« Batni Batn | Aðalsíða | Músík »
28. apríl, 2006
Teri Hatcher vs. Augað
Ég er á svörtum lista hjá bannsettum Vísindavefnum og get því ekki lengur spurt þá um það sem ég nenni ekki að gúgla og vil heyra á barnamáli. Gúgú.
Einhverntímann sendi ég inn spurningu í FHM sem birtist svo í blaðinu, mér til ómældrar gleði. (Ég spurði hvers vegna talnaborðið á símum og reiknivélum er ekki eins. Ég segi ykkur ekki svarið.) En einhverra hluta vegna komst þessi merki atburður aldrei í blöðin á Íslandi. "Íslendingur fær spurningu birta í erlendu glanstímariti, honum allsendis að óvöru" er ekkert slappari frétt en flestar hinar og alls ekki verri en sú að neðan um Teri Hatcher.
Sko, ég hef alltaf grunað Teri Hatcher um græsku, enda eitthvað við augnaráðið sem hringir viðvörunarbjöllum hjá öllum löghlýðnum borgurum. Ókei, og ungum drengjum.
Það var því bæði gríðarlega skrýtið og ekkert skrýtið þegar ég mislas eftirfarandi fyrirsögn á mbl.is: Litlu munaði að Teri Hatcher missti stjórn á öðru auganu.
Missti stjórn á öðru auganu??? Ég vissi það. Teri Hatcher er með einhverja leynda geðveilu og hefur enga stjórn á sér! Hún er hættuleg meðleikurum sínum og þessvegna hvarf hún eftir Súpermannshroðvirknisþættina og poppaði svo alltíeinu upp í Aðþrengdum eiginkonum...kannski er hún pínu kúl með þetta stjórnlausa auga...
Og svona hélt ég áfram að ímynda mér allt það sem hún gerir af sér í skjóli nætur og skíðagrímu. Kúbein, sendibílar með gervimerkingum, þvegið fé í skjalatösku og rotaðir menn með golfderhúfur og símasnúrugorm inní eyrað.
En svo las ég betur. Þarna stóð "missti sjón...".
Ohhh, vonbrigði lífs míns. Hvar ertu, grimma Teri með stjórnlausa augað...
Skrifaði halli þann 28.04.06 00:52
Skilaboð
Einu sinni fékk ég birt bréfið mitt birt í Mad Magazine. Það var stórt augnablik.
Skrifaði: Bob at 28.04.06 05:30
NUJ!
Hvað stóð í bréfinu?
Skrifaði: Halli at 28.04.06 12:29
Ég hef aldrei sent spurningar í Vikuna en það var einu sinni birt mynd af mér í Æskunni. Þá um 9 ára gamall og búinn að safna drasli í áramótabrennu.
Mjög stór stund í lífi ungs drengs. Minnir að Jón Páll hafi verið á forsíðu. Ég á blaðið ennþá að sjálfsögðu.
Annars var besta lesendabréf sem ég hef lesið í Vikunni frá sirka 1960 og eitthvað. Þar sem einhver var að bölsóttast og agnúast yfir því að afgreiðslufólk væri hætt að þéra.
Skrifaði: Þórður at 28.04.06 13:17
haha ég geri þetta reglulega að lesa allt vittlaust, en samt alveg óvart... og ég segji líka margt vittlaust með því að blanda tveim orðum saman og búa til tvö önnur ný eins og "beggs and eikon" og "eiginbörn og menn" o.s.fr....
Skrifaði: jonina at 29.04.06 12:34
Vá! Mig langar mjög mikið að borða beggs and eikon.
Skrifaði: Halli at 29.04.06 15:31
af hverju ertu á bannlista hjá vísindavefnum !?
og shiiiit hvað mig langar að vita með muninn á talnaborðunum .. ætli ég verði ekki bara að spyrja gúgl eða "goggla það" eins og móðir mín kallar það.. fyrst að þú ætlar að vera þögull sem gröfin !
Skrifaði: bryndís at 01.05.06 21:43