« Nokkrir leikir fyrir þá sem búa ekki með júllum | Aðalsíða | Teri Hatcher vs. Augað »
27. apríl, 2006
Batni Batn
Ég er í fíling og ástæðurnar fyrir því eru margar.
Í gær skrifaði ég undir leigusamning. Ég ákvað að finnast íbúðin mega brenna að eilífu í iðrum heljar þangað til ég fékk jáið, skiljiði, vildi ekki verða glaður fyrr. Íbúðin er á 33. stræti og 3. breiðgötu og nágrannarnir virðast flestir vinna með peninga og hafa gaman af því að eyða þeim. Brick-oven pizzastaður í átta skrefa fjarlægð (halló bumba, bless fallega húð), lobster-special-bar beint fyrir neðan mig (halló glansgreiddir verðbréfabraskarar, bless hip&kúl úllingar) og fleiri veitingastaðir og guðmávitahvað.
Ætlunin var alltaf að vera í hippinu og kúlinu í East Village, Greenwhich Village, West Village, SoHo, hluta af NoHo og jafnvel neðarlega við Gramercy Park, en einsog margir vita þá hefur það verið flóknara en andsvítinn og því er ég hoppandi himinlifandi með þessa íbúð. Og pizzastaðinn.
En þar sem ekkert er eins smooth og það lítur út fyrir að vera þá var húsvörðurinn rétt í þessu að seinka stóra innflutningsdeginum og júllakvaðningunni um eina viku. Á þriðjudaginn (þegar ég skoðaði íbúðina) sagði hann að hún yrði reddí fyrir helgina, og að hún yrði spörsluð og máluð og afnögluð og hreinsuð. Og ég trúði því þrátt fyrir að efast smá, því ég var búinn að ákveða að þangað til ég fengi jáið mátti íbúðin loga í iðrum jarðar, og þar mátti hún alveg vera ómáluð og skítug og með fullt af nöglum. En þetta er samt smá vesen því þeir þurfa að endurgreiða mér þessa viku og það verður eitthvað vesen og yada yada. Sjáum til, mófós.
Um daginn var ég þjakaður af verkefnastressi, enda önnin búin eftir fjórar örstuttar vikur. Eftir að hafa farið í gegnum mikla naflaskoðun og heimsmálapælingar þá klöngraðist ég inní r***inn minn (uppsprettu gáfu minnar) og dró út nokkrar mismiklar snilldir og held að hlutirnir endi bara nokkuð vel.
Í fyrstu pælingarumferð setti ég markið kannski einum of hátt og ætlaði mér að gera þrjú mismunandi verkefni sem ég hafði hvorki hugmynd um hvernig ég ætti að fara að því að framkvæma, né heldur hvernig nokkur maður ætti að framkvæma þau á þessum tíma án þess að fá mikið borgað. Og ekki ætlaði ég að borga neinum nema sjálfum mér, þannig að þetta varð, júnó, pínu vandamál.
Svo andaði ég djúpt og bruddi smá páskaegg, og reddaði svo mér aðstoð (ekki hjálp, það eru bara aumingjar sem þurfa hjálp) og held að þetta reddist allt.
Og þessvegna er ég í fíling.
En ástæðan er nú líka sú að bráðum kemur Margrét Anna í heimsókn og ég get ekki bítt. Knús & kossar, hárlaus húð, löng hár á koddanum, einhver til að hlæja að bröndurunum mínum...og það næst besta? Enginn f***íngs júlli!!!
Svo fer ég með Margréti Önnu, mömmu og systur minni (og kannski fleirum úr minni ástkærri familíu) til Tyrklands í lok maí og hlakka óendanlega til. Allur maturinn, mmm, allur tíminn sem ég mun eyða í ekki neitt, mmm, allur maturinn, mmm! Ég býst við að verða með ódýr sólgleraugu (ekki Oakley samt, jesús) og færibandaframleiddan sólhatt og gómsætan barnakokteil og lesa í skugganum á meðan þær (og kannski fleiri) láta sólarolíuna krauma á líkamanum, en sama hvað gerist þá verður það ljúft, ó herra minn góður.
Sjáum til hvort ég geti pimpað okkur inní neðanjarðarpókergreni með því að flagga eftirnafninu, og reddað okkur extra creamy keböbum og hjólavagnsdragara með sterka kálfa. Ég ætlað tala við tyrkneska posse-ið mitt hér í skólanum og biðja þau að kenna mér nokkur trix og gang signs og svoleiðis.

