Morgan Geist, sem elskar italo (sérstaklega skrýtna dótið) rekur plötuútgáfuna Environ, er helmingur Metro Area, og hefur rímixað Telex, Erlend Öye, The Rapture og fleiri. Environ leibelið notar hann fyrir tónlist eftir sjálfan sig, og líka tilað gefa út og endurútgefa italo, annaðhvort nýja (og hreinni) pródöksjón, eða þá dót sem er out of print eða kom aldrei út.
Safnplatan hans Unclassics frá 2004 er einmitt þannig: italolög sem honum fannst skemmtileg og skrýtin, og hann fékk license fyrir þau öll! Mér finnst það magnað, þar sem að meirihluti nýrra italo-útgáfa eru bootleggar eða dót eftir höfunda sem náðist aldrei í, og útgefandinn því hugsað "fökkit" og gefið það samt út. Og þó markaðurinn fyrir italo hafi alveg stækkað á fullu er þetta samt niche, og því þarf ekkert mikið tilað kæfa hann alveg. Einn bootleg og þá eiga allir eintak.
Enníveis, eitt af pródjektunum sem Morgan Geist gaf út á Environ er Jersey Devil Social Club. Á vefsíðu Environ er saga bandsins, og mér finnst hún mjög rómantísk, svo rómantísk að ég þýddi hana á mjög ósensjúal hátt:
Bandið var stofnað í New Jersey árið 1980 af tveimur ítölskum bræðrum, og óútgefin teipin voru geymd miskláruð til ársins 2001. Dóttir annars þeirra sá um talaðar raddir (electró, skiluru) afþví að hún var með svo lítinn ítalskan hreim, og þeim til hjálpar voru tveir gaurar sem sáu um latin slagverk og voru bara kreditaðir sem "Carlos 1" og "Carlos 2".
Þetta lænöpp gerði t.d. 13 mínútna tribute af Black Devil (Bjarki...þúveist!) en bandið leystist upp árið 1984 þegar bræðurnir opnuðu pizzastaðinn Vinnie's Pizzarama, sem fagnaði 20 ára starfsafmæli 2004!!!
Ég fæ tár í augun.
Einhvernveginn tengdur þessu prójekti er Anthony Monn, mega-pródúser sem vann með og fyrir Amanda Lear og fleiri, og er einna frægastur fyrir Magnifique prójektið sitt (gaf út trilljón snilldarlög frá mjög early 70s, og pródúsaði billjón trilljónir annarra). Anthony var á sínum tíma mjög huggulegur, eiginlega blanda af Richard Branson, Wayne Coyne (söngvara Flaming Lips), og Zaphod Beeblebrox úr Hitchhiker's Guide to the Galaxy (sem er örugglega byggður á þeim fyrrnefndu hvortsemer). Sjáðu bara!
Afþví að Morgan Geist er snillingur --og það sem meira er, snillingur frá New Jersey-- gaf hann út tólftommuna "Homage at 121 BMP" með Jersey Devil Social Club. Aðallagið er fínt (í öllum sínum útgáfum) en á B-hliðinni er miklu miklu betra lag:
Jersey Devil Social Club - Italo Bassline
Og! Þetta yndislega leg verður súper yndislegt á miðri 17. sekúndu 2. mínútu þegar aðalmelódían flæðir inní. Nammi nammi nammi. Gamla góða mjúka nammi nammi nammi!
