« október 2006 | Aðalsíða | febrúar 2007 »

janúar 2007 Safn

28. janúar, 2007

Savage

Savage heitir réttu nafni Roberto Zanetti, og er miðaldra ítali sem er búinn að gera allskonar tónlist undir allskonar nöfnum. Þegar hann var 22ja átti hann sinn fyrsta hittara, lagið 'Souvenir' með hljómsveitinni Santarosa (ekki sama lag og með Nicky & Nicky, eða OMD), en er annars frægastur fyrir hæga italo hittarann 'Don't Cry Tonight', sem hægt er að finna á næstum öllum italo safnplötum sem gefnar hafa verið út. Já, það er ÞAÐ vinsælt! Nuj!

Lagið að neðan finnst mér samt miklu betra en 'Don't Cry Tonight'. Það byrjar dáldið dreamy, gæti verið Michael Jackson, gæti verið Heimsfriðarlag, gæti verið týnd Toto b-hlið, gæti verið LaToya Jackson...svo brýst það útí hrynjandi sem Ben Liebrand yrði stoltur af, og áður en þú veist af ertu kominn á bólakaf inní tilfinningaglauminn. Og textinn er to die for.

Savage - A Love Again

A Love Again...
...Tonight...
Loving Far Away...
...So Far Away...
A Love Again...
Tonight...Tonight...Tonight...

26. janúar, 2007

Monie Love

Monie Love hefur alltaf verið hreina og hressa breska rappgellan. Hún tsjillaði með Q-Tip, TruGoy og Afrika Bambaata í Native Tongues Posse í gamla daga, og rappaði þar um hamingju, sólskin, hreina Jordan skó, og breið bros í Afríku. Eftir að hafa verið smá til hliðar í vídjóunum þeirra og rappað með Queen Latifah fékk hún plötusamning, og er langfrægust fyrir lagið 'It's A Shame (My Sister)' (syngið nú: "it's a shaaajj-aaajjj-aame, the way you mess around with my heart..." o.s.frv.), sem flestir muna eftir á Now! og Hits! safnplötunum sem voru til í flestum betri plötusnúðabúrum félagsmiðstöðva.

Á síðasta ári hætti hún sem útvarpskona í Philly, og --það sem mér finnst ótrúlega fyndið-- hún er litla systir teknótröllsins Dave Angel! Magnað. Soldið einsog Valdís Gunnars, ef Valdís þrumaði út feitum hamingjurímum og væri litla systir Þórhalls Skúlasonar.

Árið 1990 keypti ég "The Sound of Cooltempo", safnplötu frá útgáfunni Cooltempo (sem gaf m.a. annars út Adeva, Gang Starr, Arrested Development og allskonar dóterí). Þetta var einn af mínum fyrstu geisladiskum og í fyrsta skiptið sem ég heyrði um og í Monie Love. Það er heeeeellingur af frábærum lögum á disknum með t.d. Savannah, Innocence og D-Shake, en Monie Love lagið var og er uppáhaldið mitt.

Monie Love - Don't Funk Wid The Mo

p.s. rakst á eftirfarandi upplýsingar:"Love is also an Official MySpace.com DJ, according to her MySpace page."

Þegar maður er kominn á toppinn þá verður maður að byggja turn. Og Monie hefur byggt turn, og klifrað uppá þak.

25. janúar, 2007

Elsku Goblin, slepptu mér lausum um blánótt

Ég varað gramsa eftir (vonandi) skrýtnum soundtrökkum, og rakst á tónlistina við Dario Argento myndina "Suspiria". Tónlistin var eftir ítalska progrock bandið Goblin (sem ég hafði aldrei heyrt um), og eftir að ég las mér til um þá hressu gaura (þeir voru margir og hressir) sá ég að þeir voru margir sessjóngaurar sem spiluðu í allskonar böndum.

Einn af þeim var trommarinn Walter Martino, sem spilaði með Goblin í öðru Dario Argento soundtrakki, "Profondo Rosso". Hann trommaði í allskonar böndum og fiktaði við allskonar tónlist: prog rock, horror soundtrökk, og italo disco!

