« Lygamerðir og leðurskór | Aðalsíða | Ég elska súpulaði! »

13. apríl, 2005

Petals Around the Rose

engir petlar

Vá hvað mér finnst ég vera vitlaus.

Rakst á þennan leik, Petals Around the Rose, og það er ekki sjens að ég fatti hann. Ávanabindandi og flókna drasl! Samt skemmtilegt! Samt svo pirrandi!

Hér er ein útgáfa.
Og hér er önnur.

Báðir leikirnir sem ég linka á virka eins, þ.e. eru erfiðir, flóknir, leiðinlegir og skemmtilegir, en grafíkin er aðeins skárri í þessum seinni.

Samkvæmt internetinu er bannað að segja ef maður fattar lausnina og það er partur af leiknum. En plís prófið þetta og segið mér ef þið fattið strax, en ekki hvernig.

Ég er búinn að giska oft á rétt svar en hef ekki hugmynd um hvernig ég fer að því. Óskiljanlegt og viðbjóðslegt!

p.s. hér er safn bréfa sem strákur í skólanum mínum hefur sent fólki: Randy skrifar bréf

Skrifaði halli þann 13.04.05 00:56

Skilaboð

halli baby,

þessi leikur er svo fáránlega einfaldur að ég veit þú átt ekki eftir að trúa því þegar þú fattar hann einn daginn ...

P.S Það skal tekið fram að ég kunni á leikinn "beforehand" :)

Skrifaði: Jonathan Gerlach at 13.04.05 03:44

pfff ég fattaði.. enda er ég með bs;)

Skrifaði: katrín at 13.04.05 03:45

Ég fattaði ekki. Enda er ég líka bara hálfnaður með bs

Skrifaði: snub at 13.04.05 04:50

Ég fattaði... það er léttara að fatta þetta á seinni útgáfunni.

Skrifaði: Bob at 13.04.05 05:24

ég nennti ekki að leika nógu lengi til að fatta. hefði líklega ekki fattað, alveg sama hve lengi ég hefði leikið.
Er með Master og á leið í Cand.

Skrifaði: skotta at 13.04.05 08:05

...nennir einkur plís barað kjafta!!!! þoli ekki sona >:/

Skrifaði: mangó sín at 13.04.05 12:46

Neeei, ekki kjafta, mig langar að fatta þetta sjálfur. Get alveg giskað á rétt, en það er bara stundum og þá veit ég aldrei afhverju mér tókst það.

En þið vitið hvað þeir segja: því gáfaðri sem þú ert því erfiðara er að fatta þetta.

Tek það kannski tilbaka ef ég fatta þetta eftir 2 mínútur, en þangað til þá er þetta rétt.

Skrifaði: Halli at 13.04.05 14:48

...sendið mér bara ímeil með lausninni...mango@icomefromreykjavik.com...þá getur halli fengið að fatta í friði....

Skrifaði: mangó at 13.04.05 18:58

Seinni linkurinn með svarið grafið í síðunni, ég hefði líklega ekki sofnað í nótt ef svo væri ekki..

Skrifaði: Blammo at 13.04.05 21:08

Ég er stærðfræðilega fatlaður og ég fattaði þetta (en samt ekki fyrr en ég var búinn að öskra af bræði og prufa MJÖG oft).

Skrifaði: Njörður at 14.04.05 11:29

Ég gleymdi. BS er ekkert á við SK, word

Skrifaði: Njörður at 14.04.05 12:05

Hæ Halli og sorry að ég sé að bögga þig með svona spurningum alltaf hreint ;).. en værirðu til í að segja mér hvar þú fannst myndbandið á netinu með íslenska júróvision laginu nýja?.. ætla aðeins að böggast í frænku minni sem býr í DK.. hún þoooolir ekki Júróvision.. hehe...
með fyrirfram þökk,
fiðrildi

Skrifaði: fiðrildi at 15.04.05 06:25

Já, sko:

www.ruv.is/eurovision

eða

www.eurovision.is

Skrifaði: Halli at 15.04.05 10:25

vá hvað ég hlýt að vera gáfaður....
Fatta þennan leik enganveginn!

Skrifaði: ingvi at 16.04.05 06:50