« Hair Supply | Main | Grikkinn sem tekur í gikkinn »

Cortney Tidwell

Ég var búinn að lofa (sjálfum mér a.m.k.) að tala ekkert um nýja tónlist, og leyfa öllum hinum að sjá um það.

En þetta er bara svo frábært!

Ég heyrði um Cortney Tidwell í fyrrahaust frá Jóni Agnari vini mínum sem vann með mér í Virgin plötubúðinni back in the day þegar Borgarkringlan var kúl. Hann rembdist geðveikt við að troða henni uppá mig og af einhverjum fáránlegum ástæðum hlýddi ég ekki strax, en um leið og ég gerði það fattaði ég hvað platan hennar er mikil snilld.

Í staðinn fyrir að skrifa eitthvað um plötuna vil ég benda á færsluna hans.
Hún segir nákvæmlega það sem þarf að segja.

Hér eru tvö lög af plötunni hennar Don't Let Stars Keep Us Tangled Up sem kom út í fyrra:

Cortney Tidwell - Eyes at the Billions
Cortney Tidwell - La La

Og þetta eru ekki einu góðu lögin á plötunni. Treystið mér eða spyrjið bara Jón Agnar eða Óla Té. Báðir ljóshærðir og fyrrum starfsmenn í plötubúð. Pros, skiluru. Og í laginu "Society" heyrist dimm og rispuð rödd Kurt Wagners úr Lambchop. Verður betra og betra og betra og...

> Kaupa plötuna á Amazon.com
> Cortney Tidwell á mæspeis

Comments(2)


já, þetta er falleg tónlist hjá stúlkunni.

annars má ég til með að deila því með þér að pési vinur okkar kynnti mig nýlega fyrir grúbbu sem er í einu orði sagt frábær: porcupine tree (porcupinetree.com). kannski þekkirðu þá? ég þekkti þá ekki en elska þá núna.

Nei, hef ekki heyrt, en ætla að tékka á því núna. Takk Einsi!


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)