Eftir meira grams fattaði ég að hann trommaði í geðveiku lagi með bandinu Blue Night, sem, eftir því sem ég best veit, gaf bara út eina plötu árið 1983. Þetta lag er búið að vera uppáhalds mjög lengi, og það er mér mikill heiður að heiðra Kontrapunkt með þessu heiðurslagi.

Blue Night - Turn Me Loose

- af plötunni Turn Me Loose, frá 1983.

Þetta lag er 13 mínútur og svo ótrúlega fínt! Hin fullkomna blanda af dreamy rokki, italo, fusion, og með smá Ryan Paris - Bryan Ferry - Kennedy ('Who's Lovin Your Mama?") kryddi sáldruðu yfir, bara til bragðauka. Eftir ca 7 mínútur kemur hækkun (er hægt að biðja um meira?) og söngurinn verður aðeins angurværari, og textinn borar sig dýpra inní hjartað og minningar fölskvalausar fortíðar. Eða þúveist.

Rípít!!!

24. janúar, 2007

The Burbank Show

Ein af mínum uppáhalds plötuútgáfum, Planet Mu, sem rekin er af einum af mínum uppáhalds tónlistarmönnum fyrr og síðar, Mike Paradinas (µ-ZIQ, Gary Moscheles, Kid Spatula, o.fl.) gaf nýlega út plötu með Tom Burbank, "Famous First Words", sem er skringilega skemmtilega góð. Ekki skringilega afþví að ég bjóst ekki við því --þó að ég hafi í rauninni ekkert vitað hvað ég varað farað heyra-- heldur skringilega útafþví að hún er dáldið útumallt og allskonar. Stundum melódískt hip hop, stundum smá grime, stundum smá Amon Tobin, stundum smá Buck 65, stundum smá Jackson & His Computer Band, stundum bara eitthvað...ekki misskilja mig, þetta er alltaf Tom Burbank, en stíllinn er svo skemmtilega héðan og þaðan...ekki stolið...ekki samplað...en fittar einhversstaðar í miðjunni...svona svipað og Jim Noir fittar á milli Beach Boys og Ian Brown. Skiluru?

tomburbankfamousfirstwords.jpg

Tom Burbank - Baghdad Mood
Tom Burbank - Gnats

- bæði lögin af plötunni "Famous First Words" frá Planet Mu, 2006.

Og afþví að allir sem eru kúl eru á mæspeis, þá er Tom Burbank líka á Myspace.

23. janúar, 2007

Selurinn og Lekman

elperrodelmar.jpg

Ég vildi að allir væru að hlusta á El Perro del Mar, öðru nafni Sarah Assbring, öðru nafni Sætari Á Myndum En Í Alvöru, hina sænsku kjútípæ sem spilar á öll hljóðfærin og syngur um hundaást, tilfinningar, nammi og spyr spurninganna sem maður veit ekki svörin við. Tónlistin er yndisleg blanda af blómapoppi og fólki, og röddin hennar víbrar í gegnum lögin, stundum einsog sög sem sígauni spilar á af mikilli alúð; stundum einsog litla systir þín sem krýpur fyrir framan gluggann og horfir á regnið, leið yfir msn-samtalinu sem hún átti við fyrrum kærastann sinn.

Ég ætla að sjá hana á tónleikum 1. mars, og syngja með. Komiði með.

El Perro del Mar - I Can't Talk About It
El Perro del Mar - God Knows (You Got To Give To Get)

- bæði lögin af plötunni "El Perro del Mar" frá 2006, sem ég er búinn að hlusta á aftur og aftur og aftur og aftur.


Árið 2004 gáfu El Perro del Mar og Jens Lekman (sem spilaði á Airwaves '06) saman út 12". El Perro del Mar með lagið 'Shake It Off' (sem varð aukalag á nýrri útgáfum plötunnar hennar) og svo Jens Lekman með fráááááábært lag, sem er fyrsta lagið sem lét mig langa til að hlusta á dótið hans aftur og betur og oftar.

