« Opnist þú Sesam | Main | The Burbank Show »

Selurinn og Lekman

elperrodelmar.jpg

Ég vildi að allir væru að hlusta á El Perro del Mar, öðru nafni Sarah Assbring, öðru nafni Sætari Á Myndum En Í Alvöru, hina sænsku kjútípæ sem spilar á öll hljóðfærin og syngur um hundaást, tilfinningar, nammi og spyr spurninganna sem maður veit ekki svörin við. Tónlistin er yndisleg blanda af blómapoppi og fólki, og röddin hennar víbrar í gegnum lögin, stundum einsog sög sem sígauni spilar á af mikilli alúð; stundum einsog litla systir þín sem krýpur fyrir framan gluggann og horfir á regnið, leið yfir msn-samtalinu sem hún átti við fyrrum kærastann sinn.

Ég ætla að sjá hana á tónleikum 1. mars, og syngja með. Komiði með.

El Perro del Mar - I Can't Talk About It
El Perro del Mar - God Knows (You Got To Give To Get)

- bæði lögin af plötunni "El Perro del Mar" frá 2006, sem ég er búinn að hlusta á aftur og aftur og aftur og aftur.


Árið 2004 gáfu El Perro del Mar og Jens Lekman (sem spilaði á Airwaves '06) saman út 12". El Perro del Mar með lagið 'Shake It Off' (sem varð aukalag á nýrri útgáfum plötunnar hennar) og svo Jens Lekman með fráááááábært lag, sem er fyrsta lagið sem lét mig langa til að hlusta á dótið hans aftur og betur og oftar.

Jens Lekman - I Don't Know If She's Worth 900 Kronor

Skemmtilegt dúddirú, flottur texti (hægt að lesa söguna bakvið hann í einhverju viðtali sem ég las einhversstaðar), og Jens í hressum fíling. Ohhh, næs.

>> Jens Lekman
>> El Perro del Mar

Comments(3)


bob:

El Perro Del Mar hefur verið mjög fyrirferðarmikið í eyrum mínum undanfarið. Gaman að sjá Kontrapunkt loga á ný í RSSinu mínu.

VÚHÚÚÚÚÚ fullt fullt fullt af nýjum færslum, áfram kontrapunkturinn

Takk takk. Veriði velkomin elsku vinir. Komið fagnandi.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)