« Ómæld virðing | Main | Hair Supply »

Harður í rigningunni

John Paul Young er hálfgert tveggja-hittara-undur. Hann er lang-lang-langfrægastur fyrir lagið sitt "Love Is In The Air", sem varð fyrst megaheimshittari 1978, og svo aftur þegar myndin "Strictly Ballroom" kom út 1992. Það hafa allir einhverntímann staðið upp úr sófanum og tekið nokkur mjaðmamúv við þetta lag, sérstaklega mamma og pabbi.

John Paul fluttist ungur frá Glasgow til Ástralíu þar sem hann fiktaði í tónlist, söng í algjörlega gleymdu rokkbandi og lék sjálfan Símon í heimalandsuppfærslunni á Jesús Kristi Ofurstjörnu, en festist svo syngjandi á sveittri knæpu í Newcastle (ekki í Ástralíu!) þangað til ástralskur pródúser fékk hann aftur heim (til Ástralíu!) og bjó til mini-hittaramaskínu úr honum.

Þegar ofurpródúserarnir Harry Vanda og George Young fluttu aftur heim til Ástralíu tóku þeir við uppeldinu. Þeir tveir eru hvað frægastir fyrir að hafa unnið með AC/DC meirihluta ferilsins þeirra (og örugglega kennt Angus Young að vera ljótur og dansa fínt). Tveimur árum áður en þetta megateymi skapaði tilfinningaskrímslið "Love Is In The Air", settust þeir niður, reimdu á sig sleipa dansskóna, horfðu útí rigninguna og bjuggu til prótótýpuna: stærri, búlduleitari, og aðeins hrárri eldri bróðurinn sem fékk nafnið "Standing In The Rain".

Lögin eru frábærlega lík, en samt svo stórkostlega ólík. Næpuhvítur salsafílingur sem skekur hvaða mjaðmir sem er, tindrandi gítar, og hamrandi tsjigga tsjigga úr öllum áttum.

Ahhhh.

John Paul Young - Standing In The Rain

Mér finnst þetta lag stórkostlegt.

Svo er auðvitað gaman að segja frá því að elskulegur John Paul Young okkar performaði í lokaathöfn Sumarólympíuleikanna árið 2000, og, það sem meira er, fór aftur í stúdíóið í fyrra tilað gera nýja plötu með Harry Vanda vini sínum. Hvað nú, skiluru, hvað nú?!

Comments(2)


ég kíkti ekkert hingað á meðan ég var úti í New York, og VEI VEI VEI VEI hvað það er margt nýtt og fallegt, ég er sérstaklega glöð með Stranger In Moscow, það er svo fín músík!!!

Ég elska þig fyrir að koma hingað og kommenta. (og fyrir að vera ýkt skemmtileg líka auðvitað...og fyrir að burðast með hlunkadót BÆÐI út til mín og heim frá mér!)

Ætlað vera duglegur að setja hingað inn. Miklu meira prog rock fyrir þig. :)


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)