« júlí 2004 | Aðalsíða | september 2004 »

ágúst 2004 Safn

21. ágúst, 2004

Syngjandi tré og síblaðrandi surtir

Sufjan og Silfurrefirnir

Fórum á ansi hressilega tónleika í gærkvöldi. Sáum Sufjan Stevens ásamt Michigan Militia Band, en Brother Danielson úr Danielson Famile (lesist sem "familí") hitaði upp fyrir Sufjan með allri familíunni með. Reyndar hitaði einhver annar gaur líka upp en hann var væminn, mjúkur og leiðinlegur. Ekki það að ég hati mjúkleika og stöku væmni, en þessi gaur var aumingi með vonda texta.

Fjölskyldubandið Danielson Famile var stofnað af elsta bróðurnum, Daniel Smith, sem lokaverkefni í tónlistarskóla. Með honum spila og syngja tvær systur og þrír bræður en hann er aðal kallinn, semur lögin, syngur aðal og plataði alheiminn til að halda að þau væru sannkristin fjölskylda með eftirnafnið Danielson. Sem er reyndar satt þar sem hann er faðir bandsins og þau spila með honum og eru skyld honum, þúveist, DanielSON og allt það. Já útlönd, þau eru flókin.

Í gamla daga spiluðu þau í sérsaumuðum hjúkku- og læknabúningum, en í dag eru öll systkinin í grænbláum pólóbolum fyrir utan Brotherinn sem klæðist heimasaumuðu tréi:

...og ávextirnir dingla með!

Auk þess að verða rennisveittur við að syngja lögin með háundarlegu röddinni sinni þá var hinn risastóri og gríðarlega skemmtilegi búningur ekki að kæla hann niður. Á milli laga smaug hann úr gervinu og þurrkaði sér með vasaklúti og þambaði flöskuvatn og við strákarnir vonuðum að einhver myndi stökkva uppá svið og moppa á honum bakið. Það glansaði svo fallega í ljósunum. Á risastóra trénu dingluðu handsaumaðir ávextir: banani, melóna, epli, appelsína, ástaraldin og eitthvað rauðleitt sem var kannski rófa og minntu þeir mig á sjónvarpsföndrið með Herdísi.

Brother Danielson og ættin hans voru frábær.

Sufjan Stevens er frá hinu 'dásamlega' fylki Michigan. Sagan segir að foreldrar hans hafi fundið hann í mjólkurkassa á dyramottunni ásamt miða sem á stóð "Ég elska þig". Þau skírðu hann Sufjan í höfuðið á Armenskum vígamanni sem drap fleirihundruð dreka til að bjarga einhverri prinsessu, og fékk hann því nafnið Sufjan sem passar vel við hin nöfnin í fjölskyldunni: Jo-Jo, Zukey-Dukey og Jam-Jam.

Sufjan varð yfir sig hrifinn af fylkinu sínu og í fyrra gaf hann út plötuna 'Greetings from Michigan: The Great Lake State' þar sem hann fer fögrum orðum um fylkið og dásemdirnar í kring. Yndislegur drengur með himinfagra rödd og unaðsmjúka texta. Engin væmni, heldur bara tandurhreinn og slátr-beittur kveðskapur. Michigan Milita Band eru að sjálfsögðu líka frá Michigan og spiluðu á lúðra, xylophona, gítara og trommur einsog þau fengju borgað fyrir það. Sem þau gerðu auðvitað. Og svo sungu þau með, sérstaklega stóð Angelina Jolie lúkkalækið sig vel.

Hann mætti með handgert kort af Michigan (surprise?) og á milli laga sagði hann sögur úr lífi sínu og annarra fylkisgranna. Hann notaði orðið 'exciting' og þá hló ég innilega því þetta var einsog að nota orðið 'geysispennandi' í miðri sögu um Borgarnesbrúnna. Hann var þó kaldhæðinn og glotti, enda snillingur.

Mæli með því að allir í heiminum kaupi plötur með Sufjan og öllum í Danielson Famile.

Annar kaldhæðinn og sí-stríðandi maður er Njörður Njarðarson. Þegar við vorum í leiðinlegustu og óvæntustu skó- og fatabúð í veröldinni (hún virtist lítil utanfrá, svo stækkaði hún endalaust þegar maður kom inn og var á mörgum hæðum og allt, oj bjakk!) þá heyrðu ég og Njörður einhverskonar tísterí. Ég leit í kringum mig og spurði Njörð hvað þetta hefði verið.
Hann svaraði strax: "Páfagaukur".
Ég: "Haa? Páfagaukur inní búðinni?"
Njörður: "Jább, hann flaug hérna framhjá. Var að sjá hann."
Ég: "Nei, þú ert að ljúga. Það er ekkert páfagaukur inní búðinni!"
(ég leit á fullu í kringum mig og hlakkaði til að sjá páfagaukinn, kannski var hann fallegur á litinn, en fannst ótrúlega skrýtið af eigendunum að hafa hann lausan, sérstaklega ef hann var dýrmætur, hann gæti jú sloppið...)
Ég: "Var þetta í alvöru páfagaukur?"
(...og fór að hugsa að kannski væri það bull.)
Njörður (lítur á mig): "Jább".

Ég stoppaði þá aðeins og hugsaði mig um. Svo hugsaði ég mig betur um og komst að því að það er ekki sjens að það sé páfagaukur á flögri inní skóbúð. Ég leit á Njörð og sá hann horfa á mig einsog ég væri fífl. Sem ég var.

Um ágúst 2004

This page contains all entries posted to Musik Kontrapunkt Kontrol in ágúst 2004. They are listed from oldest to newest.

júlí 2004 is the previous archive.

september 2004 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31