Halli
Frágengnisbit
Nei, ókei, hann er þrútinn og ýkt heitur, og mig klæjar eeeeendalaust, og fór áðan útí apótek (skrifaði fyrst bakarí) og kauffti krem. Apótekið er hinumegin við gatnamót þar sem tvær þriggja akreina götur mætast, og því hlýða allir (nema Chuck Norris) gangbrautarljósaköllunum. Þegar ég labbaði tilbaka yfir gangbrautina var ég kominn yfir ca tvær akreinar af þremur þegar *SVVÚÚSSSJJ* minivan straujaði framhjá mér upp þriðju akreinina (allt, allt of nálægt) og beint á bíl sem keyrði á grænu yfir gatnamótin. Ég starði á bílana skella saman og fraus, og tékkaði á gaurnum sem sat ringlaður í bílnum á miðjum gatnamótunum (með trilljón bílaflautur sem þemalag). Áreksturinn var ekkert svo harður og enginn meiddist þannig séð. Fólksbíllinn (í rétti) lenti með hornið á stuðaranum á miðjum Minivaninum, þannig að fólksbílsstuðarinn hvarf og númeraplatan flögraði í burtu.
Það var þó eitt ótrúlega fallegt við skellinn. Plastbútur af fólksbílnum skaust þráðbeint leeeengst uppí loftið, og stoppaði í sekúndubrot áður en hann féll þráðbeint niður og skoppaði á húddinu, og stöðvaðist þar. Og á meðan ég fylgdist með þessu fannst mér vera þögn og svona fjúkihljóð.
Skringilega fallegt og ljóðrænt og dramatískt.
Enníveis, þetta er ekki nærridauðareynsla, bara blaður. Ég ákvað að bíða eftir löggunum og segjast hafa séð konuna svúsja yfir á rauðu ljósi, bara svo gaurinn (sem nuddaði magann sinn og gretti sig) lenti ekki í einhverju tryggingaveseni. (Ég lenti í nákvæmlega sama um jólin 2006, þegar ég varað keyra heim og klessti á stelpu sem fór yfir á rauðu ljósi. Kona í göngutúr var eina vitnið, enda engin umferð, og ég var mjög þakklátur, þó ég hafi reyndar haft meiri áhyggjur af stelpunni, sem endaði meðvitundarlaus á spítala. En hún er ókei, ókei?). Enníveis, ég gaf upp nafn og infó, og krotaði infó handa gaurnum. Honum var illt í maganum eftir loftpúðaskellinn, og á meðan hann, í miðri skýrslusköpun, fór alltíeinu í keng og gubbaði á götuna, notaði minivankonan tækifærið tilað reyna einhvernveginn að sannfæra mig að hún hefði sko ekkert farið yfir á rauðu, það hefði verið skærgrænt.
Ég sagði "vertu ekki að pæla í því, við skulum bara vera fegin að enginn hafi meiðst alvarlega. Svona gerist á einni sekúndu, lítið hægt að gera í því þá, og ekkert hægt að gera núna. Eruð þið alveg ómeiddar?" og fleira vinalegt, enda er ég svo vinalegur og hjálpsamur vegfarandi.
Og þá hnussaði hún og hreytti í mig að hún væri algjörlega viss, og ranghvolfdi augunum og stundi eitthvað. Þá langaði mig að garga. Hún keyrði næstum á gangandi mig, og ég er búinn til úr mun mýkra (og dýrmætara) efni en bílar, og ég var bara búinn að vera næs...fnæs!
Ég sagði þá löggunum (það sem ég sleppti áður) að það hefði engu munað að hún keyrði á mig og annað fólk þegar hún brunaði yfir á rauðu, og setti upp svip sem átti að þýða "Hr. Lögregla, vinalega bið ég yður um að stuðla að því að bílstjóri atarna verði auðmjúkur almættinu og átti sig á mikilvægisleysi þess hver gerði hvað, og að hún eigi að vera þakklát fyrir að vera með meðvitund."
Dílaðu bara við það sem þú gerðir af þér, kona góð, og taktu afleiðingunum. Gapastokkur, svipuhögg, eldmaurar, kláðaduft, og vitlausar pantanir.
