« Humm 2 | Aðalsíða | A Million Little Lies »

24. janúar, 2006

Apocalypse Idol!

Sankti Mólí!!!

Ókei, nýja American Idol byrjar einsog vanalega. Óendanlega langar raðir af óendanlega hæfilaukasnauðu fólki sem skemmtir mér ó svo mikið. Það er svo fyndið að næstum alltaf sér maður það á útliti viðkomandi hvort hann kunni að syngja eða sé geðtruflaður og algjörlega laglaus vitleysingur á röngum stað á röngum tíma. Og, að sjálfsögðu, í röngum fötum og allt það.

Ég veit að klippikrúið fær kreditið fyrir þetta, en oftast er það þannig að þeir sem labba inn rólegir og feimnir syngja miklu betur en þeir sem eru æstir og fullvissir um eigin fullkomleika.

Muhammed Ali og Donald Trump geta rifið kjaft, flestir aðrir geta það ekki.

Strax er búið að handtaka tvíbura sem sungu bara vel miðað við tvíbura, en það mesta og besta og skemmtilegasta er fullbakaða stúlkugreyið sem tók tízkuráðgjöf vitskertrar og siðblindrar móður sinnar einum of alvarlega, og kuklaði svo upp illan seið.

Hún er á sama tíma stórkostlega mögnuð og hræðilegur vitnisburður um tortímingu alheimsins.

Taktu Jessicu Simpson, Ashley Simpson, Christinu Aguilera, Britney, Lindsey Lohan, Paris Hilton og Chloe Sevigny, troddu þeim í hakkavél og bættu við átján kílóum af meiki, tvöþúsund árum af ljósatímum, níu þáttaröðum af Sirkus og fylltu svo höfuðið af óskapnaðinum af stálull.

Behold, vér höfum líf:

aaaajjj krúttísmúttí

CRYSTAL PARIZANSKI, rauðháls Extraordinaire!

Hér er smá dæmi:

Crystal: HIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!
Randy: HEY!!!!!!!!
Crystal: You need me to explain anything? HEY, WHAT'S UP PEOPLE!
[vinkar hæ með báðum höndum]
Simon: Yes, the tan.
Crystal: Okay, um, my name is Crystal. Um, I just turned six-
Simon: No, I wanna hear about your suntan.
Crystal: Okay, I'm singing "And I'm Telling You" by Jennifer Holliday.
Simon: No, no, no. I wanna hear about your suntan.
Crystal: Oh, my sun tan? ...I go tanning?
Simon: Nooooooooooo!

Og þetta voru bara fyrstu sekúndurnar.

Hér er vídjó úr þættinum.

Svo er fullt á internetinu, t.d. segir Just Jared helling.

Ef þú vilt geturðu orðið vinur hennar á myspace:
http://www.myspace.com/xokissmex369

Ég þori því samt ekki. Hún er svo mikið! Mun vakna upp sveittur á næturnar og ekki þora að sofna aftur.

Gvöð blessi þig Crystal, og mömmu þína með.

Og já, ein krúttíbollan söng "It's Oh So Quiet" með Beoook. Hi hi.

Skrifaði halli þann 24.01.06 13:09

Skilaboð

shit hvað þetta var fyndið. Hvar finna þeir þetta fólk?!?!

Skrifaði: Jonathan Gerlach at 25.01.06 04:37

Ég held að þetta sé spurning um hvar þeir búi svona fólk til.

Hún er einsog misheppnuð klónun. Allt leit vel út í byrjun, en svo opnaði hún munninn til að tala og þá bara *klomps* *klirr* *íííík* *sproinnng*

Hún labbar meiraðsegja einsog mjög illa forritað vélmenni með ryðguð batterý og gamlar legur.

Púff.

Skrifaði: Halli at 25.01.06 10:55

Ef þetta er ekki lifandi dæmi um að það þurfi að þynna hjörðina smá þá veit ég ekki hvað. Þess vegna kom pestir eins og svartidauði og brátt fuglaflensan.

Skrifaði: Njörður at 26.01.06 06:11

simon sagðist líka aldrei hafa séð neinn með svona tan, hann hefur greinilgea aldrei séð ásgeir kolbeins!

Skrifaði: katrín at 26.01.06 07:19

Og hversvegna hef ég á tilfinningunni að nafnið hennar sé jafn feik og restin af henni?

Skrifaði: bergen at 27.01.06 22:16

Ásgeir Kolbeins og allt Sirkus-krúið eru einsog svarthol.

Bergen: nafnið er dáldið gott, ég veit. Ertu kannski pínu skotinn í henni, bara pínu?

Skrifaði: Halli at 28.01.06 13:20

Skrifaðu skilaboð




Muna eftir mér?