
Í dag eru allir að horfa á Magna, a/k/a The Magnum a/k/a El Magneto, að standa sig einsog hetju í Rock Star Supernova. (meira um það síðar)
Á Íslandi er annar og betur falinn fjársjóður. Ég rakst á þennan óslípaða demant fyrir nokkrum mánuðum þar sem hann lá í leyni sínu á vefsíðu Músíktilrauna og hélt í sér andanum. Hann býr yfir fágætri þekkingu á tónsmíðum, og hefur þvílíkt vald á ljóðrænni ensku að mannskepnan á erfitt með að greina listina. Æj, þið skiljið.
Hann heitir Matz Anderson og er singer/songwriter frá Svíþjóð. Hann segir sjálfur:
Hi! My name is Matz and I'm born in Sweden. I've been playing and writing music since i was 13 but this is my first acoustic demo, which i recorded in Bundaberg (Qld Australia). It all started around 2 years ago when i quit my band and left Sweden so it felt pretty natural to become a singer & songwriter. My songs are about Travelling, Loneliness, short romances and nasty hangovers. I just moved to Reykjavik a couple of months ago. so i'm afraid i can't speak icelandic yet.
En þið þurfið ekki að hræðast neitt, þvílík er snilldin.
Hér eru lögin tvö: Lag #1 og Lag #2
Í Gvuðsins bænum, spilið hátt, hlustið VEL á orðin og skoðið síðuna hans.
Það er eitt sem við vinirnir vorum strax vissir um að myndi gerast, og er án efa löngu byrjað: nú þegar The Magnum er mættur í Rock Star þáttinn þá munu mjög margir segja efirfarandi:
Jah, sko, ég fílaði alltaf Magna. Hann var alltaf kúl, sko. Á Móti Sól var kannski ekki alveg minn tebolli, þúveist, en Magni sko, hann gat alltaf sungið og ég vissi alltaf að hans biði eitthvað stærra og betra. Magni er kúl, þú sérð það alveg í þættinum. Ég skil ekki fólk sem er að dissa hann...
Þið vitið hvað við meinum, og þið eruð örugglega búin að heyra þetta. En ef einhver sem les þetta hefur sagt þessi orð þá bið ég viðkomandi allra náðarsamlegast að kommenta á þessa færslu og nefna þrjú lög með Á Móti Sól -- án þess að nota neitt annað en hausinn. Ekkert Google, engin sms, bara Magna-dýrkunin sem þið voruð að flagga. Lúðar.
Comments(8)
Hef sagt þessi orð en eru þetta ekki lög með ÁMS:
Töfrandi tungslsteinar augun þín eru
Freknótt og fjallmyndarleg
Súrt, sætt en seiðandi
??
Written 14.07.06 01:16
Heh, örugglega.
Annars hef ég allaf fílað Magna...
Written 14.07.06 01:23
Á móti sól er eitt það versta sem komið hefur fyrir íslenska tónlistarsögu að mínu mati.
Hann Magni er ekki á heimavelli þarna í Rokkstjörnuþættinum (þrátt fyrir að hafa staðið sig ágætlega í þætti númer tvö) og verður þar eins lengi (eða stutt) og hann getur flogið undir fake ratarinn.
Ef hann er svona mikil rokkstjarna af hverju var hann þá ekki í rokkhljómsveit hérna á Íslandi?
Written 14.07.06 10:00
Rétt.
Written 14.07.06 13:52
ég ellllllllska magna og finnst hann frábær rokkstjarna (ég elska rokk)
keyrðu mig heim ég er fullur
afmælislagið
og djöfull er ég flottur
Written 14.07.06 15:43
shit hvað þú ert ruglaður drengur, magni hefur alltaf verið kúl. þú átt eftir að fíla hann eins og við hin þegar hann vinnur ROCKSTAR
Written 19.07.06 11:36
Halli, þetta er bara öfund í þér. Neikvæðar hugsanir kalla á neikvætt karma. Magni og Guð munu refsa þér fyrir að dissa kallinn.
Enda eru hann og Kjarval af sömu slóðum. Og fátt guðdómlegra en Kjarvalsverk...!!!
Written 19.07.06 21:52
Var ekki að dissa neinn. Held með þeim öllum.
Written 22.07.06 19:40