« febrúar 2006 | Aðalsíða | apríl 2006 »

mars 2006 Safn

31. mars, 2006

Nýtt og sveitt

Hard-Fi er eitthvað glænýtt og breskt hip&kúl unglinga-samt-ekki-unglingaband og á víst að vera frábært, en mér finnst það ekki. Þeir eiga að vera blanda af Happy Mondays, reggíi, dubbi og einhverju fleira, en mér finnst það ekki. Þeir eru eiginlega einsog blanda af Coldplay, Strokes, markaðsstjórum, verðbréfamiðlurum, endurskoðendum, plötufyrirtækjaeigendum og veðlánurum. Ókei, og unglingum.

Hér er heimasíðan þeirra, og hér er vídjó af laginu þeirra 'Cash Machine' af plötunni þeirra CCTV eða eitthvað þannig.

Adam Green er með nýja plötu: Jacket Full of Danger.
Flaming Lips eru líka með nýja plötu: At War with the Mystics.
U2 eru líka með nýja plötu: We Suck.

Syngjandi sveitt

Allir elska að syngja. Í sturtu, á klósettinu, með heyrnartól í plötubúð, að skola grænmeti, bryðja beiskan brjóstsykur, þvo bílinn, gera skattskýrsluna og gróðursetja lúpínu. Og sumir elska líka að keppa í að syngja og fyrir þá hafa sprottið upp allskonar söngvakeppnir í allskonar löndum, sem flestar bera svipaðan titil:

Ameríka: American Idol
Bretland: Pop Idol
Ástralía: Australian Idol
Ísland: Idol-Stjörnuleit
Danmörk: Danish Pop Idol
Þýskaland: German Pop Idol

Og síðast en ekki síst, Kína: Mongolian Cow Sour Yoghurt Super Girl.

Hvern dreymir ekki um að bera þennan titil? Nafnið er fullkomið og lýsir algjörlega þeim hæfileikum sem viðkomandi býr yfir, og hvað hann þurfti að gera til að komast þangað sem hann er. Ég heiti Halli og ég er SS Malakoff Ofurstrákurinn, fattariggi?

p.s. þetta er pínu fyndið.

3. mars, 2006

Foxtrot Feelings

Mig langar að heyra lagið Frozen Feelings sem var í stórmyndinni Foxtrot. Ég held a.m.k. að lagið hafi verið í myndinni, ég man það ekki alveg; það eina sem ég man er þegar ungi gaurinn með broddana klúðraði vítinu á móti Dönum og Djákninn brunaði yfir ánna, alveg kreísí, og svo að mér fannst þetta lag stórkostlegt. Kannski eru þetta bara minningaflækjur, en mér finnst fínt að muna að þetta lag hafi verið í myndinni.

Þetta lag var íslenskt. Eða, ég held að það hafi verið íslenskt. Það var a.m.k. gott, þannig að kannski var það ekki íslenskt. Kannski norskt? En það var gott, mmm.

Áttu þetta lag? Áttu sándtrakkið úr myndinni? Áttu kannski Frozen Feelings tólftommuna á vínyl?

Mig langar að heyra lagið núna, sama hvernig, jafnvel í gegnum síma. Ég man eftir að standa inní eldhúsi að hlusta á lagið hátt í Nesco græjunum mínum, og ég vil endurvekja þessar tilfinningar sem bærast í brjósti mér.

Viltu hjálpa mér?

Og ekki hugsa "nei, ég á þetta lag ekki" og gleyma þessu; talaðu við frænda þinn og spurðu hann, því einhver á þetta lag, og mig langar í það!

Takk.

2. mars, 2006

Strokes og allir hinir...

celebfeast06.jpg

Tónleikarnir voru mjög skemmtilegir. Mjög skemmtilegir, sama hversu prumpó fólki þykir nýja platan.