Tilað fagna lífsbjörginni þreif ég baðherbergið og bar krem á olnbogann. Apóteksgaurinn skemmtilegi sagði að ef þú berð of mikið krem í einu, þá getur kremið farið útí blóðrásina þegar húðin sýgur það allt upp. Þessvegna er betra að bera þunnt lag oft, en að fylla plastermi af kremgutli. Mundu það, fjelagi! Nú ætla ég að borða, og (reyna að) klára að setja allt á sinn (nýja) stað. Það eina sem böggar mig er að það var ryksugulykt úr loftkælitækinu.
Alphabet eftir Lóu og Árna - S er fyrir svo fínt!
The Alphabet by Lóa
music by FM Belfast
<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/okxJCp_f3Lw&hl=en"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/okxJCp_f3Lw&hl=en" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>
Lag eftir mig spilað á BBC...
Þátturinn 'In New DJs We Trust' á BBC spilar góða músík, það er á hreinu.
Sjáðu efsta lagið á playlistanum:
Mark Morrison – ‘Return Of The Mack’ [Kontrapunkt's Fallery of the Mack Rmx] (White)
Já, þetta er lagið mitt, hér er vídjó og mp3.
Apaheili með tré og skó
1.
...fór ég í verslun tilað skipta skóm sem ég keypti á vefnum þeirra. Í síðustu viku spurði ég hvort ég gæti skipt þeim. "Auðvitað!" sagði verslunarstjórinn.
Ég valdi vörur, fór að kassanum. "Keyptirðu þetta á netinu?" spurði stúlkan mig. Ég útskýrði málið. "Nei, þú þarft onlæn kvittunina". Ég útskýrði málið aftur. "Já, nei, því miður".
Ég borgaði og labbaði frá kassanum. Þá muldraði hin afgreiðslustúlkan, sem hafði fram að því staðið grafkyrr og varla andað, "Hann getur alveg skipt þeim, þú notar bara kóða 5980384...".
Stúlkan stimplaði eitthvað inn og sagði "þú færð inneign". Ég vildi þá skila því sem ég varað kaupa og nota inneignina á það. Þá sagði stúlkan "æj, nei, sorrí, þú getur ekki fengið inneign".
Ég sagði ókei og labbaði frá kassanum.
"Æj, sorrí, þú getur fengið inneign". Hún skannaði inn það sem ég var nýbúinn að kaupa.
"Hvað ertu að gera?", sagði yfirmaðurinn hennar. "Þetta er ekki hægt".
Nei, já, nei, já, nei, já, nei, já.
2.
...keypti ég tvo viðarplanka tilað nota sem hillur.
Yfirmaðurinn í viðarplankabúðinni var ýkt "fyndinn". Ég var vitlaus að vita ekki hvaða tegund af við ég vildi, ég var ýkt vitlaus að fatta ekki hvað "1/8th of an inch" er mikið, og starfsmannsgreyið sem sagaði plankana fyrir mig var vitlaus fyrir að...vera til, býst ég við.
Það kæmi mér ekki á óvart að sjá starfsmennina labba grátbólgna heim í lok hvers vinnudags. Ó að vera karlmenni.
Ég spurði sagarann hvort hann myndi ekki saga plankana nákvæmlega eftir málinu mínu. "Jú, auðvitað!" sagði hann með lokuðum augum manns sem veit hvað hann er að gera. "Vinnum við hérna eða þú?" sagði yfirmaðurinn.
Þegar ég kom loks heim með plankana sá ég að niðurrakkaði sagigaurinn sagaði ekki rétt, þannig að plankarnir skorðuðust skemmtilega á ská á milli veggjanna. Ég brosti og grét.
3.
...hljóp ég niðrí tólabúðina sem er á næsta horni tilað kaupa sög. Ég talaði við skósveininn, því pirraði austur-evrópski búðareigandinn var að skamma einhvern viðskiptavin fyrir eitthvað heimskulegt, býst ég við, einsog alltaf þegar ég kem í búðina. "Viltu SVONA málningu? Hálfviti." o.s.frv.
Ég bað um ódýrustu sögina, og skósveinninn rétti mér eitthvað sem ég hélt að væri málmsög. Nei, sagði skósveinninn, hún er fyrir bæði. "Jebb, alveg viss", bætti hann við með lokuð augun þegar ég spurði hann þrisvar í viðbót, vildi nefnilega vera viss því sögin var þrefalt ódýrari en ódýrasta týpíska viðarsögin.
