega hræðilega! En einhvernveginn virkar þetta og allir gerðu þetta almennilega og með metnaði. Þetta eru semsagt alvöru rímix, ekki Dj Peningur að taka vinsælt lag með Abba og bæta söng Madonnu undir. *hóst*

Ég tók bara sjensinn á að diskur númer tvö væri jafn sniðugur og sá hinn fyrri, þrátt fyrir að konseftið gæti hafa þynnst í seinni umferðinni. Fyrri diskurinn finnst mér vera aðeins betri, kannski afþví að ég heyrði hann fyrr og finnst han meira kúl fyrir vikið, en það er bara allt í lagi því þetta virkar ennþá og kemur mér í hipp&kúl jólastuð, og mig langar að fara út og gefa fólki af öllum kynþáttum og þjóðfélagsstigum háar fimmur hægri vinstri.

Kannski er ég svona glaður afþví að þetta varð til þess að mér fannst aksjúallí í lagi að hlusta á jólalög í fyrsta skipti síðan daginn áður en allar útvarpsstöðvar í heiminum byrjuðu að spila þau nonstop frá 20. nóvember hvert ár?

Maður má búast við að heyra sum lögin bæði á Bylgjunni og í landasalapartýi í Breiðholti, þannig að þarna er eitthvað fyrir alla sem hafa hjarta og eyru.

Hér eru þrjú hljóðdæmi af Christmas Remixed vol. 1:

musicnote.gif Andy Williams - It's The Most Wonderful Time Of The Year (A Shrift remix)
musicnote.gif Kay Starr - I've Got My Love To Keep Me Warm (Stuhr remix)
musicnote.gif Duke Ellington - Jingle Bells (Robbie Hardkiss remix)

Verið nú sniðug og óScroogsk og kaupið diskana á Amazon.com:
Christmas Remixed vol. 1
Christmas Remixed vol. 2

Og munið hverjir fylltu ykkur af jólagleði jólin 2005: Halli og rafpoppjólarímixlandsliðið!!!

Comments(10)


Bjarki:

Þetta er öggla mikil snilld. Hélt ég væri að sækja þetta en sótti þá "Merry Mixmas - Christmas Classics Remixed". Kláru kallarnir í Bent m mjög flott mix af Winter Wonderland. Jú jú Halli minn greinilega alveg nýjasta hippið og kúlið ; )

Marta:

Schnilld!! :) Fékkstu SmS-ið? Ég fékk þitt

Bjarki:

Er búinn að renna í gegnum allar þessar plötur núna og Merry Mixmas tekur Christmas Remixed plöturnar sko heldur betur í nebbann! Tjékkaðu á henni. Gleðileg jól.

Glæ-hæ-hæ-tan.

Trúi því þegar ég heyri það. Sem verður aldrei!!!

Þú getur kannski gefið mér öryggisafrit í jólagjöf?

Hey! Þökk sé ljóshraða alnetsins þá er ég að hlusta á plötuna núna. Og þetta er barasta skemmtilegt!

En hvað heitir þessi tegund tónlistar? Christmascore? Mixmas? Santi Folk? Clausrave? Kringlepop?

Bjarki:

Góð spurning? Grýlugaul eða skósveinsskans kannski ;) Christmascore vekur upp í hugann myndir af Essex reifurum með tagl og jólasveinahúfur meða hvíta hanska og glowstick á lofti!!!

Daníel:

Halli,

við Amber höfum átt Christmas Remixed 1 diskinn í nokkur ár og finnst hann mjög góður. Ég held jafnvel að númer 2 hafi verið á gjafalistanum í ár.

Gleðileg Jól.

halli..

...mér finnst ekki gaman þegar þú bloggar ekki nýtt.. bara mín síða og þín síða eru skemmtilegar á internetinu:*

Daníel: já, heppinn ertu, þið hljótið að hafa átt enn gleðilegri jól síðustu árin, bara útaf disknum! Diskur númer 2 er líka skemmtilegur, og svo Merry Mixmas sem Bjarki nefndi (og þú veist hvaða Bjarki þetta er).

Grafarvogur 4evah!

Gleðileg jól líka! Bið að heilsa Amber!

Katrín: takk. Hefði skrifað í flugvélinni en það var ekkert internet.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)