« New York íbúð til leigu frá 1. júlí 2009! | Aðalsíða | Góðverkin »

Pakk!

Þreyttur ég er. Búinn að ofhugsa, ofur-analæsa, og of-pæla í alltof mörgum hlutum í einu, og heilabörkurinn glitrar jafn mikið og efri vörin.

Kom hingað annarsvegar í frí, og hinsvegar tilað pakka, senda innbúið til Íslands og skila lyklunum að íbúðinni. Ekki einsog ég hafði ímyndað mér að það yrði auðvelt, en um leið og ég kom hingað, þá -- einsog ég vissi nú allan tímann -- langaði mig alls ekkert að hætta með íbúðina eða hvað þá snerta dótið í akkúrat þeim tilgangi.

Ég hef ekki komið til New York sem hótelgestur síðan 1997, og núna eru liðin rúm fimm ár síðan ég hlunkaðist loksins tilað flytja hingað. Þó ég geti ekki sagt að ég hafi "aldrei búið jafn lengi á einum stað og hér" -- bæði vegna þess aðeinfaldlega vegna þess að ég er búinn að ferðast oft til Íslands (og annarra landa) á þessum fimm árum -- þá hefur mér aldrei liðið jafn mikið heima og akkúrat hér.

En "hér" er auðvitað borgin, en ekki íbúðin sjálf. Í New York er ég miklu nægjusamari en á nokkrum öðrum stað. Hér er nefnilega nóg að eiga stað tilað sofa, borða, baða sig og skipta um föt í næði -- svo ferðu bara út í borgina. Hér er nóg að eiga litla íbúð, því þú vilt hafa tækifæri á að gera miklu fleiri hluti en annars staðar, og þarafleiðandi ekki horfa á peningana renna alla í burðarkostnaðinn á svölunum eða þurrhreinsun og stífelsi á hatti dyravarðarins.

Hér er nóg að fara út í göngutúr tilað muna afhverju þú ert hér, fattaru.

Og þessvegna var ég ekki tilbúinn að segja upp leigunni og þannig stöðva þetta tímabil. Þessvegna er ég ekki tilbúinn...

Sko, ég flutti frá Íslandi þegar ég var alveg að fá nóg af Íslandi. Og stuttar heimsóknir minntu mig alltaf á afhverju ég vildi fara. Gamlar rullur sem ekki er hægt að hrista af sér. Þú ert sá sem þú varst síðast þegar hinn sá þig -- þó það séu fimm ár, mörgum vinnum, sigrum og töpum síðar. (Kannski hefði ég átt að fara fyrr.)

Ég seinkaði Íslandskomunni tilað reyna að ákveða mig, en það eina sem ég gerði var að sakna. Ekki bara sakna New York fyrirfram, heldur sakna þess eina sem lét mig velja Ísland framyfir New York síðasta haust, og lét mig velja Ísland framyfir New York...aftur...núna.

Það var þó ekki útaf því sem ég hætti með íbúðina. Ég setti upp auglýsingu og langaði að finna fram-leigjendur, en málið er einfaldlega að fyrir ári síðan hefði ég getað koverað leiguna þann mánuð sem íbúðin væri tóm, en ekki í dag, eftir að krónan breyttist í kúk. Þessvegna er það aðeins of mikil áhætta að halda íbúðinni og framleigja, bara tilað geta notað hana einn-tvo mánuði næsta vor. Og ég segi "aðeins of", því tilfinningalega finnst mér það þess virði, en alveg einsog góður bóndi hendir ekki mykjunni sinni, þá vil ég ekki henda minni.

Ég er í rembingi að ganga frá öllu, og það er ekkert minna erfitt fyrir vöðvana inní hausnum en vöðvana fyrir neðan.

Ég er þó búinn að:
- gefa föt til Rauða krossins
- gefa dósir og flöskur til heimilislausu dósakallanna á horninu
- gefa slúðurblöð til spítalans
- gefa tímarit til kennara sem kennir SAT kúrsa á sumrin
- gefa sinaskeiðabólgu til mín

Og komast að því að þegar ég geri eitt í einu þá er allt einfaldara.

Skilaboð (7)

Örn Úlfar Sævarsson:

Halli, nú brettum við upp ermar og breytum Melunum í eitt gott Brooklyn hverfi. Ég er til!

Já. Sjón opnar kaffihús með oatmeal cookies (eða Oatmelur) í húsinu sínu, og við skrúfum frá brunahana eða tveimur.

Sjá annars myndina í næstu færslu.

Celly:

Ég allra manna skil þig best. Leið svona í hvert skipti sem ég pakkaði töskunum, ekki bara þegar ég flutti heim, en líka þegar ég skrapp yfir sumarið.

5 árum seinna og mér finnst ég ekki enn vera lent. New York er eitthvað sem mar nær ekki úr kerfinu, NY verður hluti af manni sem og sú manneskja sem mar tekur með sér heim.

Eitt af því erfiðasta er að fara til baka, ekki sem íbúi heldur sem gestur.

Heiða:

Gaman að lesa færsluna, þekki þig ekki neitt, datt inn á þetta þegar ég var að leita að íbúð til leigu næsta sumar í New York. En þú ert sem sagt ekkert að fara að leigja hana út næsta sumar er það? :)

Kveðja,
Heiða

Hi webmaster, commencers and everybody else !!! The blog was absolutely fantastic! Lots of great information and inspiration, both of which we all need! Keep them coming... You all do such a great job at such Concepts... can't tell you how much I, for one appreciate all you do!

Usually I do not write on blogs, but I would like to say that this article really convinced me to do so! Congratulations, incredibly nice post. rbtqdgvywdl

Do you have any more info on this?

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 23. júní 2009, kl: 22:38.

Fyrri færslan er New York íbúð til leigu frá 1. júlí 2009!.

Næsta færsla er Góðverkin.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31