« Coke Blak og Pefsí...hvað? | Aðalsíða | El Teitur »

20. apríl, 2006

Mimimikið vesen

Æ og ó.

Eftir að hafa skoðað margar mislélegar íbúðir með mis-skrýtnum bröskurum (sjá færslu neðar) þá fann ég loksins íbúð sem mig langaði að búa í. Þó ég hafi séð nokkrar íbúðir sem ég gæti búið í, þá var þetta actually íbúð sem mig langaði alveg að búa í.

Ég skoðaði hana síðasta fimmtudagskvöld og fór svo beint upp á braskaraskrifstofuna til að fylla út umsókn þar sem ég lofaði fallega að ég myndi borga nokkra mánuði fyrirfram. Ég gerði það bæði til að þurfa ekki ábyrgðarmenn og auka líkurnar á því að ég fengi íbúðina.

Húseigandinn svaraði með því að biðja um einn mánuð í viðbót við það sem ég lofaði, og þegar ég sagði "já" sögðu þeir "já", og ég gladdist mikið þegar braskarinn góði sagði mér fréttirnar. Það besta var að stelpan ætlaði að flytja út á eða fyrir mánudaginn, þannig að það hlakkaði mikið í mér að geta flutt strax og verða júllafrír á innan við viku.

Á laugardeginum talaði ég við braskarann góða sem sagði að húseigandinn ætlaði að yfirfara íbúðina eftir helgina og mála ef þörf kræfi, en eftir það gæti ég flutt inn! Ég fór því strax í að breyta heimilisfanginu í bönkunum, tímaritum sem ég er áskrifandi að og fleiri stöðum, auk þess sem ég pantaði internet-tengingu og meððí. Semsagt: allt tilbúið fyrir flutninginn.

Á mánudeginum hringdi braskarinn og sagði að ég fengi lyklana daginn eftir, og ég var sko fluttur andlega; átti bara eftir að drösla líkamanum og dótinu mínu yfir. Var búinn að plana hvað ég tæki fyrst, og að ég ætlaði að reyna að vera alveg fluttur fyrir helgina.

Í gær, þriðjudag, hringdi svo braskarinn og sagðist hafa verið að spyrjast fyrir um lykilinn þegar húseigandinn sagði "Ha, hann? Nei, hann fær ekki íbúðina. Hann hefði þurft að borga fleiri mánuði fyrirfram eða nota ábyrgðarmenn".

Undarlegt, sérstaklega í ljósi þess að ég hefði getað gert bæði, bara ef þeir hefðu beðið mig um það. Braskarinn góði sagði þeim það, en þeir svöruðu með því að segja "Jájá, það er annar búinn að fá íbúðina. Bless og fokkjú."

Mér fannst og finnst þetta ennþá ömurlegt. Fyrir utan hvað mér finnst óendanlega leiðinlegt að skoða röð eftir röð af vonlausum íbúðum (og hvað ég verð þreyttur í löppunum og stundum sveittur líka) þá er þetta aðallega erfitt andlega. Við "góðu fréttirnar" losnaði nefnilega um niðurgrafið hatur á fíflinu sem ég leigi með, og ég leyfði mér að finnast hann vera fíflið sem hann er. Ég hlakkaði svo mikið til að vera laus við hann og þurfa aldrei að horfa á lygasjúkt fésið hans framar. Og þurfa ekki að geyma fötin mín inní fatageymslu sem er hálffull af fúl-lyktandi smíðatólum, rykugum spónarplötum og táfýluðum vinnugöllum. Ohh...ég gæti haldið áfram endalaust...

Núna þarf ég að pumpa mig upp í að skoða fleiri íbúðir. Ég skoðaði nokkrar strax í gærkvöldi, en þær voru auðvitað ekkert sem ég vildi búa í. Kannski ekkert svo slæmar fyrir aðra, en ekki góðar fyrir mig. Ég vil fá íbúð sem er meiri íbúð en herbergi. A.m.k. þannig að ef ég stend upp frá skrifborðinu mínu þá get ég sest við annað borð og ímyndað mér að nú sé ég inní stofu. Og þegar ég opna ísskápinn þá get ég ímyndað mér að ég sé inní litlu eldhúsi. Og þegar ég leggst svo í rúmið mitt þá get ég ímyndað mér að ég sé inní svefnherbergi. Málið er nefnilega að ég vil ekki bara fá stórt herbergi; ég vil litla íbúð. Ég er búinn að holast inní herberginu mínu í marga mánuði, bara til að forðast að vera nálægt fíflinu. Stundum reyni ég að spjalla við hann en líkaminn minn þolir bara ákveðið magn af yfirborðskenndri kurteisi, gervibrosum, og sveigðum & teygðum lyga- & ýkjusögum. Hann er með svo óþægilega návist að ég finn ef hann er hinumegin við vegginn.

Hr. Ullabjakk.

Skrifaði halli þann 20.04.06 01:12

Skilaboð

ooohhh...mig langaði hreinlega til að skalla tölvuna mína þegar ég las þetta! Djöfull getur fólk verið ömurlegt. Ég vona að þú finnir einhverja miklu flottari íbúð en þessi sem að skítakallinn var með!

Skrifaði: Kamilla at 20.04.06 10:24

sammála síðasta ræðumanni! (fyrir utan að vilja skalla tölvuna, myndi aldrei vilja meiða yndið mitt...) íbúðareigandinn situr örugglega uppi með ömurlegan leigjanda og blótar svo sjálfum sér fyrir að hafa komið svona illa fram við góða íslendinginn. Karma Halli karma, maður getur alltaf treyst á það.

Skrifaði: Herdís at 20.04.06 11:11

oooov svindl:(

Skrifaði: katrín at 20.04.06 12:33

Halli minn. Þetta á eftir að ganga upp. Ekkert verra en að búa með einhverjum sem maður þolir ekki en neyðist til að smeðjast við. Það er BARA ógeðslegt. Ég legg til að þú stríðir honum svolítið áður en þú ferð. Bara upp á stuðið... láta sokka hverfa og svona...

Skrifaði: maggabest at 20.04.06 19:06

Ekki gefast upp...

Skrifaði: Maggi Mús at 21.04.06 07:26

ekki mynd ég hafa lyst á að snerta sokkana hans miðað við lýsingarnar.. ojj sokkar fullir af afföllnum táhárum og kartnöglum og sveppum

Skrifaði: katrín at 21.04.06 10:35

Sárt að lesa.

Skrifaði: Bob at 23.04.06 14:54

Ég myndi kannski plaffa sokkana með langdrægnum rifli með kíki. Úr þyrlu. Fjarstýrðri. Nær fer ég ekki.

Skrifaði: Halli at 23.04.06 17:27

Skrifaðu skilaboð




Muna eftir mér?