« Syngjandi sveitt | Main | Það sem ég er búinn að vera að gera undanfarið... »

Nýtt og sveitt

Hard-Fi er eitthvað glænýtt og breskt hip&kúl unglinga-samt-ekki-unglingaband og á víst að vera frábært, en mér finnst það ekki. Þeir eiga að vera blanda af Happy Mondays, reggíi, dubbi og einhverju fleira, en mér finnst það ekki. Þeir eru eiginlega einsog blanda af Coldplay, Strokes, markaðsstjórum, verðbréfamiðlurum, endurskoðendum, plötufyrirtækjaeigendum og veðlánurum. Ókei, og unglingum.

Hér er heimasíðan þeirra, og hér er vídjó af laginu þeirra 'Cash Machine' af plötunni þeirra CCTV eða eitthvað þannig.

Adam Green er með nýja plötu: Jacket Full of Danger.
Flaming Lips eru líka með nýja plötu: At War with the Mystics.
U2 eru líka með nýja plötu: We Suck.

Comments(11)


Váááááááááááá hvað þetta er glatað!!!!!! Mér svíður í heilabörkinn af glataðleika þessara hljómsveitar. Eitthvað lélegt "Snatch" myndband með ljótum unglingum og engum Vinny Jones. Sígaunastarfsemi af verstu gerð!

Hard-Fi er svona hvorki né og varla bæði. Svona 'less is more' verður 'more or less'.

Hvernig er það Halli. Fékkstu póstinn sem ég sendi á þig um daginn?

Bjarki:

Hard-Fi er ekki gott. Nema náttúrulega "Middle Eastern Holiday (Chicken Lips Vocal Mix). Jáhá.

hehehe "U2 eru líka með nýja plötu: We Suck." Mikið væri það nú viðeigandi, ótrúlega ótrúlega leiðinleg hljómsveit

Jesús Kristur já. Í helvíti verður maður fastur í lyftu sem spilar bara U2 lög...

*lol* titillinn á plötu U2 nokkuð gott

Adam green er að spila hér í París 13 apríl og mig langar svooo að fara .. heldurðu að það sé þess virði að skippa degi úr vinnunni og aðallega.. er þetta mæðravænt, þar sem mútta verður í heimsókn?

úff ég hélt kannski að þetta yrði svona skemmtilega hallærislegt, kannski kandítat fyrir svona guilty pleasure en nei, þetta var bara leiðinlega hallærislegt, ég gat ekki einu sinni hlustað á allan hraðbankann.

Kolka: já, þetta er alveg mæðravænt. Hann er nefnilega algjörlega kynlaus á sviði; dansar egypskan dans og hreyfir sig varla. En hvort henni finnist það skemmtilegt veit ég ekki.

Ég skemmti mér a.m.k. alltaf á tónleikum með honum; finnst lögin hans góð og hann skemmtilega glataður á sviði.

Herdís: ég veit það...þetta er eitthvað svo hræðilega hræðilegt. Steinn orðaði það mjög vel: "Eitthvað lélegt "Snatch" myndband með ljótum unglingum og engum Vinny Jones."

óh hallíí... júr só fönní

bono:

Whadda fuck did we ever do to you Hali? We don't suck, you suck. You cocksucker.

Cheers,

bono

Sá þetta band, Hard-Fi, á Danska MTV, með annað myndband við sama lag. Þar hvarf gæinn inn í hraðbanka og sat þar við að strauja peninga sem hann endaði svo á að kveikja í, ofsalega reiður. Það var jafn glatað. Ef eitthvað er þá eru þeir léttari á fæti í þessu myndbandi. Lagið er ömurlega þunglyndislegt og söngvarinn gerir mig sorgmædda innaní. Ég fór nærri því að gráta af vanlíðan við að sjá þá á MTV.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)