100%

Ég ætla ekki að segja mikið um Jackson Fourgeaud.
Ég ætla bara að láta ykkur vita að tónlistin sem hann býr til undir nafninu Jackson and His Computer Band lét mér líða einsog þegar ég heyrði µ-Ziq og Squarepusher í fyrsta skipti á ævinni, sem kynnti mig fyrir heilli tónlistarstefnu og opnaði tvítug augu mín fyrir því að tónlist væri það sem hún vildi vera.
Ég er ekkert ofsalega hrifinn af orðinu ferskt, nema það eigi við um ost, fisk og lambakjöt, en ef eitthvað er ferskt þá er það allt sem Jackson and His Computer Band búa til og spila fyrir okkar eyru.
Jackson Fourgeaud, ég held ég elski þig.
Og svo er nýja platan með Ladytron, Witching Hour, mjög, mjög góð.
Prodigy smáskífan Hotride er fáránlega léleg.
Og nýja platan með Stereo MCs er líka sorglega leiðinleg, eiginlega merkilega hræðileg.
Farið þið báðar í rassagat, kæru fyrrum-uppáhalds hljómsveitir.