


Cassetteboy eru komnir aftur!
Fyrir nokkrum árum gáfu þeir út The Parker Tapes, sem er frábært 100-og-eitthvað laga meistaraverk samsett úr lögum, hljóðbútum, ræðum, auglýsingum og hverju sem er.
Einsog þeir segja sjálfir: "Basically we record famous people and make it sound like they're talking about sex or drugs. It's a winning formula."
Þetta er samt ekkert bara eitthvað lapþunnt grín. Þetta er hnausþykkur vellingur af snilld. Þeir köttuðu upp lag með David Bowie þannig að hann talaði um að prumpa upp í vindinn; ræðu með Tony Blair þannig að hann talaði um að senda herinn á skólabörn; og Jamie Oliver þannig að hann talaði aðallega um að berja fólk í andlitið með blautu grænmeti. Ó Cassetteboy.
Það eru til þrjár aðrar plötur:
- Cassetteboy vs. Dj Rubbish - Inside a Whale's Cock vol. 1
- Cassetteboy - Mick's Tape
- Cassetteboy - Dead Horse
Hlaupið útí Amazon.co.uk og kaupið þær allar!
Comments(3)
Harry Potter and The Black Leather Cunt!!!!
Written 03.02.06 15:13
Sjit, ég veit það.
Og Mike Skinner dótið allt. Ohhh þeir eru svo miklir snillingar.
Written 03.02.06 20:02
Og helvítis Annoying Thing Imagine mashuppið. HAH!
Written 03.02.06 20:04