« febrúar 2005 | Aðalsíða | júlí 2005 »

júní 2005 Safn

30. júní, 2005

Nostalgía rímixuð

banana.gif

Á OverClocked ReMix er hægt að finna endalaust magn af allskonar innsendum rímixum af tölvuleikjasándtrökkum. Hljómar flókið, en er mjög skemmtilegt.

Sum rímixin eru mjög fín og gaman að heyra sumt af gömlu lögunum. Kirby's Adventure, Mega Man, Ducktales og Batman.

- - -

...og í gegnum spjallkerfið á síðunni rakst ég á þetta. Jesús Kristur Jesússon.
Girlies, hugsið ykkur um áður en þið gerið númer 2 í Þórsmörk aftur.

10. júní, 2005

Hip Hop safnplata Halla síns

(*btw, smellið á textann og dragið til hægri svo þið sjáið allt blaðrið. Þetta blogg er enn í hassarassi...)

Ef ég væri að búa til plötu með uppáhalds hip hopinu mínu, þá myndi hún verða einhvernveginn svona (mér finnst glatað að setja lögin í einhverja ákveðna röð, en svona er lífið hart):

hoppah in the hood of the house of Halli

01. Black Moon - 'Buck'em Down (remix)'
02. Pete Rock & C.L. Smooth - 'T.R.O.Y. (They Reminisce Over You)'
03. Gang Starr - 'Ex Girl to Next Girl'
04. Main Source - 'Looking At The Front Door'
05. Grand Puba - 'Baby What's Your Name'
06. De La Soul - 'Say No Go'
07. Milk - 'Get Off My Log'
08. A Tribe Called Quest feat. LONS - 'Scenario'
09. Das EFX - 'They Want EFX'
10. Black Moon - 'I Got Cha Opin (remix)'
11. De La Soul - 'Eye Know'
12. Eric B. & Rakim - 'Know The Ledge'
13. EPMD - 'Big Payback'
14. Wu-Tang Clan - 'M.E.T.H.O.D. Man'
15. Grand Puba - 'Ya Know How It Goes'
16. Keith Murray - 'The Most Beautifullest Thing in This World'
17. Lords Of The Underground - 'Chief Rocka'
18. Jeru tha Damaja - 'Come Clean'
19. Hijack the Terrorist Group - 'Badman is Robbin'
20. Blackalicious - 'Swan Lake'
21. LL Cool J - 'Mr. Good Bar'
22. Biz Markie - 'Just a Friend'
23. Big Daddy Kane - 'Ain't No Halfsteppin'
24. Audio Two - 'Top Billin'
25. Mc Solaar - 'Caroline'
26. Paris - 'Coffee, Donuts & Death'
27. Pharcyde - 'Passing Me By'
28. Souls Of Mischief - 93 Till Infinity'
29. Subterranean - 'My style is Phreaky'
30. Craig Mack - 'Flava in Ya Ear (remix)'
31. Wu-Tang Clan - 'C.R.E.A.M.'
32. Ice Cube feat. Chuck D - 'Endangered Species (Tales From the Darkside)'
33. Funkdoobiest - 'Bow Wow Wow'

Þið þarna bloggpungar, nú byrjum við á keðjuveseni:
þið gerið svona lista líka (og iMix og kover með) og látið hann svo ganga útum allan heim.
Blingstúturinn bendiiiiir á....KATRÍNU!

- - -
Updeit: ég bjó til mjög fínt iMix í iTunes og sendi það á netið, en iTunes music store á bara 11 lög af öllum listanum. Oj bjakk. Fyrirgefðu iTunes að ég skyldi ekki hafa Bo Bice á listanum mínum, hann er bara ekki bonafide hip hop. Jonni: hér er iMixið mitt. Það heitir það sama og diskurinn, Halli's House of Hippedy Hoppah vol. 1. Ó grimma veröld.

4. júní, 2005

Gómsætt

Einusinni borðaði ég súkkulaði sem hét Marabou. Mér fannst það ekkert spes, þó svo að auglýsingarnar sögðu mmmmmmMarabou.

Marabou er frá Svíþjóð og þeir eru voðalega stoltir af þessu súkkulaði sínu. Ég veit ekkert hvernig nammi Svíar gera. Haribo lakkrís er kannski sænskur, en kjötbollur eru ekkert voðalega spes nammi.

Úlfur vinur minn hefur spilað á saxafón með hljómsveitinni Kanada. Svíþjóð er ekki á Íslandi en samt ekki heldur nálægt Kanada, sem er fallegt land. Til dæmis er blússandi vestur-Íslendingabyggð í Manitoba og örugglega margir flugdrekar.

Flugdreki á ensku er "kite".
Það er töluð enska í Kanada.
Manitoba er í Kanada.
Marabou rímar við Caribou.

Tilviljun? Ég held ekki.

Einusinni var tónlistarmaður sem kallaði sig Manitoba. Úlfur vinur minn var einmitt sá sem kynnti mig fyrir honum.

Bíðið, það er meira.

Einn daginn kom grimmur pönkari og sagði Manitoba að hann héti Manitoba og því mætti Manitoba ekki heita Manitoba lengur. Manitoba sagði þá bara "ókei" og breytti nafninu sínu í...Caribou. Sem rímar við Marabou. Og hann gerði eitt skemmtilegasta lag sem ég hef heyrt lengi lengi lengi, og í nafni lagsins kemur fyrir orðið "kite", sem þýðir flugdreki muniði.

Þetta er ótrúlegt og ég vil að þið krankið voljúmið upp allverulega þegar þið hlustið á lagið. Ég lofa að þið farið í gott skap og hlustið á það 2-3svar í viðbót.

Caribou - 'Brahminy Kite
af plötunni The Milk of Human Kindness

Meira gotterí:
Quasimoto - 'The Further Adventures of Lord Quas'
Nýjasta platan frá Madlib a.k.a. Jaylib a.k.a. Lootpack a.k.a. Madvillain a.k.a. Yesterdays New Quintet a.k.a. Shades Of Blue. Meira skrýtið og meira skemmtilegt. Hip Hop fyrir prófessora og fuglaskoðara.

Populous - 'Queue for Love'
Unglingur með PC tölvu, hljóðkort og fullt af hangsi. Dose One rappar í einu lagi og þetta er fínt. Stundum einsog cLOUDDEAD, Boards of Canada, Prefuse73, Dj Shadow...en...kannski er þetta ekkert voðalega mikið gotterí. Bara la-la. Einsog hafrakex með engu smjöri.

Marsen Jules
Franskur gaur með smá lubba sem gerir fallega og sterka strengjamúsík úr rafmagni. Mér finnst hún skemmtileg enn sem komið er. Nýjasta platan hans er gefin út af City Centre Offices, fyrir þá sem vilja vita það. Lukkulega er hægt að sækja heila plötu og meððí gratís af síðunni hans hér.

Lexaunculpt
Ekki frá mexíkó, sem best ég veit, heldur bara Kalifornískur Kanalingur sem gerir ágætis rafmúsík. Gefinn út af Planet-Mu, leibeli Mu-Ziq (sjá link hér til hægri) sem er minn uppáhalds. Dótið sem ég fíla með Lexaunculpt er kannski ekki týpískt fyrir hann, en bla bla bla bla bla.

Um júní 2005

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in júní 2005. They are listed from oldest to newest.

febrúar 2005 is the previous archive.

júlí 2005 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31