« Christmas Remixed 1 og 2! | Main | Tónaflóð með hljóði »

Breitt dagsljós Gabríels

Til að gleðja sjálfan mig og þig (já, þig!) ætla ég að tengla á lag með hinum púertó ríkanska Gabriel Rios, sem ég vissi ekki að hefði fæðst fyrr en í kvöld.* Ég heyrði lag eftir hann undir einhverskonar myndskeiði, gúglaði söngtextann, fann lagið og nálgaðist svo plötuna.

musicnote.gif Gabriel Rios - Broad Daylight
af plötunni Ghostboy frá 2003

Það skrýtnasta af öllu skrýtnu er restin af plötunni.

Hún er nefnilega latin. En ekki þetta lag. Skrýtið, ha?
Lagið að ofan hefur eitthvað úmpf sem mér finnst fínt og kemur mér í fíling. En platan er eiginlega slöpp og skrýtin, með skrýtnum hásum latneskum rapparakalli í endann, sem er samt hress og gerir það lag alltilæ. Skiljiði? Skrýtið!

Kannski er hann einslagsundur. Vonandi gerir hann samt meiri svona lög og hættir að vera erótískur svitasali, því svoleiðis tarfar fara óeðlilega mikið í taugarnar á mér. Kannski er ég með minnimáttarkennd, því þó ég kunni að sveifla rassinum þá vantar mig augnaráðið og tindrandi barkakýlið. Og fæðingarblettaklessurnar.

* þúveist, hann fæddist fyrir löngu, en ég vissi það bara ekki

Comments(3)


mangó sín:

já það er eikkvað skemmtilegt við þetta.... :), sko halli sinn, erað opnast...eða verða opnari .... hlustaði á allt lagið.

Úllibobb:

*not

Davíð:

Þetta lag er nú eiginlega þess virði að rekast á síðuna þína, þó það hafi verið fyrir tilstilli annarrar færslu, eilítið óskemmtilegri :)


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)