« Mimimikið vesen | Aðalsíða | Gamall draumur um bíla og úðarigningu »
21. apríl, 2006
El Teitur
Takk fyrir anti-júlla stuðningsorðin. Ég prentaði þau út og geymi undir koddanum.
Einusinni átti ég smekkbuxur. Þær voru hvítar og ótrúlega fínar og fóru með mér á mörg skólaböll, oft við Gaultier skóna mína. Þegar ég vildi lifa á ystu nöf þá losaði ég annan "smekkinn" og lét bandið lafa þar sem ég tróðst í gegnum miðbæjarþvöguna og var í fíling. Einusinni hitti ég strák sem var í alveg eins smekkurum á nákvæmlega sama hátt: með dinglið lafandi. Við nikkuðum hausnum til hvors annars og brostum flötu, en mér fannst það samt ekkert kúl. Það er bara ákveðið mikið pláss í sömu börg fyrir hvítar smekkbuxur, og þarna fór einhver yfir strikið.
Mér varð aldrei almennilega heitt í smekkbuxunum. Stundum varð ég smá sveittur á böllunum, en utandyra var mér í mesta lagi ylvolgt. Kannski er það afþví að ég er orðinn gamall og slappur, en í dag finnst mér ég alltaf vera á mörkunum við að byrja að svitna, bara ef hitagráðan fer upp um hálfa gráðu. Eða ef leigubílsstjóri neglir niður. Eða ef ég missi næstum því eitthvað. Eða ef ég held að ég hafi gert eitthvað vitlaust. Þá bara kemur gríðarlegt *svitn* og mér verður sjóðbullandi heitt í framan og fer að glansa smá og líkaminn verður linur.
Kannski ætti ég því að kaupa mér smekkbuxur þegar veðrið verður svona fínt einsog í dag. Smekkbuxurnar gætu haldið mér ylvolgum og svölum (!) -- plús hvað þær eru ótrúlega móðins. Ég meina, hver er ekki í smekkbuxum í dag?
Í gær gúglaði ég lögfræðingaskrifstofur og fann skuldaviðurkenningarform sem ég breytti aðeins og prentaði svo út til að fá júllann til að skrifa undir. Hann skuldar mér nefnilega sextánhundruð dollara, eftir að hafa logið til með leiguna í sextán mánuði.
Þegar júllinn kom heim þá rétti ég honum blaðið, og hann las það, kinkaði kolli og skrifaði strax undir. Kom mér pínulítið á óvart, því að þrátt fyrir hversu asnalegt það væri ef hann hefði sagt nei, þá bjóst ég ekki við að hann myndi kvitta á það strax, a.m.k. ekki eftir að taka blaðið inní herbergið sitt og segjast ætla að skrifa á það seinna, og svo segja mér eftir viku að blaðið sé týnt og hann skilji ekkert í þessu og prentarinn hans sé bleklaus og búið að stela öllum pennunum hans og hann með ættarkrampa í rithöndinni og pappírsóþol. Og eitthvað fleira.
Þá er það a.m.k. úr sögunni. Vona ég. Bank, bank, bank.
Ég er búinn að skoða fleiri íbúðir og er að reyna að plotta hvernig er best að gera þetta, þar sem ég mun verða á Íslandi í sumar.
Kannski enda ég með því að leigja íbúðina út. Ef þú veist um einhvern sem er á leiðinni eða langar til New York í sumar, þá verð ég mögulega með íbúð til leigu. Kannski mögulega. Ég á eftir að sjá hvernig allt fer, en það ætti að skýrast á næstu dögum. Vonandi. Er þetta nógu skýrt?
Skrifaði halli þann 21.04.06 11:44
Skilaboð
þarsíðasta sumar vantaði mig íbúð til að leigja í köben og fann eina fullkomna en það þýddi að ég þurfti að leigja hana í 3 mánuði meðan ég var á íslandi..
það var samt alltílæ.. ég náði nefnilgea ða leigja út 4 vikur til fjölskyldna sem voru að fara í frí til danmerkur um sumarið..
það var alveg þess virði! betra en að þurfað koma út um haust og eiga enga íbúð
Skrifaði: katrín at 21.04.06 13:48
Já, það er alveg rétt. Það er svo ótrúlega gott að vera laus við áhyggjurnar.
Vesenið er samt að sumar íbúðirnar losna ekki fyrr en 1. júní, og þar sem ég fer heim 22. maí þá get ég ekki einusinni flutt þangað inn. Verð að setja dótið mitt í geymslu og allskonar svoleiðis, PLÚS að þurfa að umgangast Hr. Ullabjakk.
En þetta reddast, ég veit það. Vona það.
Skrifaði: Halli at 22.04.06 04:51
Hae
Gaman ad rekast a thig um daginn.. Vona ad thu farir ad finna eitthvad husnaedi.. Eg laet thig vita ef eg heyri af einhverju...
Skrifaði: Kolla at 22.04.06 11:06
Oj en leiðinlegt! Við erum allavega komin heim sem er bæði gott og vont en komum aftur út von bráðar ;) Þá kannski getum við öll dansað aftur saman við prumpandi almúginn!
Skrifaði: Laufey at 22.04.06 15:58
Kolla: já sömuleiðis. Og mjög random.
Laufey: reddum prumpfesti í sumar!
Skrifaði: Halli at 27.04.06 15:36