
Ég varað gramsa eftir (vonandi) skrýtnum soundtrökkum, og rakst á tónlistina við Dario Argento myndina "Suspiria". Tónlistin var eftir ítalska progrock bandið Goblin (sem ég hafði aldrei heyrt um), og eftir að ég las mér til um þá hressu gaura (þeir voru margir og hressir) sá ég að þeir voru margir sessjóngaurar sem spiluðu í allskonar böndum.
Einn af þeim var trommarinn Walter Martino, sem spilaði með Goblin í öðru Dario Argento soundtrakki, "Profondo Rosso". Hann trommaði í allskonar böndum og fiktaði við allskonar tónlist: prog rock, horror soundtrökk, og italo disco!
Eftir meira grams fattaði ég að hann trommaði í geðveiku lagi með bandinu Blue Night, sem, eftir því sem ég best veit, gaf bara út eina plötu árið 1983. Þetta lag er búið að vera uppáhalds mjög lengi, og það er mér mikill heiður að heiðra Kontrapunkt með þessu heiðurslagi.

Blue Night - Turn Me Loose
- af plötunni Turn Me Loose, frá 1983.
Þetta lag er 13 mínútur og svo ótrúlega fínt! Hin fullkomna blanda af dreamy rokki, italo, fusion, og með smá Ryan Paris - Bryan Ferry - Kennedy ('Who's Lovin Your Mama?") kryddi sáldruðu yfir, bara til bragðauka. Eftir ca 7 mínútur kemur hækkun (er hægt að biðja um meira?) og söngurinn verður aðeins angurværari, og textinn borar sig dýpra inní hjartað og minningar fölskvalausar fortíðar. Eða þúveist.
Rípít!!!
Comments(3)
ég hef alltaf haft mikla fordóma fyrir prog-i. Einu sinni var ég skotin í strák því mér fannst hann vera svo svalur að vera í alvöru hljómsveit, en hann var alltaf að spila fyrir mig eitthvað með prog hljómsveitinni sinni sem engin skildi því tónlistin var svo djúp. Síðan hef ég forðast prog og allt fólk sem kann á hljóðfæri
Written 26.01.07 09:47
Ekki kannski fólk sem spilar fólk sem kann á hljóðfæri?
Written 26.01.07 18:47
Og Kamilla, þetta lag er sko ekki prog. Þetta er hádramatískur tilfinningavellingur, sísonaður með italo, rúllandi hrynjanda og loks bakaður undir glóandi synthesizerbylgjum.
Written 26.01.07 18:57