Þeir sletta smjörinu sem eiga það!
Á ennþá í erfiðleikum með að fatta erlent internet. Tölvan mín, íslensk að uppruna, vill ekki tengjast netinu lengur en 2 sek. í senn og því get ég ekki tékkað á pósti eða skrifað hér nema nota tölvu rúmmeitsins eða hanga í tölvubúðum (og er eiginlega búinn að fá nóg af því í bili). Er líka búinn að hringja í Time Warner ("The Place To Be" einsog símsvarakonan segir alltaf) 5 kvöld í röð og fara í gegnum allar mögulegar stillingar með alþjóðastarfsliði tæknideildarinnar, án nokkurs árangurs what-so-evör.
Er að fara á tónleika með hljómsveitinni Antibalas Afro Orchestra, þetta eru útgáfutónleikar nr. 2 og verður vonandi svaka stud. Þeir spila svona afro-funk eða afrískan svitahrynjanda einsog íslendingar myndu kalla það og spila það vel.
Ég og Dave fórum í gymmið í dag þar sem Dave bað um góðan prís fyrir stjúpbróður sinn, mig. Það rann áfram einsog bráðið smjör og ég fékk dúndurprís, núna bíð ég bara eftir að finna fötin þrengjast og líkamann blómstra af hamingju.
Talandi um smjör, í gær fór ég og fékk mér að borða á ítölskum sjávarréttastað. Þar sem ég gerði mig reiðubúinn að smyrja brauðið mitt kom lítil ljót fluga og flögraði án afláts við andlitið mitt. Ég veifaði litlaputta í áttina að henni en þar sem það gerði ekki neitt sveiflaði ég höndinni harkalega og sá þá smjörklessuna fljúga af hnífnum, svífa fallega u.þ.b. 2,5 metra og lenda rétt við lappirnar á konu sem naut matarins með manni sínum. Ég leit snöggt í kringum mig á meðan mér hitnaði á bakinu og þar sem enginn var að horfa á mig hélt ég bara áfram að nudda þurrt brauðið með þurrum hnífnum. Rækjurnar voru ágætar og ég drullaði mér út.
En núna: músík.