Ég varað farað borga þegar hann sagði "en...við getum líka sagað fyrir þig...kostar ca $1 á hvern viðarbút." Það var sniðugt, því þá myndi ég bæði spara $3, og ekki sitja uppi með sög sem ég nota líklega aldrei aftur. Ég lýsti viðarplönkunum, "Jebb, alveg viss", bætti hann við með lokuð augun.
Ég hljóp heim og sótti plankana og hlunkaðist með þá innum búðardyrnar.
"Hvað er þetta???" spurði pirraði austur-evrópski búðareigandinn og starði djúpt í sálu mína. Ég labbaði varlega að afgreiðsluborðinu og sagði lágt "uu, hann sagði að þið gætuð sagað þetta fyrir mig? Bara ca eina tommu af..."
"Við sögum ekki neitt. Ekkert!" sagði hann og tókst bæði að skelfa mig og skósveininn.
*Slurp* sagði rörið í kaffidrykknum sem skósveinninn sötraði vandræðalegur á meðan hann fylgdist vandlega með klökunum í glasinu, þar sem þeir slógust utan í hvorn annan í síminnkandi yfirborði kaffidrykkjarins.
Íbúð til leigu á Manhattan í sumar (2008)
Áhugasamir sendi tölvupóst á: email@icomefromreykjavik.com
Hæ elskulegir vinir mínir, nær og fjær.
Ég vil finna yndislega Íslendinga tilað leigja íbúðina mína á Manhattan í sumar. Íbúðin er laus frá 12. maí til 9. júlí, og allan ágúst.
Helst vildi ég finna leigjendur sem verða í New York í sem lengstan tíma í einu, og fá þeir forgang (þ.e. þrjár vikur eru betri en ein, o.s.frv.) -- en ég vil leigja hana áhugasömum og hjartagóðum sem ætla sér að heimsækja New York í einhvern tíma, stuttan eða langan.
Íbúðin er á frábærum stað á frábærri Manhattan, á 33. stræti og 3. avenue, í hverfi sem heitir Murray Hill [ sjá kort ]. Íbúðin er stúdíóíbúð með parketi, inngengnu flísalögðu eldhúsi, inngengnum fataskáp (walk-in closet), og baðherbergi með glimrandi baðkari. Hér er 3ja sæta sófi, tvíbreytt rúm, sjónvarp, DVD-spilari, internet, og loftkæling. Þvottahús eru allt í kring. Rúmið mitt er fáránlega þægilegt, Tempur Pedic, þannig að allir leigjendur snúa heim til Íslands með læknað bak. Þetta verður einskonar heilsu-verslunarferð.
Hér er fullt af allskyns veitingastöðum frá öllum hornum alheimsins, tveir ilmandi ferskir súpermarkaðir (opnir 24/7) eru sitthvorumegin við götuna, neðanjarðarlestarstöð í 2ja mínútna fjarlægð, apótek (selur nammi, krem, og gos, opið allan sólarhringinn) á næsta götuhorni, stórt bíó og bókabúð einni götu frá, besti sushi-staður sem ég hef borðað á, ótrúlega gott guacamole beint á móti húsinu, og margt fleira sem gleður hjartað mitt á hverjum degi. Stutt labb á Herald Square, þar sem þú finnur Macy's ofurverslunarmiðstöðina, ásamt Manhattan Mall, Victoria's Secret, H&M, Gap, Sephora snyrtivörubúðinni, Footlocker skóbúðinni, og endalausu öðru. Fyrir allt annað (SoHo, East Village, Brooklyn) er hægt að taka lestina (sem er ó svo nálægt) eða hoppa uppí misglansandi leigubíla sem stoppa beint fyrir utan (eða hvar sem þú vilt).
Stúdíóbúð til leigu á Manhattan frá 12. maí til 9. júlí, og allan ágúst
Netfangið mitt er: email@icomefromreykjavik.com
Verðið er í kringum 10.000 kr. á nóttu, en fyrir lengri tíma er miklu lægra verð.
Elsku lesandi, hjálpaðu mér að leigja íbúðina, og segðu öllum sem þú getur.
