« Nostalgía rímixuð | Main | iKill »

Tjöruþjóð

tarnation.jpg

Sá svo myndina Tarnation í gær. Loksins. Er líka búinn að vera að bíða eftir að sjá hana (ætlaði oft á hana í bíó, svo var hún sýnd uppí skóla en ég hafði ekki tíma og yadayada) þannig að ég fékk hana bara gegnum Netflix.

Tarnation er frábær sjálftekin heimildarmynd um og eftir strák sem ólst upp við pínu skrýtnar aðstæður. Frá því að hann var 11 ára tók hann allskonar vídjó af sér og ættingjum, og breytir því síðan í mynd og klippti hana á iMovie (sem fylgir með Apple tölvum). Low budget og high feelings (hah). Myndin er frábær, kannski sérstaklega vegna þess hvernig hún lítur út og að hann stjórnar þessu alveg sjálfur. Æji, sjáið hana bara.

Í Tarnation er fullt af góðri músík, þar á meðal frábæra semi-eitís lagið Strange Powers, sem ég sá í lokin að var með hinni frábærru The Magnetic Fields.

The Magnetic Fields er eitt af helling af sólóverkefnum Stephin Merritt sem er frábært undrabarn...nei, undrakall. Hann spilar á öll hljóðfæri sjálfur eða fær hjálp frá öðrum undraköllum og -konum, hann syngur og trallar og er frábær.

Frrrrrábært lag, ég er búinn að vera með það á rípít á meðan ég skrifaði þetta allt (tekur lengri tíma að skrifa en að lesa) og þetta er svo frábært að það er frábært! Lagið er af plötunni Holiday frá 1994, og afþví að ég er svo frábær og Stephen Merritt er svo frábær þá er lagið nákvæmlega hér:

musicnote.gif The Magnetic Fields - Strange Powers

Comments(2)


"I want my stuff back!" - Schnilldin ein þessir þættir.

Sería 2 verður líka ögn steiktari en sú fyrri. Ef það er hægt!! Sannar eitt sinn fyrir allt að Bretar eru konungar grínsins.

Ef þú ert ekki búinn að sjá Dave Chappelle þættina ennþá þá mæli ég með þeim líka. Þeir koma alveg á hæla Little Britain í funny skalanum :)

mangó sín:

freakonomics....mjög klár bók.