« Red & Ginger | Main | Hip Hop safnplata Halla síns »

Gómsætt

Einusinni borðaði ég súkkulaði sem hét Marabou. Mér fannst það ekkert spes, þó svo að auglýsingarnar sögðu mmmmmmMarabou.

Marabou er frá Svíþjóð og þeir eru voðalega stoltir af þessu súkkulaði sínu. Ég veit ekkert hvernig nammi Svíar gera. Haribo lakkrís er kannski sænskur, en kjötbollur eru ekkert voðalega spes nammi.

Úlfur vinur minn hefur spilað á saxafón með hljómsveitinni Kanada. Svíþjóð er ekki á Íslandi en samt ekki heldur nálægt Kanada, sem er fallegt land. Til dæmis er blússandi vestur-Íslendingabyggð í Manitoba og örugglega margir flugdrekar.

Flugdreki á ensku er "kite".
Það er töluð enska í Kanada.
Manitoba er í Kanada.
Marabou rímar við Caribou.

Tilviljun? Ég held ekki.

Einusinni var tónlistarmaður sem kallaði sig Manitoba. Úlfur vinur minn var einmitt sá sem kynnti mig fyrir honum.

Bíðið, það er meira.

Einn daginn kom grimmur pönkari og sagði Manitoba að hann héti Manitoba og því mætti Manitoba ekki heita Manitoba lengur. Manitoba sagði þá bara "ókei" og breytti nafninu sínu í...Caribou. Sem rímar við Marabou. Og hann gerði eitt skemmtilegasta lag sem ég hef heyrt lengi lengi lengi, og í nafni lagsins kemur fyrir orðið "kite", sem þýðir flugdreki muniði.

Þetta er ótrúlegt og ég vil að þið krankið voljúmið upp allverulega þegar þið hlustið á lagið. Ég lofa að þið farið í gott skap og hlustið á það 2-3svar í viðbót.

Caribou - 'Brahminy Kite
af plötunni The Milk of Human Kindness

Meira gotterí:
Quasimoto - 'The Further Adventures of Lord Quas'
Nýjasta platan frá Madlib a.k.a. Jaylib a.k.a. Lootpack a.k.a. Madvillain a.k.a. Yesterdays New Quintet a.k.a. Shades Of Blue. Meira skrýtið og meira skemmtilegt. Hip Hop fyrir prófessora og fuglaskoðara.

Populous - 'Queue for Love'
Unglingur með PC tölvu, hljóðkort og fullt af hangsi. Dose One rappar í einu lagi og þetta er fínt. Stundum einsog cLOUDDEAD, Boards of Canada, Prefuse73, Dj Shadow...en...kannski er þetta ekkert voðalega mikið gotterí. Bara la-la. Einsog hafrakex með engu smjöri.

Marsen Jules
Franskur gaur með smá lubba sem gerir fallega og sterka strengjamúsík úr rafmagni. Mér finnst hún skemmtileg enn sem komið er. Nýjasta platan hans er gefin út af City Centre Offices, fyrir þá sem vilja vita það. Lukkulega er hægt að sækja heila plötu og meððí gratís af síðunni hans hér.

Lexaunculpt
Ekki frá mexíkó, sem best ég veit, heldur bara Kalifornískur Kanalingur sem gerir ágætis rafmúsík. Gefinn út af Planet-Mu, leibeli Mu-Ziq (sjá link hér til hægri) sem er minn uppáhalds. Dótið sem ég fíla með Lexaunculpt er kannski ekki týpískt fyrir hann, en bla bla bla bla bla.

Comments(6)


marabou með mintu og krókant er uppáhalds súkkulaðið mitt... mér finnstiggi einu sinni súkkulaði gott, nema þetta...
haribo er danskt maður!

ég hélt að jaylib væri samstarfsverkefni madlib og j-dilla... eru þeir kannski einn og sami maðurnn? úff ég næ ekki öllum þessum karakterum... en mig langar geggjað í þessa plötu..

Lord Quas platan er æði er æði. Og jú, Jaylib eru Madlib og J-dillisjus, tveir kjammar í fullum fíling.

Og já Haribo er danskt. Ég vissi það alveg. Einsog Præben Elkjær Larsen.

Og btw viltu plís ímeila mér rímixinu af Vi er Röde? Og orginalnum ef þú átt hann. Mun fara að gráta úr minningum...!

ertu þá að meina remixið þar sem konan syngur líka og er geðveik hækkun í því?

Bara allt sem þú átt...bring it!