« Það snýst! | Aðalsíða | Mimimikið vesen »

14. apríl, 2006

Coke Blak og Pefsí...hvað?

Pjúff.

Ég varað farað skrifa um nýja og há-undarlega kaffikóladrykkinn frá Kók sem heitir Coca-Cola Blak og kom í búðir fyrir nokkrum dögum. Hann hefur reyndar fengist í Frakklandi og Galapagos* síðan í janúar og er örugglega stærsta ástæðan fyrir öllum mótmælunum. Ég ætlaði að skrifa eitthvað einsog "nú geta vefforritarar og Eve-fíklar tekið gleði sína og sameinast löðrandi sveittir og útataðir í flösu útí sjoppu og þambað blöndu af tveimur mest-ávanabindandi drykkjum í heimi: kók og kaffi, í einni og sömu flöskunni!" en eftir að hafa séð myndir af svipaðri vöru frá Pepsi þá er ég pínu ringlaður.

Ég ætla þó að reyna:
Bragðið er eiginlega alveg eins og lyktin: vanillu-karmellu-kók-kaffibragðefnis-glundur í lítilli glerflösku með skrúfitappa. Svaka fínerí. Glundrið er ekkert svo vont og ekkert svo gott heldur, en er svo skrýtið að maður drekkur eiginlega alveg stjarfur í framan og veit ekkert hvernig maður á að vera á svipinn. Starir bara fram fyrir sig án allra svipbrigða, hellir glundrinu uppí munninn og kyngir án þess að blikka auga. Það er ekki bara bragðið sem er skrýtið, heldur spyr maður sig líka hvers vegna þessi drykkur fæddist í heimi vorum. Kannski á glundrið að fá kaffisjúklinga til að drekka kók, og kóksjúklinga til að drekka meira kók, en hvað þetta gerir við venjulegt fólk einsog mig hef ég ekki hugmynd um. Það er einn sólarhringur síðan ég drakk eina flösku og so far, so good.

En víkjum okkur að Pefsídrykknum sem ringlaði mig svo mikið: Pepsi Kona

Já, mikið rétt, drykkurinn heitir PEPSI KONA. Ég veit ekki hvað ég á að segja annað en wá, og að mér finnist synd og skömm að þessi drykkur hafi aldrei orðið aðalsjússinn eftir kvennahlaupin. Þetta er svipað glundur og kók-skepnan að ofan, einhverskonar kaffi-kóla sem fretar örugglega þegar flaskan er opnuð (svipað og Vanillu Seltzerinn í hvítu plastdósinni sem fretaði blautu dósahljóði þegar ég togaði í opnunarmálminn). En afhverju þessi drykkur heitir Kona veit ég ekki.

Kannski er það samt einmitt málið. Drykkur fyrir konur. Litlar, allt-of-skreyttar umbúðir, með skrýtinn hatt, skrýtið bragð, skrýtna lykt, og maður verður að skoða undir til að sjá hvort manni líst á innihaldið...þúveist, alveg einsog kona.

- -

* GalapaGos er nú helvíti fínt nafn á gosdrykk. Ég myndi þamb'ann. Heyriði það, Vífilfell, Sól-Víking, Egill, 365 miðlar og allir?

GalapaGos © Halli Civelek 2006

Skrifaði halli þann 14.04.06 22:36

Skilaboð

Ég held að Kona sé tegund af kaffi frá Hawaii.

Mér finnst síðan þín frábær. Ég skrifa eiginlega aldrei skilaboð hjá ókunnugum, en mér finnst þú alveg mega vita að þetta er lang skemmtilegasta íslenska síðan.

Skrifaði: Anna Þorbjörg at 15.04.06 14:55

Loksins kominn með blogg aftur, plís tjekk og segðu hvað þér finnst um sniðið. Svo vill ég líka fara að heyra frá þér varðandi TZMP síðuna, dúllulíus!!

Skrifaði: Árni at 16.04.06 22:24

hahaha GALAPA-GOS, nema náttla að íslendingar myndu rugla því saman við það að vera galgopalegur, nei varla. En já KONA er mjög gott kaffi frá Havæ.

Skrifaði: Kamilla at 17.04.06 02:25

Anna Þorbjörg: Takk! Og skrifaðu að vild. :)

Skrifaði: Halli at 17.04.06 04:10

Árni: búinn að tékka, finnst hún flott. TZMP, já, er á afterburner, hvað sem það þýðir. Tölum um það.

Og svo máttu laga slóðina á mig ef þú nennir. Hún er ekki "/blog".

Kamilla: Myndiru þamba það?

Skrifaði: Halli at 17.04.06 04:13

Halli.. hvað meinarðu að konur séu með skrýtna lykt, skrýtinn hatt og skrýtnar á bragðið?? Og að það þurfi að skoða undir þær til að vita hvort manni líst á innihaldið...hmm hmm..??? Mér finnst þetta krefjast aðeins nánari skýringa if you please..

Skrifaði: kolka at 17.04.06 07:45

Hefuru aldrei séð skrýtnar konur?

Skrifaði: Halli at 17.04.06 12:14

Slóð löguð.

Skrifaði: árni at 17.04.06 18:38

ég skil ekki alveg... er þetta kók með kaffibragði eða bara kóladrykkur með tvöföldum koffínskamti? Eða bara bæði? En ég held að þú hafir hitt naglann á höfuðið með öll þessi mótmæli í Frakklandi, ég meina frakkar hafa alltaf verið mótmælaglaðir en mótmælin undanfarna mánuði hafa verið mikil jafnvel á franskan mælikvarða. Ætli íslendingar fari að mótmæla í stað þess að nöldra bara þegar þessi drykkur kemur hingað á markað? hmm... þessi drykkur er kannski ekki svo slæmur...

Skrifaði: Herdís at 19.04.06 16:44

Þetta er sko kókdrykkur með kaffi, þannig að það er bæði kókbragð og kók-fizz, og kaffibragð.

Vonandi verður þessi drykkur til þess að hrista uppí íslenzkum mótmælum. Það ætti kannski að selja hann með Draumalandinu.

Skrifaði: Halli at 20.04.06 03:40

Skrifaðu skilaboð




Muna eftir mér?