Elsk,
Rústirrrr
Það er gaman að sjá það sem hefur breyst mikið, og líka það sem er eins. Það fyndna er að útkrotaðar lestir og jive-talkin' villingar með hárband, og spilltar löggur í brúnum jakkafötum er eitthvað sem ég bjóst við að sjá útum allt þegar ég kom hingað fyrst 1995, bara afþví að ég var búinn að sjá þannig í myndum.
Ein myndanna sem ég sá heitir Downtown 81, og fjallar eiginlega um Jean Michel Basquiat sem vaknar á spítala og fer svo í göngutúr um New York og hittir vini, vandamenn, áhangendur, listakaupendur og Fab 5 Freddy, James White & The Blacks, Melle Mel, Debbie Harry, og aðra hressa.
Það besta við myndina er tónlistin og fólkið sem hann hittir, en það er líka gaman að sjá hvað Lower East Side er hrrrææææðilega gritty. Inná milli húsa eru grjóthrúgur, og húsin sjálf eru gluggalaus, hurðalaus, og stundum búið að mölva tröppurnar uppað hurðargatinu. Allt skítugt, grátt, brúnt, og viðbjóðslegt með götum.
Þó þessi mynd sé forvitnileg er hún gríðarlega leiðinleg og asnaleg, döbbuð (mjög illa) og alltof kjánaleg. Sándtrakkið er samt frábært (ég er búinn að eiga það í dáldinn tíma) og það var mjög gaman að sjá Coati Mundi, stuðboltann úr Kid Creole & The Coconuts, syngjandi sveittan að garga frábæra lagið 'Que Pasa / Me No Pop I' á sviði einhvers stuðklúbbs. Ef þú vilt heyra, þá er það hér. (Þessi útgáfa er samt aðeins ólík þeirri úr myndinni, sem er meira læv.)
Sjáðu myndina fyrir söguleg merkilegheit og tilað geta neimdroppað henni næst þegar þú ferð á Nonnabita, en sjæt, vertu með helling af nammi og tissjú tilað þurrka kjánasvitn.
Nálafar á sálu minni
En nei, ég vildi bara spilara sem ég get átt þangað til ég verð meira en fertugur, sem, hóst og klígj, er ekki alltof langt í. Og pre-ampinn litli er bara USB-kraftaður og er hljóðkort í leiðinni, þannig að ég geti tekið upp plöturnar mínar (þ.e. ekki lyft þeim frá jafnsléttu, heldur hljóðritað hljóðritanirnar) og sungið.
Mig langar samt í ákveðna Ortofon nál, sem er aðeins hljómbetri en þjarkurinn sem fylgdi með spilaranum (týpísk Dj-nál sem ég hef ekkert að gera við, ég vil hvorki skratsja né spila á Ömmu Lú). Það kom mér frábærlega á óvart að Pfaff á Íslandi selja Ortofon nálar--sem þeir kalla hljóðdósir--á lægra verði en í Bandaríkjunum og Evrópu...þannig er sjaldgæft á Íslandi í dag. Og starfsmaðurinn sagði leiður að því miður myndi verðið hækka um 1000-1500 krónur vegna gengisbreytinga, en nálarnar eru samt ódýrari, hale-ortofon-lúja.
Fyrir nokkrum dögum fékk ég uppáhalds plötuna mína í pósti, sem er dýrasta plata sem ég hef keypt. Þetta er eina eintakið sem ég hef séð til sölu síðan 2005 (fyrir utan eitt sem kostaði nokkurhundruð dollara, og telst ekki með), og ég kyssti það laumulega og hélt því í fanginu og hvíslaði fallega og hreinskilið áður en ég strauk því með dönsku hreinsiglundri búnu til úr uppgufuðum tárum einhyrninga og þurrkaði með skinni af þýskri eineygðri fjallakanínu sem var veidd með lásboga úr fílabeini af þremur hreinum meyjum undir hraunfossi. Nei djók, ég er ekki algjör hljóðpervert, ég notaði bara klút. Erfðagrip úr Titanic, ofinn úr hollensku silki sem Svartskeggur týndi úr arnarhreiðri á tindi Vesúvíusar. Nei djók, bara hvítan klút sem fylgdi með danska glundrinu.
