
Monie Love hefur alltaf verið hreina og hressa breska rappgellan. Hún tsjillaði með Q-Tip, TruGoy og Afrika Bambaata í Native Tongues Posse í gamla daga, og rappaði þar um hamingju, sólskin, hreina Jordan skó, og breið bros í Afríku. Eftir að hafa verið smá til hliðar í vídjóunum þeirra og rappað með Queen Latifah fékk hún plötusamning, og er langfrægust fyrir lagið 'It's A Shame (My Sister)' (syngið nú: "it's a shaaajj-aaajjj-aame, the way you mess around with my heart..." o.s.frv.), sem flestir muna eftir á Now! og Hits! safnplötunum sem voru til í flestum betri plötusnúðabúrum félagsmiðstöðva.
Á síðasta ári hætti hún sem útvarpskona í Philly, og --það sem mér finnst ótrúlega fyndið-- hún er litla systir teknótröllsins Dave Angel! Magnað. Soldið einsog Valdís Gunnars, ef Valdís þrumaði út feitum hamingjurímum og væri litla systir Þórhalls Skúlasonar.
Árið 1990 keypti ég "The Sound of Cooltempo", safnplötu frá útgáfunni Cooltempo (sem gaf m.a. annars út Adeva, Gang Starr, Arrested Development og allskonar dóterí). Þetta var einn af mínum fyrstu geisladiskum og í fyrsta skiptið sem ég heyrði um og í Monie Love. Það er heeeeellingur af frábærum lögum á disknum með t.d. Savannah, Innocence og D-Shake, en Monie Love lagið var og er uppáhaldið mitt.
Monie Love - Don't Funk Wid The Mo
p.s. rakst á eftirfarandi upplýsingar:"Love is also an Official MySpace.com DJ, according to her MySpace page."
Þegar maður er kominn á toppinn þá verður maður að byggja turn. Og Monie hefur byggt turn, og klifrað uppá þak.