« Apocalypse Idol! | Aðalsíða | Ómwarhol »
25. janúar, 2006
A Million Little Lies
Ég vona að íslenskir bókaútgefendur lesi þessa grein áður en þeir ákveða að rjúka til og þýða metsölubókina 'A Million Little Pieces' eftir James Frey. Bókin er titluð sjálfsævisaga Freys, þar sem hann segir frá allskonar atburðum tengdum fíkniefnaneyslu hans, afbrotum, fangelsisvist, endurhæfingu, slagsmálum, handtökum og þar fram eftir götunum, og er búin að gera höfundinn, fyrrverandi dópista, alkóhólista og "glæpamann" að múltímilljóner.
Bókin kom fyrst út 2003 en það var ekki fyrr en tárvot Oprah smokraði bókinni inní bókaklúbbinn sinn --og tók fram að allir vinir hennar og samstarfsmenn gætu ekki lagt hana frá sér-- að hnullungurinn fór að rúlla og gerði bókina að mest seldu bók í Bandaríkjunum árið 2005 með u.þ.b. 1,77 milljón eintök seld, þaraf meirihlutann eftir auglýsingu Oprah.
Strax heyrðust allskyns efasemdir um trúverðugleika bókarinnar, t.d. þá hluta sem voru hvað svæsnastir. The Smoking Gun, vefsíða sem birtir krimmaskot (e. mugshots) af selebritíum og segir frá lagabrotum þeirra og hálf misheppnuðum leyndarmálum, ætlaði að fá áðurnefndar krimmamyndir höfundarins í safnið sitt en átti í miklum erfiðleikum með að fá upplýsingar frá lögreglunni og yfirvöldum, ekki vegna þess að þau vildu ekki hjálpa, heldur vegna þess að ekkert fannst.
Bókin er því talin skálduð að mestu, og þegar sviðsljósbrenndi höfundurinn prumpaði í sig hjá Larry King hringdi Oprah inn (hvernig sem það er hægt, "Þetta er Oprah, put me through!") og reyndi að verj'ann.
Hér eru nokkrar síður sem fjalla nánar og miklu betur um þetta mál:
- The Smoking Gun: James Frey
- Freakonomics: Further Fact Checking
Svo eru fleiri greinar á Freakonomics, sem er annars stórfín bók og skemmtilegt blogg.
Djévuls lúði.
Skrifaði halli þann 25.01.06 01:11