Jens Lekman - I Don't Know If She's Worth 900 Kronor

Skemmtilegt dúddirú, flottur texti (hægt að lesa söguna bakvið hann í einhverju viðtali sem ég las einhversstaðar), og Jens í hressum fíling. Ohhh, næs.

>> Jens Lekman
>> El Perro del Mar

Opnist þú Sesam

Ó elsku greyið Leila K. Hin sænsk/marókkóska næntísstjarna fæddist 1971, og var því bara 18 ára þegar hún söng í laginu 'Got To Get' með félögum sínum Rob & Raz (báðir sænskir!), sem allir Íslendingar sem voru í félagsmiðstöðvum í kringum 1990 ættu að þekkja (og jafnvel muna eftir gatslitnum og út-tússuðum plötuumslögunum í fanginu á stoltum skífuþeyturum með brodda).

Eftir nokkrar smáskífur, eina breiðplötu, og aragrúa af hitturum fór aðeins að halla undir reiffætinum. Árið 1998 gerði Sænska sjónvarpið heimildarmyndina 'Fuck you, fuck you very much', sem fjallaði um feril söng- og rappdívunnar, en fókusaði á meint tapsærisviðbrögð hennar á sænsku Grammy verðlaununum árið 1996, þar sem hún átti að hafa pissað á sviðið í mikilli geðshræringu. Eftir mikið basl við sjálfa sig, peningaleysi og vinsældarleysi, flutti stjarnan á götuna, og í dag ráfar hún heimilislaus um götur Stokkhólms, klædd slitnum gallajakka og skítugum eróbikkskóm og lifir á stolnum mat og ryðgaðri þvermóðsku.

Árið 2003 kom út safnplatan Greatest Tracks, og lofaði útgefandinn að peningarnir myndu renna til Leilu, og hjálpa henni þannig að koma undir sig fótunum, og vonandi endurreisa ferilinn og enn á ný ná til allra sem vilja dansa hratt og fast. Ég hef ekki hugmynd um hvernig það fór, en vona að hún birtist feit og glansandi á sviði, og syngi hittarana sína sveitt og tárvot fyrir framan trilljón heimilisleysingja.

Mér fannst alltaf lögin 'Got to Get', 'Carousel' , útgáfan hennar af Plastic Bertrand tryllingnum 'Ca Plane Pour Moi', og 'Hello Africa' (með Dr. Alban) skemmtilegustu lögin, en það klassískasta, hraðasta og langfrægasta er auðvitað:

Leila K - Open Sesame

(gjörðu svo vel Óli minn)


Fyrir nokkrum árum rímixaði Bong Ra (hollenskur breakcore-framleiðandi, sem gerir líka tónlist undir nafninu Sucker Djs og spilar auk þess á bassa í Doom Metal bandi) lagið 'Open Sesame' og gaf á síðunni sinni. Hans útgáfa er miklu skemmtilegri en offisjal transaða útgáfan sem kom út 1999 og hét "Open Sesame 99" (nafnið er jafn ófrumlegt og útgáfan), enda er hann sniðugur kall sem gerir margt fínt.

Sucker Djs - Open Sesame Remix

Til er skemmtileg fansíða með allskonar upplýsingum um Leila K (þ.m.t. næstum allt sem ég veit um hana), myndum, vídjóum, og meiraðsegja spjallþræði. Allir að skrá sig!
>> Fansíða Leila K

1. janúar, 2007

Gott er að gramsa.

