« Bagn Hagl | Main | Strokes og allir hinir... »

Æji nei

Ohh.

Til hvers? Sólgleraugu sem spila músík? Hvað ef það er kvöld eða rigning, eða ef þú ert úti að hlaupa af þér sælgætisfranskraspikið. Ætlaru þá að vera jafn mikill lúði og alheimskonungur lúðanna, Boner, og vera bara alltaf með sólgleraugun?

Þetta er án efa eitt það fáránlegasta sem ég hef séð, og fyrir utan það hversu ótrúlega ljót Oakley-gleraugu eru vanalega þá slá þessi öll heimsmet. En ég efast ekki um að þau seljast ýkt vel, sérstaklega þar sem þau kosta bara 20 þúsund kall og gera mann svo smekklegan þar sem maður röltir um Hagkaup í brjáluðum Doobie Brothers fíling.

Ef þú vilt endilega vera laminn í andlitið á djamminu, að bíllinn þinn verði rispaður og fjölskyldan þín verði fyrir aðkasti bæjarbúa (kartöflur í húsvegginn, sesamfræ í beðið, hlaupkallar innum bréfalúguna og fleiri fræg dreifbýlistrikk) þá skaltu endilega kaupa þér svona gleraugu.

p.s. hér er svo risamynd sem þú getur prentað út og límt á Firebirdinn þinn. Saman munuð þið rúla Blönduósi í nokkra mánuði.

Comments(2)


Bob:

Njamm, ég vil hlaupkalla innum bréfalúguna. Græna takk.

sástu fréttina á vísi um fullorðna fm957 gaurinn sem sá bono og fraus og mundi ekki eftir neinum til að spyrjann að og var svo svekktur að filma í myndavélinni var búin (ha.. filma? í myndavél? haaa? skiliggi)


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)