« Hoppt'í minn bíl! | Main | Baden-Powell og Baden Powell »

Legina Spencie

Regina Spektor er ágætlega skemmtileg anti-fólks jaðarsöngkona, en þeim mun skemmtilegri karakter. Á milli laga eru tónleikagestir brosandi og hlæjandi, og váandi og aah-andi þegar hún svo spilar og syngur. En þó hún sé skemmtileg þá eru mestu (og bestu) áhrifin þegar maður heyrir í henni í fyrsta skipti. Dáldið dramatískt píanóhamrið og flotta og örugga röddin hennar verða nefnilega að fínni músík.

En þó, ég hef séð hana spila þrisvar: fyrsta skiptið var æði, í annað skiptið var mér farið að leiðast eftir nokkur lög, og í síðasta skiptið (þar sem hún var aðalnúmerið á eftir hinum frábæru DeVotchka!) gat ég ekki meira en tvö lög og fór bara heim. Og hef ekki nennt að hlusta á hana síðan.

Þó hún sé hvorki gríðarlega skrýtin né ótrúlega spes þá er hún samt þannig spes að ég þoli bara pínuskammt einusinni á ári eða sjaldnar -- svona einsog te með hunangi, því hunangsbragðið (þó ljúffengt) verður einhvernveginn svo yfirþyrmandi að ég get ekki kyngt meira en einum bolla (og gretti mig smá).

ENNÍVEIS, Regina er með nýja plötu, Begin to Hope, sem ég ætla ekki að hlusta á.

Það sem mér finnst merkilegt við þessa plötu er koverið. Markaðsöflin hafa teygt krumlurnar yfir Atlantshafið, og í hárbeittri tilraun til að meika það almennilega hefur Reginu verið umbreytt í sjálfa Leoncie:

Legina Spencie

Kannski eiga þær meira sameiginlegt en dökku lökkana sem falla ó svo mjúklega á axlirnar og niður á barminn. Spila báðar á píanó, fá tónleikagesti til að hlæja, og eru með víbrandi rödd.

Satt.

Comments(4)


mangó sín:

oooo.....

en mangó sín, hún var skemmtileg í fyrsta skiptið, manstu!

Njörður:

Mér finnst hún frábær en að vísu hef ekki séð hana á tónleikum.

Nýja platan er skemmtileg svo hlustaðu á hana.

Það er alltaf verið að blasta hana á Kiss FM svo ef þú átt ekki diskinn getur þú heyrt hana þar.

Njörður: einmitt það sem ég meina. Hún var ekkert vinsæl nema hjá þeim sem "vissu", og til að verða vinsæl hjá þeim sem vita ekki neitt og komast á KissFM fær hún sér vind í hárið og brjóstaskoru. Ullabjakk.

Kannski er platan fín, en ég gæti alveg eins hlustað á Gwen.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)