Símaatsklúður
Hann: "Do you sell Angus burgers?"
Ég: "Uuhhmm..no."
Hann: "Why not?
Ég: "Hmm, I did, but I don't anymore."
Hann: "But I want my Angus burger, why can't you give me my Angus burger."
Ég: "Okay, meet me in ten minutes, I'll have your burger."
Hann: "Huh...?"
Ég: "Make it seven. You better be there."
Þögn.
Kyngj.
Skellt á.
Finndu tvær villur
Skoðaðu myndina vel.
Pixeloo gerir alvöru Hómer og Jessicu og Mario...
Hann er búinn að gera þrjá karaktera: Hómer Simpson, Jessicu Rabbit, og Mario, og þetta er ólýsanlega fínt, krípí, martraðarskapandi, fallegt, og allt í einu.
Ég meina...sjáðu:
Ég myndi skrækja úr geðshræringu og sturlun ef ég hitti manninn að ofan. Svo myndi ég vilja koma við andlitið á honum. Svo myndi ég skrækja meira og missa meðvitund.
Skoða. Núna. Linkarnir eru með miklu stærri myndir.
- Hómar Simpson
- Jessica Rabbit
- Mario
Næst ætlar hann að gera Stewie úr Family Guy. Ég  bíð spenntur og hræddur.
Chuck Norris á Twitter
Frábært!
Á meðan ég beið eftir piffunum komu tvær "skvísur" inná staðinn. Báðar með bluetooth headset að tala við hvora aðra og eyrun sín. Piffugaurarnir urðu allir linir og skrýtnir og gæjalegir.
Hann tók þeirra pöntun, og teygði sig svo í piffuna mína og rétti mér og sagði "here you go love".
Jói talaði um undarlegu og skemmtilegu tónleikana sem ég, Lóa og hann fórum á síðasta laugardag. Ég og Lóa vorum búnað vera fáránlega æst, aðalbandið var sko metal Bee Gees koverband sem heitir Tragedy, en við vildum mest sjá upphitunarbandið...sem var Kiss koverband...sem hét Mini-Kiss...og eru dvergar!!!
Þetta...var...svo...skrýtið!
Söngvarinn og trommuleikarinn (sem litu út einsog Danny Devito og Hugh Grant, respectively) voru þeir einu sem spiluðu í alvöru á hljóðfæri, hinir tveir héldu á ótengdum bassa og gítar og glömruðu bara...líka þegar það var trommusóló...og stundum þegar lagið var búið...og kunnu ekki alveg textann...
Mini-Gene (með ótengdan gítar) var fráááááááááábær. Hann sveiflaði tungunni og starði og brosti allan tímann og spýtti og slefaði gerviblóði og fór í Slash-búning og allt.
Og þetta var svo skrýtið að við störðum eiginlega allan tímann. Það má alveg hlæja þegar dvergar performa svona, og ég hló alveg, en gapti meira.
Metal Bee Gees var líka ýkt fínt. Kúabjöllubumbugaurinn var fínn, og þeir sungu hátt og víbrandi metal sem er svooo fínt. Dáldið einsog Dio. Fyrsta band kvöldsins var Van Halen koverband, og þeir voru líka mjög fínir. David Lee Roth-gaurinn var með geeeðveika rödd, en Jump var dáldið skrýtið án hljómborðs.
Ég fattaði að ég kann eiginlega engin lög með Kiss. Varað vona að þeir spiluðu Crazy Nights, sem ég hlustaði á þegar ég átti kúrekastígvél (á sama tíma, ekki endilega í þeim).
Allar stelpurnar þarna inni voru past their prime, þó þær voru á mismunandi aldri. Allar búnar að ná hátindi fegurðar sinnar og við hittumst þar sem þær ultu niður bratta brekkuna einsog aurskriða, klessandi á tré á leiðinni. Ókei, kannski smá ýkjur, en samt frekar satt.
