Þolinmæði er dyggð, einsog allir vita.
Þegar miðar á A-Ha tónleikana fóru á sölu í byrjun júlí, seldust þeir upp á 52 mínútum (segja þeir). Þá kostaði miðinn $30 (um 2000 kr.), en nokkrum dögum seinna fóru allskonar gráðugir vitleysingar af stað á EBay og tókst að selja fáránlegt magn af miðum á allt frá $100 (6400 kr.) uppí $200 (um 13.000 kr.) og jafnvel meira! Og allir keyptu og keyptu og vitleysingarnir græeddu og græddu. Ég var næstum því búinn að kaupa miða á $130 (um 10.000 kr. - spáið í það!) en þökk sé flöskuhálsinum sem umlykur íslenskt internet þá klúðruðust kaupin og ég slapp við skrekkinn...
...því ég keypti miða á tónleikana áðan á $25 (um 1500 kall!). HAH!!! Ég er að fara að halda uppá sameiginlegt afmæli okkar A-Ha bræðra. Samtals 40 ára tónleikaafmæli, jii, það gustar um mig tilfinningalega.
Og nú fæ ég að vinka Morten Harket með tár í augunum og svitna við bonafide nýaldar80s í rafmögnuðum búningi. Þeir eru meiraðsegja með acoustic sett, haha, sjii ég hlakka svo til. 'Living Daylights' spilað með kassagítar og panflautu? Uuuu, já takk.
Þurfti ekkert á Gulla Briem að halda eftir allt saman, en ég þakka honum samt kærlega fyrir að hafa fengið Dr. Harket til að tjá sig á Íslandi, sama hvað talaði svosem um.
Og á morgun: Sigur Rós. Og á fimmtudaginn: Regina Spektor og DeVotchKa. Og...í október: Franz Ferdinand. Og kannski seinna í september: Supergrass. Og svo Nine Inch Nails, ef ég sel ekki miðana og kaupi mér pels. Guð blessi tónaflóðið.
Comments(2)
Supergrass, já! Farðu endilega. Þeir eru megakúl.
Written 14.09.05 07:48
Já, mig langar mikið. Þetta er öðruvísi en vanalega, held ég meira órafmagnað, eða hvað sem það heitir.
Ég sá þá í fyrra og það var ótrúlega gaman.
Á ég líka að fara á Hot Chip?
Eða Four Tet og Hot Chip?
Eða Four Tet og Jamie Lidell?
13&God?
Daniel Lanois & Tortoise?
Er búinn að kaupa miða á Bertrand Burgalat og líka Devendra Banhart. Hlakkar mikið til.
Written 14.09.05 12:28