« Gott er að gramsa. | Main | Selurinn og Lekman »

Opnist þú Sesam

Ó elsku greyið Leila K. Hin sænsk/marókkóska næntísstjarna fæddist 1971, og var því bara 18 ára þegar hún söng í laginu 'Got To Get' með félögum sínum Rob & Raz (báðir sænskir!), sem allir Íslendingar sem voru í félagsmiðstöðvum í kringum 1990 ættu að þekkja (og jafnvel muna eftir gatslitnum og út-tússuðum plötuumslögunum í fanginu á stoltum skífuþeyturum með brodda).

Eftir nokkrar smáskífur, eina breiðplötu, og aragrúa af hitturum fór aðeins að halla undir reiffætinum. Árið 1998 gerði Sænska sjónvarpið heimildarmyndina 'Fuck you, fuck you very much', sem fjallaði um feril söng- og rappdívunnar, en fókusaði á meint tapsærisviðbrögð hennar á sænsku Grammy verðlaununum árið 1996, þar sem hún átti að hafa pissað á sviðið í mikilli geðshræringu. Eftir mikið basl við sjálfa sig, peningaleysi og vinsældarleysi, flutti stjarnan á götuna, og í dag ráfar hún heimilislaus um götur Stokkhólms, klædd slitnum gallajakka og skítugum eróbikkskóm og lifir á stolnum mat og ryðgaðri þvermóðsku.

Árið 2003 kom út safnplatan Greatest Tracks, og lofaði útgefandinn að peningarnir myndu renna til Leilu, og hjálpa henni þannig að koma undir sig fótunum, og vonandi endurreisa ferilinn og enn á ný ná til allra sem vilja dansa hratt og fast. Ég hef ekki hugmynd um hvernig það fór, en vona að hún birtist feit og glansandi á sviði, og syngi hittarana sína sveitt og tárvot fyrir framan trilljón heimilisleysingja.

Mér fannst alltaf lögin 'Got to Get', 'Carousel' , útgáfan hennar af Plastic Bertrand tryllingnum 'Ca Plane Pour Moi', og 'Hello Africa' (með Dr. Alban) skemmtilegustu lögin, en það klassískasta, hraðasta og langfrægasta er auðvitað:

Leila K - Open Sesame

(gjörðu svo vel Óli minn)


Fyrir nokkrum árum rímixaði Bong Ra (hollenskur breakcore-framleiðandi, sem gerir líka tónlist undir nafninu Sucker Djs og spilar auk þess á bassa í Doom Metal bandi) lagið 'Open Sesame' og gaf á síðunni sinni. Hans útgáfa er miklu skemmtilegri en offisjal transaða útgáfan sem kom út 1999 og hét "Open Sesame 99" (nafnið er jafn ófrumlegt og útgáfan), enda er hann sniðugur kall sem gerir margt fínt.

Sucker Djs - Open Sesame Remix

Til er skemmtileg fansíða með allskonar upplýsingum um Leila K (þ.m.t. næstum allt sem ég veit um hana), myndum, vídjóum, og meiraðsegja spjallþræði. Allir að skrá sig!
>> Fansíða Leila K


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)