Fyrir framan eitt af spænsku vinskapar-delíunum inní Kínahverfinu sitja tveir hressir heimilisleysingjar (eða bónafide rónar), nikka höfðunum í takt og segja ekki orð. Ástæðan er ekki sú að þeir hafi misst tunguna í slæmu veðmáli, eða séu svo djúpt undir áhrifum ódýrs glundurs að vélindað sé lamað. Málið er einfalt: þeir eiga ekki til aukatekið orð yfir félaga sínum, þriðja heimilisleysingjanum, sem þolprófar gangstéttina þar sem hann stígur trylltan reivdans við undirspil pínulítils gettó blasters, eiginlega "gettó selbitara", með hrúgu af "Dinacell" batterýum á bláu og frekar slitnu teppinu.
Þó ég hafi oft séð rónalinga stíga mis-undarlega frumsamda tilfinningadansa, með tónlist eða án, með söng og frussandi gargi eða án, þá var þessi dans alveg einstakur.
Það voru ekki síðu brúngráu lokkarnir sem dingluðu undan risastórri netaderhúfunni með límbandsklessunni. Eða pínulitlu og þröngu grænu sólgleraugun sem eru framleidd fyrir 5 ára stelpur sem eiga pabba sem versla á bensínstöðvum. Eða hólkvíðar strigabuxurnar sem voru einusinni hvítar og eru núna græn-bleik-brún-blá-gular. Eða skórnir, sem voru fastreimdari en allflestir hlaupaskór, utan um sokkana sem huldu skálmarnar.
Nei, það var tónlistin sem glumdi úr tækinu og endurkastaðist á húsveggjum og gömlu dósakonunni sem boraði í nefið. Alvöru old skool hardcore. Rozalla, Acen, 4hero, meiraðsegja Manix, spilað af kassettu í frábærum gæðum.
Nú hef ég séð og heyrt allskonar hluti um ævina og veit fullvel að inná milli rónalinga leynast plötusnúðar, fyrrum forstjórar og lærðir djúpsjávarkafarar. En aldrei í lífinu bjóst ég við því að sjá og heyra tvo hressa höfuðnikkandi heimilisleysingja fylgjast ofsaglaða með sísvitnandi félaga sínum stíga trylltan reiv-dans við alvöru óld skúl hardcore, á litlu bláu teppi fyrir utan spænskt vinskapar-delí í Kínahverfinu í New York.
A.m.k. ekki í kvöld.
Comments(6)
Djosins ad missa af tessu!!! Hvad a ad gera um helgina. Ekki bara hittingur? :)
Written 13.04.06 01:08
Glatad lika ad vid skulum ekki hafa heyrt i ter, aepandi yfir gotuna a okkur!!!
Written 13.04.06 01:09
Jáh! Þeir voru svo hressir! Held ég hafi séð einn þeirra í Frostaskjóli þegar þú vannst!
Jú. Hittumst! Sveinbjörn.com er í heimsókn. Hann er reyndar ekki búinn að vera neitt geðveikislega skemmtilegur só far, vildi bara borða og fara á mæspeis, en hann tekur vonandi stuðkipp á morgun og verður til í eitthvað fínt.
Ég held líka að mér hafi tekist að redda mér og honum miða á Ladytron, þannig að ef góðlega ímeilkonan er ekki lygasjúkur strokufangi þá getum við farið samfó á tónleikana!
Written 13.04.06 01:51
Bara borda og fara a myspeis, iss piss!!! :)
Vonandi faid tid tessa mida. Kippum lika Sveinbirni i stud!!! Heyrumst :)
Written 13.04.06 11:17
ég er í dúndurstuði! vaknaði kl. 6 í morgun og fór á starbucks!
Written 13.04.06 12:03
Einmitt. Starbucks opnar kl. 9.
Written 13.04.06 15:54