Vanity6.jpg

Ég hef verið að fara í gegnum tónlistina mína. Þetta er eitthvað sem ég geri allt of sjaldan en þegar ég geri það þá finn ég alltaf eitthvað sniðugt. Ég finn líka margt sem er ööööömurlegt og ef það er á tölvutæku þá sendi ég það í ruslið. Eftirtalið fann ég aftur:

Ég eignaðist mix-disk með rapparanum El-P. Diskurinn heitir "Weareallgoingtoburninhell". Þetta er samansafn af lögum sem honum finnst vera merkileg. Þau eru öll lík á þann máta að þau eru pólitísk. Þetta er mest hiphop en inn á milli eru lög sem eru það ekki. Lagið Fuck All er t.d. ekki eitt af þeim. Ég hef leitað af flytjanda en ekkert fundið. Þetta er gömul upptaka sem minnir mig mest á The Singing Nun sem söng lagið Dominique. Ég er búinn að taka þann pól í hæðina að segja að þetta lag hafi verið B-hliðin á smáskífunni hennar.

Ég verð að segja ykkur að þessi blessaða nunna sem söng Dominique hét Jeanine Deckers og hélt til í klaustri í Belgíu í einhvern tíma. Hún varð svo vinsæl í klaustrinu að hinar nunnurnar hvöttu hana til að gefa út plötu. Allir þekkja lagið og hún varð brjálað vinsæl og það var gert bíó sem var að vísu ekki sannsögulegt. Hún hætti síðan að spila og snéri sér að trúnni en tók sér samt stöðu með getnaðarvörnum.
Hún og lífsförunautur hennar Annie Pécher opnuðu skóla fyrir andlega veik börn. Þær klikkuðu á að borga skatta og stjórnvöld í Belgíu hótuðu að kæra þær. Allt var komið í drasl hjá þeim svo að þær drápu sig með pillum og búsi. Mjög smart af nunnu.
Ég veit ekki hvort ég á hlægja að þessu eða finnast þetta agalegt.

El-P - Fuck All

Proper Dos er mexíkanarpap eins og það gerist hressast. Ég man að Biggó út Kópavognum átti þessa plötu. Biggó var maður sem átti mikið af góðu stöffi og þegar hann lét mig fá mixtape var þetta lag á henni og ég man að mér, Halla, Hring og Danna fannst þetta hresst. Talandi um Biggó, hann var svo góður að Dj-a 1992 og var að gera hluti þá sem fólk gerði ekki fyrr en 1997 eða jafnvel seinna.

Proper Dos - Firme Hina


The Goats er ein af þessu hljómsveitum sem gleymast. Þetta voru menn sem hötuðu Bush eldri, elskuðu að reykja gras og smakka á hinum og þessum ofskynjunarlyfjum. Þeir börðust á móti rasisma og voru rosalega rétt hugsandi. Þeir eru hættir í dag enn eiga tvær plötur sem eru fínar. Í dag er einn af þeim að kenna efna og eðlisfræði í New York, einn býr í frakklandi og einn er týndur. Já það sást til hans síðast 15.maí 2001. Hressandi.

The Goats - Not Your Typical American


Vanity 6 var stelpuband sem Prince stjórnaði eins og Helga Steffensen stjórnaði sokkapanum Lilla. Þetta voru þrjár gellur sem klæddu sig í nærföt og skelltu sér á svið. Þetta var svona electro popp sem Prince var að leika sér með á þessum tíma. Tékkið bara á Nasty Girl video-inu.
Stelpur ég hvet ykkur að skella ykkur út í þennann pakka. Þótt þú kunnir bara á blokkflautu eða básúnu þá nenna ég og fleiriað horfa ef þið eruð eins og Vanity 6.

Vanity 6 - Make Up


Ég veit ekkert um hljómsveitina Your Place Or Mine. Ég var einu sinni á Soulseek og fór að tala við stelpu sem átti heima í usa. Hún var að tala við mig um Herman Dune ofl og sagði mér síðan að tékka á þessu dóti. Þetta er demo upptaka svo þetta hefur ekki verið gefið út held ég. Þetta er samt frábært lag sem heitir Oh, how I spend my days.

Your Place Or Mine - Oh, How I Spend My Days

Um janúar 2007

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in janúar 2007. They are listed from oldest to newest.

október 2006 is the previous archive.

febrúar 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31