
Ég hef verið að fara í gegnum tónlistina mína. Þetta er eitthvað sem ég geri allt of sjaldan en þegar ég geri það þá finn ég alltaf eitthvað sniðugt. Ég finn líka margt sem er ööööömurlegt og ef það er á tölvutæku þá sendi ég það í ruslið. Eftirtalið fann ég aftur:
Ég eignaðist mix-disk með rapparanum El-P. Diskurinn heitir "Weareallgoingtoburninhell". Þetta er samansafn af lögum sem honum finnst vera merkileg. Þau eru öll lík á þann máta að þau eru pólitísk. Þetta er mest hiphop en inn á milli eru lög sem eru það ekki. Lagið Fuck All er t.d. ekki eitt af þeim. Ég hef leitað af flytjanda en ekkert fundið. Þetta er gömul upptaka sem minnir mig mest á The Singing Nun sem söng lagið Dominique. Ég er búinn að taka þann pól í hæðina að segja að þetta lag hafi verið B-hliðin á smáskífunni hennar.
Ég verð að segja ykkur að þessi blessaða nunna sem söng Dominique hét Jeanine Deckers og hélt til í klaustri í Belgíu í einhvern tíma. Hún varð svo vinsæl í klaustrinu að hinar nunnurnar hvöttu hana til að gefa út plötu. Allir þekkja lagið og hún varð brjálað vinsæl og það var gert bíó sem var að vísu ekki sannsögulegt. Hún hætti síðan að spila og snéri sér að trúnni en tók sér samt stöðu með getnaðarvörnum.
Hún og lífsförunautur hennar Annie Pécher opnuðu skóla fyrir andlega veik börn. Þær klikkuðu á að borga skatta og stjórnvöld í Belgíu hótuðu að kæra þær. Allt var komið í drasl hjá þeim svo að þær drápu sig með pillum og búsi. Mjög smart af nunnu.
Ég veit ekki hvort ég á hlægja að þessu eða finnast þetta agalegt.
El-P - Fuck All
Proper Dos er mexíkanarpap eins og það gerist hressast. Ég man að Biggó út Kópavognum átti þessa plötu. Biggó var maður sem átti mikið af góðu stöffi og þegar hann lét mig fá mixtape var þetta lag á henni og ég man að mér, Halla, Hring og Danna fannst þetta hresst. Talandi um Biggó, hann var svo góður að Dj-a 1992 og var að gera hluti þá sem fólk gerði ekki fyrr en 1997 eða jafnvel seinna.
Proper Dos - Firme Hina
The Goats er ein af þessu hljómsveitum sem gleymast. Þetta voru menn sem hötuðu Bush eldri, elskuðu að reykja gras og smakka á hinum og þessum ofskynjunarlyfjum. Þeir börðust á móti rasisma og voru rosalega rétt hugsandi. Þeir eru hættir í dag enn eiga tvær plötur sem eru fínar. Í dag er einn af þeim að kenna efna og eðlisfræði í New York, einn býr í frakklandi og einn er týndur. Já það sást til hans síðast 15.maí 2001. Hressandi.
The Goats - Not Your Typical American
Vanity 6 var stelpuband sem Prince stjórnaði eins og Helga Steffensen stjórnaði sokkapanum Lilla. Þetta voru þrjár gellur sem klæddu sig í nærföt og skelltu sér á svið. Þetta var svona electro popp sem Prince var að leika sér með á þessum tíma. Tékkið bara á Nasty Girl video-inu.
Stelpur ég hvet ykkur að skella ykkur út í þennann pakka. Þótt þú kunnir bara á blokkflautu eða básúnu þá nenna ég og fleiriað horfa ef þið eruð eins og Vanity 6.
Vanity 6 - Make Up
Ég veit ekkert um hljómsveitina Your Place Or Mine. Ég var einu sinni á Soulseek og fór að tala við stelpu sem átti heima í usa. Hún var að tala við mig um Herman Dune ofl og sagði mér síðan að tékka á þessu dóti. Þetta er demo upptaka svo þetta hefur ekki verið gefið út held ég. Þetta er samt frábært lag sem heitir Oh, how I spend my days.
Your Place Or Mine - Oh, How I Spend My Days
Comments(7)
Geðveikt!
Vissiru að Vanity var með Nikki Sixx úr Mötley Crüe?
Dræsan!
Written 04.10.06 03:49
Vanity 6 breytti samt lífi mínu og það er fátt jafn fallegt og að sjá Njörð dilla sér og raula vanity slagara, það eru eiginlega of margir fallegir heimar að mætast í einu
Written 05.10.06 09:33
Ekki jafn fallegt og að sjá Njörð þamba djús.
Það er magnað.
Hann tekur bara einhverja heimafyllta 2ja lítra plastflösku, þjösnar tappanum af, færir svo stútinn í átt að munnopinu og horfir beint í augun á mér, og svo störumst við í bílnum hans. Það eina sem heyrist er "glúgg, glúgg, glúgg"...
...í 5 sekúndur. Þá er flaskan tóm! Og þá sleppir hann þessu augnaráði.
Þetta er fallegt.
Written 06.10.06 09:13
Vanity úr Vanity 6 er meiraðsegja klikkaðasta manneskjan í The Dirt, bókinni um Mötley Crüe. Hún er talsvert rokkaðri en bæði Tommy Lee og Nikki Sixx.
Annars er ég frekar svekktur að þú póstaðir svo ekki Dominique.
Written 11.10.06 13:33
Vá hugsa sér að einhver skuli muna eftir manni. Sniff, sniff hlýna nú hjartarætur gamals manns á köldu vetrarkvöldi. Ég átti bara heima í kópó í 2-3 ár ég er gabblari mar...
Written 17.10.06 11:18
Biggó: muna eftir þér? Þú varst kóngurinn.
Ert. Varst. Þúveist.
Manstu þegar við komum einhverntímann í heimsókn til þín og vorum með knallettubyssu (don't ask!), og skutum á einhvern hund sem fleygði sér ýlfrandi í jörðina?
Sjiit. Good times.
Written 21.10.06 05:36
sjæse, þú góður í "muninu". Minni ppls á að minns var með fyrsta rapþátt í útvarpi ca.88 eða 89 gekk í 2 ár áður en útvarp rót gekk sér til húðar. respect byeetchezzz. Halli geggjuð síða, þú ert drengurinn.
Written 02.11.06 15:45