« 100% | Main | Loksins, loksins og loksins! »

Tónlistarflækja

Ó mig auman.

Þann 9. febrúar eru þrennir tónleikar sem mig langar á:
- Supergrass
- Sigur Rós, og
- Flock of Seagulls.

Já, Flock of #@$%!* Seagulls! Live!

Áður en ég vissi af Sigur Rósar tónleikunum ("Sigurrósartónleikunum" er flottara) var ég búinn að kaupa miða á Supergrass, sem, einsog ég blaðraði um áður, mér finnast skemmtilegir fýrar, bæði í eyrum og á sviði. Ég gæti ákveðið að selja þá miða þó mig langi það ekkert gríðarlega, en miðað við reynslu mína af viðrembsli við að selja miða á tónleika sem ég ætla ekki á, þá þori ég varla að hreyfa mig. Síðast þegar ég rembdist endaði ég næstum því skælandi á leiðinni frá Madison Square Garden og lofaði mér sjálfum að hlusta aldrei, aldrei, aldrei aftur á neitt með Nine Inch Nails, ekki einusinni hlusta á Quake. Ekki það að mér hafi fundist þær sekúndur sem ég hafði heyrt með NiN neitt stórkostlegar -- mig langaði bara á sjóvið því Queens of the Stone Age voru líka á sjóvinu og sjóv geta verið góð.

Sko, elskuleg móðir mín á afmæli þennan sama dag og þessvegna vil ég vera viss um að fagna honum með stæl. Það er pínu stæll í því að fara á þrenna tónleika, en þar sem þeir eru mjög dreifðir, þaraf einir í Brooklyn, þá mun ég verða ansi sveittur og heyra mjög lítið og held því að það sé best að velja eina af þremur.

Ég lofa því að segja öllum hvernig þetta mál fer, enda allir líklega að falla í yfirlið yfir spenningi. FYLGIST MEÐ!

Þangað til er hér lag með Isobel Campbell. Hún er söngkona sem var einusinni í Belle & Sebastian en er núna sóló. Þetta lag syngur hún með Mark Lanegan úr Queens of the Stone Age (sjáiði tenginguna?). Þau gáfu út plötuna 'Ballad of the Broken Seas' og er svona folky-country-60s-Simon&Garfunkel-Leonard Cohen-Twin Peaks-Lou Reed-plata. Dáldið flott.

Isobel og Mark á Hótel Búðum

musicnote.gif Isobel Campbell & Mark Lanegan - Deus Ibi Est

Lagið er vistað á einhverri niðurhalssíðu sem vill að maður fái sér aðgang og gefi upp allskonar bullerí. Einmitt! Ég bjó til lygalagaaðgang sem þið getið notað:
email: hlunkur@mega.is
passw: hlunkur

* * *

Gasman gefur út hjá Planet Mu Records, útgáfufyrirtæki Mike Paradinas sem býr til tónlist undir grilljón nöfnum, þ.á.m. ¬µ-Ziq sem er uppáhalds.

Ég hafði ekki heyrt mikið með Gasman fyrir utan lög á safnplötum, en í febrúar kemur út ný plata, 'This One's For You'.

gasman.gif

Það er eitthvað mjög flott við músíkina sem hann býr til. Hann er ekki að reyna gera neitt nýtt, heldur bara gera hlutina vel, og það er kannski það sem mér finnst svo flott við lögin. Þau hljóma dáldið óld skúl, bæði pínu Old Skool Hardcore, sem og eldri elektróník frá '93 og uppúr. Magakitlið sem ég fæ minnir mig a.m.k. á dagana sem ég varað heyra sum lögin í fyrsta skipti á ævinni (t.d. Polynomial-C með Aphex Twin, og svo lög með Orbital og 808 State).

Hér eru nokkur lög:
- musicnote.gif Gasman - Fiv
- musicnote.gif Gasman - Goof

Hér eru svo ca 2ja mínútna hljóðbútar af plötunni af vefsíðu Planet-Mu.

Sækið nú lagið og hummið með, og farið svo beint á Amazon eða Tólf tóna eða Músík Mekka og kaupið fangfylli af albúmum.

Eða heimsækið MP3search.ru sem er undarleg rússnesk síða sem selur plötur á $1.15? Hmm. Ég veit ekki hvort ég myndi þora að gefa þeim upp kreditkortið mitt, treysti Interpol ekki nógu vel, en ef ykkur langar þá megiði prófa. Og endilega segið mér hvernig gekk.

* * *

- Isobel Campbell
- Flock of Seagulls flash-dúndur
- Planet Mu Records

Comments(3)


Kristleifur:

allofmp3.com er held ég *orginal* rússneska-mafían-selur-mp3 síðan. Varist eftirl ... þú veist.

Ég lét þá hafa kreditkortanúmerið mitt eftir að bróðir hans pabba hafði þorað að láta þá fá sitt eftir að einhver vinur hans hafði þorað að láta þá fá sitt og það hafði ekki gerst neitt og það hafði ekki gerst neitt - og það hefur ekki gerst neitt ennþá, nema að ég fæ plötur á $2.

Þú ert svo þorinn. Og heppinn.

Og mér finnst rússneska mafían frekar kúl að vera komin í tónlistarbransann. Þúveist, lík í skottinu og allt það vs. LAME encoder um miðja nótt í vöruskemmu.

Kannski ég prófi...

Kristleifur:

Ég held að mafskí hafi fengið leið á harkinu með stolnu kreditkortanúmerin, það var hvort eð er ekkert hægt að nota þau í neitt nema kaupa prÖn-áskriftir hjá hinni rússnesku mafíunni.

Rússneska mafían uppgötvaði að litli frændi sem hafði hangið inni í kústaskáp hjá Olgu frænku kynni ýmislegt fyrir sér. Þeir hafa keypt of stóran Adidas-galla á hann og fína keðju um hálsinn og uppfært kústaskápinn hans með tölvum úr gáminum sem þeir "fundu" í fyrra. Láta svo frænda rippa plötum og tengja hann við T3.

Instant dollars.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)