Angurvært skaðræði í þágu vitsmuna
Þegar fyrsta gargið kom hélt ég að það hefði verið keyrt á unglingsstelpu.
Svo kom annað garg, og ég hélt að það hefði verið keyrt á vin hennar.
Svo kom enn annað og hærra garg, og ég hélt að það hefði verið keyrt á allan vinahópinn hennar og hún væri sú eina sem hefði sloppið, en sæi ekki tilganginn með því að lifa.
Svo hélt ég að villtir úlfar væru að rífa hana í sig. Eða trylltir fílar að stappa á henni. Eða nokkur geitungabú. Jafnvel sólstungið villisvín.
Svo hélt ég að hún væri bara ráðvilltur úllingur að búa til læti, með smá magnýl og landasull í maganum.
En svo var þetta bara eitthvað úllingaband að spila þessa fínu músík í tilefni dagsins. Menningin, þúveist, hún er trikkí.