« Lag á heilanum...alla ævi | Main | Pössum mömmurnar okkar »

Gott í eyrun

Hér er smávegis tónlistarfínerí sem ég er búinn að hlusta mismikið á:

Minotaur Shock
...er breskur drengur einsamall sem býr til frábæra tónlist. Hann kemur frá Bristol einsog svo margir aðrir klárir, og fer vonandi einhvern daginn til Íslands, einsog svo margir aðrir klárir, en stoppar auðvitað fyrst í New York til að gleðja mig. Hann gerði einusinni elektróníska tónlist en á síðustu plötu var allt spilað á hljóðfæri af honum sjálfum. Uppáhaldslagið mitt í dag er 'Vigo Bay' af plötunni Maritime. Það er frrrrábært lag og fer á risastóru safnplötuna mína sem heitir Sorg og gleði lífs míns: Lögin sem ég vildi að ég hefði samið.
- minotaurshock.com
- kaupa á Amazon

Jorge Ben
Brasilískt tónlistartröll sem er víst ótrúlega mikið heimsfrægur. Náði samt aldrei í eyrun mín, a.m.k. ekki svo ég vissi. Er búinn að gefa út trilljón plötur síðan frá miðri síðustu öld og gerir ekki væmin gítarlög eingöngu (samdi t.d. 'Mas Que Nada', satt!) heldur líka rafmagnaða stuðtjúttara ('Africa Brasil Zambi') og fræg fótboltalög ('Umbabararumba').
- jorgeben.com

DeVotchKa!
Amerískt band sem lítur út einsog rússneskt og gerir frábæra sveita-, hlöðu- og austur-evrópska popptónlist...í rokkbúningi...með harmónikkum...og tilfinningum. ííkei, besta leiðin er að horfa á treilerinn fyrir myndina Everything is Illuminated (sem er örugglega frábær mynd, a.m.k. er sagan æði), lagið 'How it Ends' af plötunni How it Ends kemur í lokin og er frábært. Ég fæ alltaf gæsahúð þegar lagið kemur og sólblómin eru útum allt. Jájá, ég veit, svaka væmið og undarlegt en samt satt. Ég ætla að sjá þá spila með Reginu Spektor þann 15. september. Heppinn tappi, ég.
- devotchka.net

Khonnor
Hann er 17 ára. Fyrsta platan hans Handwriting er frábær.
- infó

Langhorne Slim
Antifolk trúbadorhetja með hatt. Hann grettir sig mikið þegar hann syngur með sérstöku röddinni sinni. Lögin eru gamaldags á mjög góðan hátt. Hlaða, fornbíll, skyrtur, axlabönd, skjalataska með peningum og góðhjartaður bóndi passar einhvernveginn vel við fílinginn. Hann var að gefa út þriðju plötuna sína, When the Sun's Gone Down og mér finnst hún skemmtileg, ókei?
- infó

Quinoline Yellow
Elektróník frá SKAM útgáfunni (Bola, Wevie Stonder, Boards of Canada o.fl.) N팩ja platan Dol-Goy Assist er fín.
- infó

The Broken Family Band
Lagið 'John Belushi' af Welcome Home Loser er skemmtilegt. Veit ekki alveg með allt hitt, en það er kannski mjög skemmtilegt líka.
- thebrokenfamilyband.com

...og svo eru Boards of Canada að fara að gefa út plötuna The Campfire Headphase. Einsog fyrir allar síðustu útgáfur þeirra eru allskonar plat-eintök af plötunni á netinu en innámilli leynast alvöru lögin. Ég held að ég hafi heyrt þau, finnst sum skrýtin og önnur góð, en ég veit ekkert ennþá, læt ekki hlaupa með mig í gönur. Og til að svara því sem brennur á vörum allra þá er koverið eins. Andlitslaust 70s hippabarn í voða litlum fíling og svo smá fótósjopp.


Write something
(I'd prefer Íslensku or English, but it's up to you...)