Og trúið mér, ég mun reyna mjög mjög að kaupa stórmyndasafnið Turkish Star Wars, Turkish E.T., Turkish Spiderman, Turkish Exorcist, Turkish Superman, Turkish Wizard of Oz, sem eru hver annari skrýtnari.
Frændur mínir, bræður og afar í Tyrklandi eru nefnilega þekktir fyrir að þegar þeir endurgera myndir, þá sko endurgera þeir myndirnar. Spiderman varð grimmur, en aðallega sjúskaður og þunnur þar sem hann stendur í teygðum og stuttum bómullarbúningnum sínum með smá bumbu og skeggbrodda og meiðir fólk. ET varð einhverskonar gúmmíklumpur sem prumpar slökkvitækagufuskýi (satt!). Þarf ég að halda áfram?
Svo held ég tyrkneskt kvikmyndamaraþon á Íslandi í sumar. Allir mæta með sitt eigið shish á grillið.
Skrifaði halli þann 27.04.06 12:02
Skilaboð
Þetta eru nú meiri leiguíbúðaraunirnar sem þú hefur verið að lenda í! En gott að það eru bjartir tímar framundan :) Þó M83 geti verið leiðinlegir fínnst mér remixið þeirra af Depeche Mode laginu Suffer Well vera mjög flott. Tjékkaðu á því. Langar á Sufjan oh...
Skrifaði: Bjarki at 27.04.06 15:06
Takk.
Skal tékka á þessu lagi með þessum epísku langbrauðsætum.
Og já, Sufjan, langar líka.
Skrifaði: Halli at 27.04.06 15:33
til hamingju með íbúðina :)
Skrifaði: Herdís at 27.04.06 16:17
Til hamingju með íbúðina. Ég var einmitt að fá mér nýjan sófa, þannig að það er næstum einsog íbúðin mín sé ný. Oh, við eigum svo margt sameiginlegt.
Skrifaði: Bob at 27.04.06 17:00
hvað með prada gleraugun?? þau eru fín og ekki oakley (bjakk) :*
Skrifaði: mangó sín at 27.04.06 17:17
Takk Herdis. :)
Bobbi minn, vid erum like this ---> $.
Mango sin: eg veit, eg er eitursvalur med thau, og thessi odyru lika. :)
Skrifaði: Halli at 27.04.06 17:32
Hvað er ég að gera á þessu bloggi? Ég les aldrei þetta blogg.
Til hamingju með íbúðina! Er þetta hjá rússnesku vinkonu okkar?
Skrifaði: Sveinbjörn at 27.04.06 21:32
Nei. Rússneska/austur-evrópska konan í dimma unglingahrollvekjukjallaranum getur dúllað sér með öðrum leigjendum. Þessi íbúð er hjá litla hressa húsverðinum sem veit ekki hvenær 1. maí er.
Skrifaði: Halli at 28.04.06 00:46
Kodd'á MSN, ég er vakandi :Þ
Skrifaði: Kristleifur at 28.04.06 02:01
ég fíla það hvað þú ert í góðu sambandi við ræturnar...
nei. í alvöru. þetta er fyndin lesning þetta blogg þitt.
Skrifaði: Þórður at 28.04.06 13:14
Heyrðu já til lukku með íbúðina.. en annað, Oakley?? Ég get sko alveg sagt þér það að þau eru engin ódýr súpermarkaðs gleraugu.. ég átti surfaramegagleraugu dauðans in the nineties og þau kostuðu pottþétt yfir tíu þúsund kall! Myndi lána þér þau en ég braut þau 10 dögum seinna... óheppinn
Skrifaði: kolka at 29.04.06 08:34
Takk!
Annars veit ég hvað þú meinar með Oakley. Pointið var að ég "bjóst við" að vera með ódýr sólgleraugu, ef ekki þá myndi ég aldrei vera með Oakley. Ég á nefnilega sorglega töffaraleg Oakley gleraugu sem ég keypti á Ítalíu árið 2000. Þau kostuðu 8.000. Ó mig auman, ég var andsetinn.
Skrifaði: Halli at 29.04.06 15:33
Til hamingju með íbúðina :-) en hei Oakley eru flott sólgleraugu en samt ekki þessi plastic sem ég átti nú líka ;-)
Skrifaði: Hringur at 02.05.06 06:22
Welcome to the neighborhood!
Eg er a 14th/3rd.
Skrifaði: Alfheidur at 02.05.06 21:14
Takk. :)
Skólinn minn er einmitt rétt hjá Union Square, þannig að það hefði verið ansi fínt að fá íbúð þar. En þessi er mjög fín og nóg af rjúkandi pizzu.
Skrifaði: Halli at 03.05.06 02:49