
Þessi hressi hópur af fólki kallar sig Alarm Will Sound, og er ca 22 manna, ný-klassískt ensemble frá Pennsylvania sem eru nýbúin að gefa út plötuna Acoustica: Alarm Will Sound Performs Aphex Twin, sem er útfærsla þessa 22+ manna hóps á 15 lögum eftir Aphex Twin, mest af plötunni Druqks frá 2001. Persónulega finnst mér þetta sniðugt, og kannski aðeins sniðugra en þetta Apocalyptica->Metallica dót þó það hafi kannski verið ágætt. Kannski. Alarm Will Sound eru með um 10 arrengerera (mig vantar orð) útsetjara og voru víst nokkur ár að setja þetta verkefni saman svo að útkoman yrði eitthvað í líkingu við upprunalegu lögin. Mér finnst það reyndar pínu skrýtið. Til hvers að vinna að því í mörg ár að fínstilla 22 manneskjur svo þær geti hljómað alveg eins og 30.000 kr. sampler? Kannski voru þau ekkert að gera það í nokkur ár, heldur vildu muna að gleyma engu bíbi eða blúbbsi. Útkoman er öðruvísi en Druqks, læv spileríið er oft skemmtilegra en lögin sjálf.
(Lestu review frá öðrum en mér)

Annað ágætt? Útgáfa hammondhetjunnar Lonnie Smith á verkum Beck á plötunni Boogaloo to Beck. Sumt virkar vel, annað er skrýtið. (RealMedia hljóðbútar hér)
En í mestu uppáhaldi er þýskfæddi englendingurinn Max Richter, sem er algjör snillingur. Mig minnir að það hafi verið Krilli sem kynnti mig fyrir honum. Kannski er það bara minningin um alla góðu tónlistina sem Krilli hefur kynnt mig fyrir í gegnum árin, hann fær sjálfkrafa kredit. (Þessi setning hljómar mjög væmin með Max Richter í bakgrunni...)

Max Richter er búinn að gefa út tvær eiginlegar sólóplötur, The Blue Notebooks og Memoryhouse (sem var spiluð af BBC symfóníunni). Ég heyrði The Blue Notebooks fyrst og veit ekki hve oft ég hlustaði á hana í röð fyrstu vikurnar. Ég flokkaði hana undir electronica, því eitthvað við þessa músík -þó hún sé klassísk- á að mínu mati meira skylt við framþróun líka raftónlist. "Ný klassík" er asnalegt, kannski aðallega vegna þess hve það minnir mig á tónlistarafsprengi sem fær forskeytið "ný" sökum þess hve undarlega það hljómar. Þegar ég var lítill fannst mér allt sem var flokkað nýtískulegt vera skrýtið, Max Richter er búinn að afsanna það.
Eftir að ég fékk Memoryhouse er ég búinn að hlusta á plötuna mörgum, mörgum sinnum. Á random, repeat og sama lagið oft oft oft. Hann er á kafi í allskonar verkefnum, bæði tónleikum og að semja músík. Ó hr. Richter.
Fannst það skemmtilegt surprise en alls ekki skrýtið að á vefsíðu Max Richter stendur "Johann Johansohns new disc is in residence in the CD player." Finnst ekkert skrýtið að hr. Richter hlusti mikið á Jóhann Jóhannsson þar sem hann er engu síðri snillingur. Svo hlustar Jóhann Jóhannsson mikið á Úlf Eldjárn, sem er algjör snillingur. Og einhverntímann hafa þeir hlustað smá á mig, þannig að óbeint hef ég haft huglæg áhrif á Max Richter.
- -
Linkar:
- Jóhann Jóhannsson
- Max Richter
- Lonnie Smith
- Ég
p.s. ef það er eitthvað orð sem ég hata, þá er það LOL!!! Fólk sem segir LOL eru asnar.
Comments(7)
Alarm will sound eru að spila í Lincoln Center sunnudaginn 24..
Written 15.07.05 15:47
10 arrengerera (mig vantar orð)
er það ekki útsetjari
Written 15.07.05 16:46
Jú, örugglega útsetjari. Það er rétt. Er bara orðinn svo útlenskur, hugsa alltaf á ensku. HAH!
Siggi Orri: ég fer heim á mánudaginn þannig að ég missi af. Ætlar þú?
Written 15.07.05 17:47
Erum að spá í að skella okkur..:)
Written 15.07.05 19:07
Datt inn á þessa líka fínu síðu hjá þér. Ég held maður verði að kíkja á þetta "Alarm will sound" dótarí. Ég á tvo diska með hljómsveitinni "the Bad Plus". Það er jazz tríó sem tekur öll möguleg lög og gerir jazz úr. Þeir spiluðu meðal annars Flim af come to daddy inn á plötuna "These are the vistas".
Written 17.07.05 05:18
Takk Haukur, tékka á því. Þú ættir endilega að tékka á Max Richter, hann er frábær.
Written 17.07.05 14:14
líka ROFL og bwahahah
Written 17.07.05 14:25