Dosh er ungur tónlistarmaður sem gefur út hjá Anticon og, einsog flest sem Anticon gefur út (og gaf út, Buck65 og Sage Francis eru hættir þar) þá er tónlistin hans æði. Vídeóið að ofan er líka "mest móðins og mergjað", einsog krakkarnir segja að Sunnan. Nýjasta platan hans heitir 'Pure Trash' og er það, þúveist, ekki.

Treva Whateva er líka ungur og frábær. Hann gefur út hjá Ninja Tune og er maðurinn sem Hermigervill vill vera. Kannski vill Treva Whateva vera RJD2, eða RJD2 vera hann? Kannski vilja þeir báðir vera Mr. Scruff, sem vill kannski innst inni vera Luke Vibert/Wagon Christ?
Kannski. Og já, Mr. Scruff og Treva Whateva hafa unnið saman. Lífið er fullt af konfekti. Maður þarf bara að kunna að velja. Þúveist.

Comments(2)
ojjj anticon!
Written 28.09.05 05:21
Stelpur skilja hvortsemer ekki hip hop.
Written 28.09.05 15:08