« Dr. Ross Hatsukah... | Main | Red & Ginger »

ó heilagi músíkgvuð

CMJ stendur fyrir ofvaxinni tónlistarhátíð hér í blessuðu borginni frá 13.-16. október, þ.e. frá næsta miðvikudegi fram á laugardag.

Jesús góður hvað það er mikið um hljómsveitir, næstum því of mikið því ég man varla hvað ég sá á listanum og hvað ég erað búa til núna í minninu. Anti-Folk, metall, popp, rokk, elektróník, rapp, rupp (hahahahahahaahahaha), bara hvað sem er.

Ég ætla örugglega að sjá eitthvað af þessu, en þegar úrvalið er svona gríðarlegt þá er kannski best að halda sig bara heima og anda að sér fnyk. Hver bjó annars til orðið fnykur? Það er eitt besta orð í íslenskri tungu, það lýsir nákvæmlega hvað fnykur er í rauninni. Einsog líkþorn. Og ræpa. Og gnýr. En alls ekki bindisnæla. Það hljómar einsog lítil rúsínukaka. En nóg um það.

Einsog einhverjir vita þá stefni ég á að byrja að vinna sem fjölhæfur miðaldra intern hérna útíbæ hjá nokkrum hressum fýrum sem eru í húsi með mjöööög svo hægfara og háværri lyftu sem virkar eiginlega ekki. Ætlaði að byrja í dag (mánudag) en komst að því á föstudaginn að ég þarf að fylla út einhverja erlenda pappíra og fá sérstakt erlent leyfi, og kannski verðuridda eitthvað erlent vesen. En ég fór svo að pæla að kannski er ég með alveg nógu mikið að gera svo ég þurfi nú ekki að bæta á mig einhverri vitleysu í viðbót. Er alltaf dauðþreyttur, líka þegar ég horfi á hátæknitilfinningaþættina Nip Tuck, þar sem ekki er allt sem sýnist skal ég nú segja ykkur. Og þessi unaðslega stundarskrá með frídegi og tímum eftir hádegi suma daga er bara alveg ágæt, en ekkert endilega unaðsleg (svipað og heitt kakó sem maður fær útá götu, það er alltaf bara la la, en voða gott hjá ömmu sinni). Ha, sagði einhver "hárugur herbergisfélagi sem er ekki með vinnu"? Jú, það passar, minn hárugi missti sína á föstudaginn. Veit nú ekki alveg hvernig hann fór að því, ég meina, stundum eru snillingar látnir fjúka (...sérstaklega í mörgum vindstigum, hahahahahahahahahahahahahaahhahahahahahahahahaha), en hann gerði víst einhverja gloríu þegar hann bað ónefndan starfsmann allra náðarsamlegast að troða umræðuefninu lengst uppí rassagatið sitt. Það vakti víst ekki mikla lukku yfirvaldsins sem kallaði drenginn á fund og bað hann að taka pokann sinn. Og skóna sína. Hann mætti því snemma úr vinnu á föstudaginn og var ansi ringlaður. Skiljanlega. Hann var þó með allt sitt á hreinu og sagði "pff" þegar ég spurði vinalega hvort A) Hann væri í lagi, B) hann vissi hvernig hann myndi redda málunum, C) hvort ég væri nokkuð fökkt þar sem hann væri að breytast í róna sem á ekki fyrir leigu, og D) hvort hann væri alveg viss um að geta borgað leiguna næstu mánaðarmót og helst nokkur svoleiðis mót í viðbót. "Pff," var ávallt svarið, "ég er með ALLT á hreinu". Gott, hugsaði ég, þá eru hárin af baðgólfinu kannski líka inná þessu hreina.

En síðan á föstudaginn hefur hann legið undir teppi, ber að ofan að vanda, þar sem hann horfir á sjónvarpið ALLAN ALLAN ALLAN daginn og borðar morgunmat og drekkur bjór og skilur svo allt eftir á frábærlega útreiknaðan "út-um-gjörsamlega-allt" hátt. Hann er greinilega í frábæru jafnvægi og nýtur lífsins út í ystu æsar, eða hvað í fjandanum sem maður segir. Og þegar ég segi "horfir á sjónvarpið" þá er ég ekki að meina að kíkja á stöku DVD eða myndbandsspólu og horfa á eitthvað að eigin vali, kíkja svo í góða bók, fara í sturtu og vaska upp skítinn eftir sig, heldur að spæna niður tökkunum á fjarstýringunni skoðandi algjörlega allt sem er á öllum stöðunum á sama tíma og fylla heilann af þykkfljótandi prumpi. Og bryðjandi MITT Special K.

En kannski má hann njóta lífsins í nokkra daga áður en hann fer enn á ný útá hinn grimma vinnumarkað. Er ég kaldhæðinn? Kannski. Er ég hræddur um að maðurinn sem er alltaf með allt sitt á hreinu sé kannski orðinn pínu hræddur um sitt og geti máski ekki borgað leiguna? Kannski. Fær hann því smá tækifæri til að útbýja alla íbúðina í manna og hangsifnyk? Glætan spætan.

"Shape up and loose that stubborn belly fat" einsog auglýsingin segir!

Og ójá, sá heimildarmyndina DiG áðan. Hún fjallar um tvær vinahljómsveitir, Brian Jonestown Massacre og The Dandy Warhols, og er skemmtileg. Bætið henni á listann ykkar yfir möst-sí myndir og krassið yfir allar Steven Seagal myndir í leiðinni.

Hér megið þið skoða hvað er í boði á músíkfestinu. Skemmtið ykkur vel á Kaffibarnum á meðan.

CMJ Music Marathon (linkarnir fyrir dagana eru þarna á milli gula og blágræna...grænbláa...eitthvað)

Comments(2)


Þetta endalausa sjónvarpsgubbsrugl og að borða morgunmat allann daginn, það er svona sér amerískt fyrirbæri. Ég held að ég hafi í fyrsta sinn á ævinni séð manneskju fá sér seríós um kvöld þegar ég var í LA. Sama mannvera horfði á sjónvarpið á daginn...

Já, þetta er eitthvað mjög skrýtið. T.d. átti Seinfeld alltaf ca 8 tegundir af morgunkorni í skápnum og var ALLTAF að bryðja svoleiðis. Skiliddiggi.