Jóhann Jóhannsson

Jóhann Jóhannsson, sem er einn klárasti tónlistarmaður sem Ísland og alheimurinn hafa orpið, er loksins að gefa út nýja plötu í lok október (og þá fyrstu í gegnum 4AD).
Ég er búinn að hlusta mikið á allt sem hann hefur gefið út: sólóefnið, Apparat Organ Quartet (auðvitað), og svo Kitchen Motors. "Johann Johannsons new disc is in residence in the CD player" sagði snillingurinn Max Richter einhverntímann, og ég hugsa að hann sé ennþá á rípít.
Nýja platan hans Jóhanns heitir "IBM 1401 A User’s Manual" og er hans forntölvuóður með fjölskyldubragði. Platan inniheldur fimm lög og kemur út í kringum 30. október, en 9. október kemur út tveggja laga smáskífa (sjá neðar). Af Beggar's Group síðunni (sem dreifa 4AD í USA) kemur eftirfarandi lýsing, sem er óþarfi að þýða:
"Based upon work his father, Jóhann Gunnarsson, did back in 1964 when chief maintenance engineer of one of the country’s first computers, it was originally written for a string quartet, organ and electronics and to accompany a dance piece by long-standing collaborator friend, Erna Ómarsdóttir. For the album recording, Johann has rewritten it for a sixty-piece string orchestra , adding a new final movement and incorporating electronics and vintage reel-to-reel recordings of a singing IBM 1401 mainframe computer found in his father’s attic."
Ohh, æði.
Á vefsíðu plötunnar, ausersmanual.com skrifar Jóhann nánari skýrslu (sem er skemmtileg).
"The Sun's Gone Dim and the Sky's Turned Black" er síðasta lagið á plötunni og fyrsta lagið á samnefndri smáskífu. Þetta er eitthvað það allra fallegasta, sterkasta, flottasta, dýpsta o.s.frv. tónverk sem ég hef heyrt lengi, lengi, lengi. Ég sat inní stofu að hlusta, og stóð upp þegar gæsahúðin kýldi sér leið í gegnum húðina, labbaði að hátölurunum og stóð þar með tár í augunum.
Jóhann Jóhannsson - The Sun's Gone Dim and the Sky's Turned Black
Lag nr. 5 af plötunni "IBM 1401 A User’s Manual" sem þú ætlar að kaupa hér. Smáskífuna ætlar þú svo að kaupa hér.
Hér er svo hægt að stríma allri plötunni í heild sinni.
Takk Jói.