« Ó svo hyper eitthvað | Aðalsíða | Coke Blak og Pefsí...hvað? »
14. apríl, 2006
Það snýst!

Fyrir þá sem ekki vita þá er fyrirbærið að ofan sæðisfruma. Þær búa inní púngum og geta undir réttum kringumstæðum búið til börn og meðlagsskuldir.
Ég hef hingað til haldið að ég að ég viti nóg um sæðisfrumur til að geta komist í gegnum lífið og unnið nokkur Trivial á leiðinni. Hvað er svosem að vita? Þær eru litlar, ýkt margar, synda áfram, og rembast við að finna egg til að bora stóra hausnum sínum inní. Hvað sæðisfrumurnar gera eftir að hafa borað sér inn hef ég ekki hugmynd um, en ég veit allavega að ef ekkert er eggið þá er ekkert stuð. Þúveist, stuð.
Ég komst hinsvegar að því áðan að ég hafði ekki hugmynd um hvernig sæðisfrumur synda. Ég hef alltaf séð hliðarmynd sem sýnir þær hreyfa halann sinn upp og niður, svolítið einsog flugsund, en það er bara blekking nútímans.
Smelltu til að sjá hreyfimynd af því hvernig þær synda í alvörunni:
- Syndandi sæði á ská
- Syndandi sæði frá hlið og aftanfrá
Eru sæðisfrumur ekki duglegar og fínar? Þær bora sig áfram. Svúsj svúsj. Nú er ég miklu ánægðari með það sem býr í púngunum okkar allra. Og nú skil ég afhverju stuðið er kallað "to screw".
Skrifaði halli þann 14.04.06 20:28
Skilaboð
hey en ég var að læra eitt um sæðisfrumur: Þær eru víst alltaf eftirmyndir fyrrum fruma svo að gæði þeirra lækka með aldrinum þar sem þær eru eftrmyndir af eftirmyndum sem eru svo aftur eftirmyndir af eftirmyndum..Aha svo ef þú ætlaðir að bíða til 70ugs til að eignast börn Haraldur þá mæli ég ekki með því.
Skrifaði: kolka at 17.04.06 07:52
En það sem er fullkomið verður þá bara fullkomnara og fullkomnara. Um sjötugt er mér sama í hvaða standi sæðið mitt er; ég verð bara feginn ef einhver vill sjá mig beran.
Skrifaði: Halli at 17.04.06 20:13
Ætli sæðisfrumur verði ekki dáldið ringlaðar þegar þær eru búnar að bora/skrúfa sig inn í eggið með tilheyrandi snúningi?
Skrifaði: bjadddni at 19.04.06 08:10
Þykk skurn útskýrir kannski vitleysinga?
Skrifaði: Halli at 20.04.06 03:41