« ó heilagi músíkgvuð | Main | Gómsætt »

Red & Ginger

Uppgötvaði ótrúlega skemmtilegan músíkgaur sem heitir Freddie Cruger og er held ég sænskur. Hann kallar sig líka Red Astaire, og Cruger & Berger, og býr til svona instrumental skemmti-hip hop, þ.e.a.s. ekkert grín, heldur...æji...meira dans...en samt ekkert korní...og gerir mikið af rímixum...æj...

Það er erfitt að útskýra, en hann er skemmtilegur. Treystið mér. Hann er gefinn út af labelinu G.A.M.M. og gerði t.d. lag sem heitir Follow Me, og mér finnst það skemmtilegt.

Fattaði í gær hvað Modest Mouse er skemmtileg hljómsveit. Elska fyrsta lagið á nýju plötunni. Svo eru þeir líka með skemmtilegt á síðunni sinni.

Og hey, svo er ég búnað verað horfá á Newlyweds, þáttinn um Jessicu Simpson og Nick kallinn hennar. Sko ég hélt að þetta væri algjört drasl (eitthvað einsog Backstage með Britney, eða eitthvað þannig) en svo eridda baaaara fínasta fínt. Hún er náttúrulega dáldið vitlaus (einsog þegar hún varað borða túnfisk og sagði: "Nick, I know I'm eating tuna, but is it fish or chicken?") en það er eitthvað við svona "alvöru" þætti sem ég fíla. Hún er t.d. ekkert með alltof heilbrigðar tennur og notar ekki tannþráð (ég veit, ég veit, algjör skandall!!!) og svo bara...æji, það gerist eiginlega ekkert, svona svipað og í The Osbournes, en þetta er alveg fínt. Skárra en Spaugstofan og Þingsjá.

Comments(4)


Les bloggið þitt mjööög reglulega og finnst þú alveg ótrúlega fyndinn.... nagaði neglurnar á mér upp í kviku af spennu þegar ég las heimferðasöguna í jólafríið:)

ALVEG HILLERÍÖSS:)

:) takk...

Njörður:

Hahahahahhaahahahahahaa. Blómið.

Ja-há, en ekki hvað?