« maí 2006 | Aðalsíða | ágúst 2006 »

júlí 2006 Safn

27. júlí, 2006

Legina Spencie

Regina Spektor er ágætlega skemmtileg anti-fólks jaðarsöngkona, en þeim mun skemmtilegri karakter. Á milli laga eru tónleikagestir brosandi og hlæjandi, og váandi og aah-andi þegar hún svo spilar og syngur. En þó hún sé skemmtileg þá eru mestu (og bestu) áhrifin þegar maður heyrir í henni í fyrsta skipti. Dáldið dramatískt píanóhamrið og flotta og örugga röddin hennar verða nefnilega að fínni músík.

En þó, ég hef séð hana spila þrisvar: fyrsta skiptið var æði, í annað skiptið var mér farið að leiðast eftir nokkur lög, og í síðasta skiptið (þar sem hún var aðalnúmerið á eftir hinum frábæru DeVotchka!) gat ég ekki meira en tvö lög og fór bara heim. Og hef ekki nennt að hlusta á hana síðan.

Þó hún sé hvorki gríðarlega skrýtin né ótrúlega spes þá er hún samt þannig spes að ég þoli bara pínuskammt einusinni á ári eða sjaldnar -- svona einsog te með hunangi, því hunangsbragðið (þó ljúffengt) verður einhvernveginn svo yfirþyrmandi að ég get ekki kyngt meira en einum bolla (og gretti mig smá).

ENNÍVEIS, Regina er með nýja plötu, Begin to Hope, sem ég ætla ekki að hlusta á.

Það sem mér finnst merkilegt við þessa plötu er koverið. Markaðsöflin hafa teygt krumlurnar yfir Atlantshafið, og í hárbeittri tilraun til að meika það almennilega hefur Reginu verið umbreytt í sjálfa Leoncie:

Legina Spencie

Kannski eiga þær meira sameiginlegt en dökku lökkana sem falla ó svo mjúklega á axlirnar og niður á barminn. Spila báðar á píanó, fá tónleikagesti til að hlæja, og eru með víbrandi rödd.

Satt.

21. júlí, 2006

Hoppt'í minn bíl!

Ætlaði að segja eitthvað en Hoffinn gerði mig mállausan.

Gvuð hjálpi oss...

13. júlí, 2006

Falinn fjársjóður

steinn

Í dag eru allir að horfa á Magna, a/k/a The Magnum a/k/a El Magneto, að standa sig einsog hetju í Rock Star Supernova. (meira um það síðar)

Á Íslandi er annar og betur falinn fjársjóður. Ég rakst á þennan óslípaða demant fyrir nokkrum mánuðum þar sem hann lá í leyni sínu á vefsíðu Músíktilrauna og hélt í sér andanum. Hann býr yfir fágætri þekkingu á tónsmíðum, og hefur þvílíkt vald á ljóðrænni ensku að mannskepnan á erfitt með að greina listina. Æj, þið skiljið.

Hann heitir Matz Anderson og er singer/songwriter frá Svíþjóð. Hann segir sjálfur:

Hi! My name is Matz and I'm born in Sweden. I've been playing and writing music since i was 13 but this is my first acoustic demo, which i recorded in Bundaberg (Qld Australia). It all started around 2 years ago when i quit my band and left Sweden so it felt pretty natural to become a singer & songwriter. My songs are about Travelling, Loneliness, short romances and nasty hangovers. I just moved to Reykjavik a couple of months ago. so i'm afraid i can't speak icelandic yet.

En þið þurfið ekki að hræðast neitt, þvílík er snilldin.
Hér eru lögin tvö: Lag #1 og Lag #2

Í Gvuðsins bænum, spilið hátt, hlustið VEL á orðin og skoðið síðuna hans.

Það er eitt sem við vinirnir vorum strax vissir um að myndi gerast, og er án efa löngu byrjað: nú þegar The Magnum er mættur í Rock Star þáttinn þá munu mjög margir segja efirfarandi:

Jah, sko, ég fílaði alltaf Magna. Hann var alltaf kúl, sko. Á Móti Sól var kannski ekki alveg minn tebolli, þúveist, en Magni sko, hann gat alltaf sungið og ég vissi alltaf að hans biði eitthvað stærra og betra. Magni er kúl, þú sérð það alveg í þættinum. Ég skil ekki fólk sem er að dissa hann...

Þið vitið hvað við meinum, og þið eruð örugglega búin að heyra þetta. En ef einhver sem les þetta hefur sagt þessi orð þá bið ég viðkomandi allra náðarsamlegast að kommenta á þessa færslu og nefna þrjú lög með Á Móti Sól -- án þess að nota neitt annað en hausinn. Ekkert Google, engin sms, bara Magna-dýrkunin sem þið voruð að flagga. Lúðar.

Um júlí 2006

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in júlí 2006. They are listed from oldest to newest.

maí 2006 is the previous archive.

ágúst 2006 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31