Minnti mig dáldið á a-ha! tónleikana sem ég fór á hér. Ég var örugglega yngstur, og á aðdáendaklúbbsmyndinni sem ég fann á netinu daginn fyrir tónleikana voru allir kallarnir með yfirvaraskegg, bumbu, og derhúfu. Frábært fólk samt, alveg frábært.
múm-tónleikarnir í gær voru æði, og ótrúlega gaman að hitta alla. Svo yndislegt fólk, þúveist. Eftir sjóvið tókst Jóa að fá mig, Sillu og Eika tilað elta sig, eða nei, leiða sig (hann vissi ekkert hvert hann var að fara) í leit að stað þar sem hægt er að hitta Lenny Kravitz og Kevin Kline og Richard Dreyfuss, aðal celebin. Á okkar löngu göngu um eilífðina, sem var meira fram og tilbaka heldur en fram, varð okkur svo mál að pissa að við löbbuðum eiginlega stjörf.
Við enduðum á að strunsa inná diner og á leiðinni á klósettið rákumst við á John vin minn (sem kenndi mér hljóðkúrs) og settumst svo hjá honum og borðuðum franskar, salt, tomato ketchup, tuna melt, brucchetta, smá pipar, og töluðum um munkaklaustur, frábæra og leyndardómsfulla myndavél, og tilfinningar.
Hlakka til í framhald í kvöld.
Og já, fyrir einhverjum vikum síðan fór ég á frumsýningu á Chapter 27, mynd um gaurinn sem skjótti John Lennon. Jared Leto þyngdi sig um þrjátíu kíló fyrir hlutverkið (já, 30kg) og er frekar fínn. Afþví þetta var frumsýning var hann á staðnum, og talaði í eina og hálfa mínútu um eitthvað sem ég man ekki hvað var, ég var of bissí við að vera kaldhæðinn tilað hlusta. Þessi málsgrein er semsagt um það móment í lífi mínu þegar ég hitti Jared Leto.
Og einhverjum vikum seinna fór ég á frumsýningu á myndinni The Visitor, eftir leikstjórann sem gerði The Station Agent, sem er frábær. The Visitor er líka frábær, aðallega afþví að leikstjórinn er svo klár í að forðast allar mögulegar klisjur. Myndin er nefnilega tilfinningavellingur, en er frábær. Og þessi málsgrein er um það móment í lífi mínu þegar ég hitti leikstjóra myndarinnar og hlustaði á hann svara ömurlegum spurningum úr salnum. Hefði viljað spyrja hann að einhverju, en veit ekki alveg hvað það ætti að vera.
Youngme / Nowme
Fólk sendir inn myndir af sér sem barni, og svo fullorðnum í sömu stellingu.
Sumar eru sniiiiiiðugar!
Þetta er í leiðinni keppni um bestu myndina, og hægt er að senda inn fram á sunnudag.
Sirkus í miðbæ Reykjavíkur...
Það er ekki nóg með að ákveðið hafi verið að rífa Sirkus þvert á mótmæli og vilja flestra íbúa Reykjavíkur...
...heldur voru fengnir bara einhverjir trúðar tilað teikna upp nýja planið fyrir Hljómalindarreit, og það auðvitað samþykkt bakvið tjöldin!!!
Mmmsjón
Hingað til hef ég ekkert getað hlustað á plöturnar mínar, sem er dáldið erfitt þar sem sumar þeirra var gríðarlega erfitt að eignast. Dáldið erfitt sinnum gríðarlega erfitt samasem mjög, mjög erfitt. Það er mjög skemmtilegt að hlusta á allar b-hliðarnar og vókalana sem fólk hefur ekki nennt að rippa, eða vill ekki því það hlustar bara á instrúmentala. Oftast er þetta fólk sem skilur ekki tónlist, he he.
Akkúrat núna er ég að hlusta á 'Rosalie (Pop & Go!)' með Rewind, sem er svo frábært. Þú getur hlustað á Kontrapunkti.
Keypti plötuna að ofan á 6 evrur, og borgaði 8 evrur í sendingarkostnað. Asnalegt, hmm? Þetta er einmitt það bjánalegasta við að finna uppáhalds vínyl á frábæru verði. Oftast reyni ég því að safna í smá bunka til sendingarkostnaðurinn borgi sig, en stundum langar mig bara í þessa einu plötu frá viðkomandi seljara + að það er drulluerfitt að finna sumar plötur í ástandi sem við viljum = verð bara að kaupa hana.
Og já, ég verð. Þú eyðir í leðurjakka og bensín, ég borða grilluð hrísgrjón og kaupi lystisemdir.
