Ég hef sjaldan á ævinni séð jafn glaða manneskju og elskulegan Plastic Bertrand þegar hann skoppaði iná Eurovision-sviðið árið 1987 og söng Amour Amour.
Númer eitt, hann er með stórt ljóst hár sem dinglar útum allt. Það er stutt að neðan og stórt að ofan, þannig að dinglið verður gríðarlegt og algjörlega stórkostlegt.
Númer tvö, hann er í skærbleikum jakka við látlausu fötin sín (útpælt sölutrix) og saman eru hárið og jakkinn banvænt kyn-vopn.
En afhverju að eyða meiri orðum í þessa snilld?
Hér er vídjóið:
Comments(2)
Það er ekki spurning að Plastic Bertrand er maðurinn. Hann er nú búinn að vera lengi maðurinn alla vega síðan ca plane pour moi og það er síðan 1978. Hversu lengi getur einn maður verið hress.
Written 17.02.06 10:23
Ég held endalaust. Mig langar geðveikt að hitta hann og vera hress með honum.
Written 17.02.06 17:44