>>> Ishkur's Guide to Electronic Music
...er akkúrat það: vefsíða sem fer í gegnum sögu raftónlistar, frá diskó til dirty south rap, með hljóðdæmum fyrir hverja tegund og meiraðsegja tutorial fyrir þá sem eru ringlaðir á útliti síðunnar (þ.m.t. mig).
Flash-intróið er hræðilegt, en síðan sjálf er mjög sniðug og fróðleg, og Ishkur veit helling og kann að segja það.
Hann er t.d. að lýsa Speed Garage (þjóðlagatónlist Selfoss), sem samkvæmt honum er ekki tónlist, og segir: "Those dulled basslines sound like someone farting into a pillow."
Word, vinur minn, word.
Hann segir líka að ástæðan fyrir því að svo margt af fyrstu raftónlistinni (t.d. Vangelis, Jean-Michel Jarre og Giorgio Moroder) sé svona góð, og oft mikið betri samanborið við nýrri lög, sé sú að þessir gaurar voru allir established tónlistarmenn sem ákváðu að grípa rafhljóðfæri til að taka tónlistina sína lengra. Í dag séu of margir sem treysta of mikið á forritin og preset bankana í hjóðfærunum. Ég er alveg sammála honum, því langflestir af mínum uppáhalds í dag hafa verið að fikta í hljómsveitum alla ævi, margir hverjir byrjað í paunki, og raftónlist var því bara partur af þeirra glæsta ferðalagi inní undirbúin eyrun mín.