Ég er samt búinn að fara algjöra anal-safnaraleið. Keypti danskt plötuhreinsiglundur frá gaur í Bretlandi (kostaði samt jafn mikið/lítið og dót hér í USA), og er búinn að hreinsa allar plöturnar mínar (þrífa sumar, hreinsa aðrar) og stinga þeim í nýjar poly-nærbuxur, og öllum myndaumslögum í plastvasa.
Þetta er svo gaman. Ég veit ekki hversu langt ég er frá því að kaupa mér spæjarablacklight, stækkunargler, hvíta hanska og smásjá, en þetta er hollt fyrir hjartað, svo ég minnist nú ekki á eyrun mín og almenna vellíðan og andlegt jafnvægi.
Annað sem er fáránlega augljóst, er að munurinn á því að hlusta á þessa músík á vínyl úr plötuspilara í gegnum formagnara inn í (góð) heyrnartól, versus vel rippuð mp3 í gegnum tölvuhátalara (meiraðsegja AAC) er ólýsanlegur. Það er allt-allt-alltof langt síðan að ég hef hlustað á "nýja" uppáhalds músík svona, fnæs! Ég ætla ekki að skrifa endalaust um það, því þeir sem vita muninn (og hafa hlustað eftir honum) vita auðvitað hvað ég meina--og ég er ekki að meina það að plötusnúðast með vínyl, heldur að hlusta og heyra músík heima hjá sér--en ég varað fá kalt þorskflak í andlitið. Planið mitt var að rippa plöturnar í AAC eða FLAC og hlusta úr tölvunni, og þó ég geri það alveg þá langar mig í leðurstól og heitt kakó fyrir framan plötuspilarann minn.
Ég fékk spilarann á $306, sem er það sem ég vildi borga, og með öllu því sem ég nefndi að ofan (ónotað flightcase sem kostar annars um $100 og nál á $100) og miðað við að nýr spilari kostar um $500 þá er þetta frábærasti og ástsælasti díll sem ég hef gert í nokkrar vikur. Annar góður díll varað finna frábæra plötu á $7 sem kostar oftast um $60 eða meira (og hún var óopin!), og að finna Izze, sem er allskonar bubblaður ávaxtadjús í glerflöskum, enginn sykur, bara ávaxtaglundur, en er ýkt sætt og svooo gott, mmm, we þamb it all the time.
Sá að Heimilistæki eru að selja SL-1200 á 74.000 krónur. Fliss. Hér er hægt að kaupa tvo nýja SLa og mixer á ca $1200. Reiknaðu muninn. Það fyndna og stórmerkilega er að SL-1200 MKII, sá sem Heimilistæki (virðast) selja, er búinn að vera óbreyttur síðan 1978. Það þýðir, síðan 1978: sama verksmiðja, sama færiband, sömu hlutir, og af þessum sökum (og það sem er svo skemmtilega merkilegt), sama verð. Aftur: plötuspilarinn hefur ALDREI kostað 74.000 krónur. Verðið hefur verið um $500 dollara í þrjátíu ár. Bla bla bla.
Hey, ef þú ert ennþá að lesa, veistu um einhvern sem á íslensku hljómsveitina Módel á vínyl? Ég er helst að leita að 'Lífið er lag', sem var í Eurovision-forkeppninni, en langar í allt sem er til með þessu bandi.
Svo langar mig líka í Eiríks Haukssonar 'Mitt á milli Moskvu og Washington' ef það er til, jafnvel þó að það sé á kassettu.
Nenniru í alvöru að hugsa um þetta í nokkrar mínútur og reyna að muna hvort þú hafir t.d. horft á frænda þinn (þennan sem var með skunkaskott dinglandi úr eyranu) spila þetta á meðan þú renndir þér á hnjánum á parketinu og bræddir Don Cano buxurnar inní hnén þín...plís?
Ég skal hirða/sækja/eiga/kaupa, ef einhver vill henda/gefa/fleygja/selja.
Mig langar líka í Cosa Nostra (með Mána Svavars) en kannski á það enginn?
Og reyndar langar mig líka að komast í plötusafnið þitt ef það inniheldur (íslenskt og útlenskt) diskó og danstónlist frá 1912-1993.
Komaso, átak.