Á undan spilaði eitthvað gamalmennakombakk-band sem var ekkert þannig heldur nýstofnað trendí drasl, og var bara sorglegt, svo ég noti besta orðið (ég vil ekki einusinni segja hvað þeir heita, bjakk). Þeir einu sem fíluðu þá voru lúðar (sorrý, en satt!) í fastreimuðum hlaupaskóm, niðurþröngum gallabuxum og með slush og nachos. Mig langaði reyndar mjög mikið í bæði slush og nachos, en ég reikna með því að sú týpa af manneskju sé ekki ofarlega á blaði á "uppáhalds áhangenda"-lista Strokes. Ekki að mér sé ekki sama um það, heldur fæ ég alltaf meiriháttar heilafros í bakið (afþví ég þamba alltaf slushinn) og get því ekkert fengið mér svoleiðis. Kókurinn sem Auður keypti sér var einsog klósettvatn með mintubragði og örlitlu kirsuberi, og *hrollur* þetta bragðkombó lét mig hætta við að fá mér dásemdir.

Strokes voru eiturhressir og með mjög flott ljósasjóv: bæði þrusubjarta kastara sem lýstu í margskonar litum, og svo tölvuskjái með móðins grafík sem voru aðallega allskonar fallega litaðir ferningar á ferð og flugi. Litríkt rokk er mest móðins hér að austan!

Ég er búinn að hlusta mjög lítið á nýju plötuna og þekkti því bara örfá lög, en öll gömlu lögin (sérstaklega af fyrstu plötunni) fengu mig til að skoppa smá og hrista búkinn og rassalinginn, og taskan og umframhúðin dingluðu harkalega með. Það er eitthvað við fyrstu plötuna sem er svo hetjulegt. Mér finnst ég vera kúl þegar ég hlusta á þessi lög, á sama hátt og mér finnst ég vera danskóngur alheimsins þegar ég hlusta á sum Giorgio Moroder lög og önnur italo house meistaraverk og stend í herberginu mínu og dansa mig sveittan rétt fyrir svefninn. Strokes láta mig langa til að fá mér leðurjakka og þröngar gallabuxur, en svo fer ég og máta svona og líður einsog bjúga. Ég get ekki einusinni verið með móðins hár, fólk fer bara að hlæja að mér og útlendingar kalla mig hobbita.

Ef Strokes tekst að vera skemmtilegir á tónleikum þá skiptir það eiginlega litlu máli þó fólk sé að rembast við að hata þá í gegnum rispaða tölvuhátalara og dánlódaða illa kóðaða mp3fæla. Þeir eru bara kúlir rokklingar.

En, þegar ég og Auður og allir hinir vorum að bíða eftir Strokes og vonast eftir tímabundnu heyrnarleysi vegna dynjandi leiðinda upphitunarbandsins, þá tókum við eftir allskonar fínu fólki að koma sér fyrir í einni stúkunni sem var ca 7,25 metra frá okkur.

Lucy Liu sat með pínu fyndið og stórt hár og við fengum frægramannakitl í magann, en alltíeinu kom röndótt pils með Drew Barrymore innanundir og þá jókst kitlið enn meira. En svo kom Gwyneth Paltrow með bumbuna sína og Chris Martin (sem bjó bumbuna til) faldi sig bakvið súlu og þá hélt ég að við féllum í "ómægod"yfirlið.

Landslið selebritía var komið til að skemmta sér með okkur og við göptum helling. Sjit, þau eru svo fræg. Mér fannst fyndið að sjá þau þarna. Drew er miklu sætari en Lucy, og miklu sætari í persónu en ég hélt (já Njörður, ég skal viðurkenna það). Hún er enginn hlunkur heldur bara venjuleg pæja og pilsið var mjög smekklegt. Ekkert "Hvað-var-hún-að-hugsa-hún-Drew-mín", a.m.k. ekki í kvöld.

Mér fannst allt skemmtilegt. Líka litli krúttikallinn sem vann í apótekinu og stóð með græna rakvél í höndunum og vildi ofsalega mikið raða henni á réttan stað en var svo ótrúlega litblindur/gamall að hann stóð bara kyrr og starði og andaði. Hann skoðaði þessar bleiku, og svo þessar bláu, og svo þessar bleiku, og svo þessar bláu o.s.frv. o.s.frv., og þegar ég benti honum á þessar grænu þá horfði hann á mig og sagði "ertu viss?". Krúsípúpú. Ég keypti mér svo tannbursta með forláta skræpóttri tungusköfu og hlakka mikið til að prófa hann, eftir að ég borða extra-krönsjí og extra-litríka MogMið mitt.

mm mm, líf.

Um mars 2006

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in mars 2006. They are listed from oldest to newest.

febrúar 2006 is the previous archive.

apríl 2006 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31