Ég er svo glaður! Ég var að horfa á treiler fyrir heimildarmyndina 'The Devil and Daniel Johnston' og er svo ánægður með að það sé búið að gera mynd um hann! Hún virkar líka skemmtileg og lítið um gagnrýni á hann sem persónu, a.m.k. í treilernum. Myndin fékk verðlaun á Sundance (fyrir besta leikstjóra) og áhorfendaverðlaun í San Fransisco.
Á las líka að hann muni eiga verk í Whitney tvíæringnum sem verður hér í New York frá 2. mars, og mér finnst það frábært. Þá get ég vonandi séð myndirnar hans með votum augum og séð hann vera hressan.

The Devil and Daniel Johnston - treiler
Fyrir þá sem vita ekki hver Daniel Johnston er þá er hægt að lesa um hann hér, hér, sjá myndir eftir hann hér, nota bara Google, og kaupa tribute-plötuna með Flaming Lips, Tom Waits, Eels og fleirum.
Einusinni bað ég Maus að kovera 'Walking the Cow', sem er eitt uppáhaldslagið Daniel Johnston lagið mitt, en þeim fannst það ekkert sniðug hugmynd. Ef þeir hefðu hlustað á mig væru þeir kannski frægir núna. Og ennþá hljómsveit.
P.s. Nacho Libre, Dave Chappelle's Block Party, Brick, Silent Hill, V for Vendetta.