« Hver þarf heimili þegar hann hefur dans? | Main | Vonbrigðatron »

Ó svo hyper eitthvað

The Yeah Yeah Yeahs kovera 'Hyber Ballad' eftir Björk. (undir MP3 of the week).

"I'm not especially a fan of the Yeah Yeah Yeahs..." segir vefsíðan, og ég er mjög sammála. En þetta lag er alveg fínt, þannig séð. Pínulítið einsog volgur grjónagrautur sem er alltílagi og gerir mann næstum því saddan og er ókeypis. Þetta er alls, alls ekki neitt merkilegt lag, en samt bara alveg fínt.

Mér finnst 'Hyber Ballad' samt eitt flottasta Bjarkar-lagið (einsog vefsíðunni) og þessi útgáfa fer algjörlega á mis við allt dramað sem er í hennar útgáfu. Bara eitthvað plíng-plong, sem er samt alltílagi plíng-plong. Æji afhverju þarf þetta að vera svona flókið? Það hefði verið miklu skemmtilegra ef Michael Schenker Group og U2 hefðu gert sitthvort koverið, og þá hefði ég getað elskað MSGið og hatað U2ið. Málið leyst.

I Guess I'm Floating er ágætur mp3-blókur með nýjum Sufjan Stevens lögum og allskonar öðru dóti. Ég sá Sufjan spila á síðasta ári og langar mjög, mjög mikið að sjá hann aftur. Hann var titrandi sveittur og feiminn með tvö göt á gamla bolnum sínum og stóð bara einn með gítar og titraði og svitnaði og söng með lokuð augun og opinn munninn.

Comments(2)


Óli:

Sæll

Ekki það að ég þekki þig - eða mörðinn sem þú býrð með, en sögurnar af honum eru alltaf skemmtilegar. Hefur hann ekki gert e-ð fáránlegt síðustu misseri? Keep up the wood gork.

Takk. Eg lofa ther thvi ad jullinn lumi a einhverjum klofbrogdum og eg skal segja fra thvi strax.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)